24.02.1987
Sameinað þing: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3430 í B-deild Alþingistíðinda. (3058)
307. mál, álit milliþinganefndar um húsnæðismál
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Þessi umræða um skýrslu félmrh. um álit milliþinganefndar um húsnæðismál hefur nú staðið í nokkuð langan tíma, sennilega 8-10 klukkustundir, og er það vel því að við erum hér að fjalla um mál sem skiptir sköpum fyrir fólkið í landinu.
Hæstv. félmrh. hefur talað tvisvar við þessa umræðu og ég verð að segja að ýmsum spurningum sem ég beindi til hans í mínu máli um daginn er enn ósvarað.
Hæstv. ráðh. staðfesti í ræðu sinni um daginn, þó óbeint væri, að það væri um verulega vanáætlun að ræða á fjármagni til húsnæðiskerfisins. Að vísu rak sig hvað á annars horn í hans málflutningi. Hæstv. ráðh. rakti forsendur nýju laganna og vitnaði þar óspart til athugasemda í frv. með nýju lögunum og ráðherrann benti m.a. í sinni ræðu á vanáætlun á fjármagni þegar frv. að nýrri húsnæðislöggjöf var til umræðu. Þá sagði hæstv. ráðh., með leyfi forseta, og er þá að vitna í forsendur laganna:
„Þá er komist að þeirri niðurstöðu að verði um helmingi af þeim lánveitingum, sem reiknað er með í athugasemdum til þeirra sem eiga íbúð fyrir, frestað um eitt ár verði fjárþörf Byggingarsjóðs ríkisins til lána vegna nýrra og notaðra íbúða um 3,5 milljarðar á árinu 1987.“
Og hvað hefur komið í ljós? Fjárþörf er ekki 3,5 milljarðar á árinu 1987 eins og hæstv. ráðh. vitnaði í, heldur er fjárþörfin 5,8 milljarðar einungis vegna umsókna sem bárust fyrir áramótin.
Hæstv. ráðh. vitnaði nefnilega til þess í máli sínu hér um daginn að það hefðu borist 4260 umsóknir og hann reiknaði með 15% afföllum af þeim umsóknum. Ef við reiknum þetta dæmi nú til enda, sem ráðherrann hefði auðvitað átt að gera og sýna þingheimi fram á vanáætlun sem er augljós á fjármagnsþörf, ef hann hefði reiknað dæmið til enda hefði komið í ljós - ráðherrann gaf upp að meðallán væri 1600 þús. kr. - að fjárþörf vegna umsókna sem bárust fyrir áramót er 5,8 milljarðar og til ráðstöfunar eru nú 4,4 milljarðar sem þýðir að það vantar 1,4 milljarða inn í húsnæðiskerfið á þessu ári til þess að standa við lánsloforð vegna umsókna sem bárust fyrir áramótin. Þetta þorði hæstv. ráðh. vitanlega ekki að segja berum orðum. Ég sagði að hvað hefði rekið sig á annars horn í ræðu ráðherra vegna þess að þegar hann er búinn að upplýsa um umsóknafjöldann og afföllin, sem auðvitað má reikna út hvað þýðir í fjármagni, segir ráðherrann, með leyfi forseta:
„Það er ljóst af því sem að framan greinir að sá áróður sem hafður er uppi um nýja húsnæðislánakerfið, að það sé brostið, hefur ekki við rök að styðjast.“
Nú hafa borist, samkvæmt því sem fram kom í fjölmiðlum, um 5000 umsóknir frá september til febrúar og ef reiknað er þar líka með 15% afföllum er niðurstaðan sú að þegar hefur verið ráðstafað 2,4 milljörðum af fjármagni næsta árs. Og ég tel nokkuð víst að umsóknir, sem eru að berast þessa dagana, verður ekki hægt að uppfylla fyrr en á árinu 1989. Þá spyr ég: Erum við ekki farin að ráðstafa fjármagni lífeyrissjóðanna sem ekki hefur verið samið um? Var ekki bara samið til tveggja ára við lífeyrissjóðina að því er varðar fjármagn í húsnæðiskerfið?
Hæstv. ráðh. vill sem minnst tala um biðtíma í þessum umræðum þó að hann hafi talað tvisvar við þessa umræðu. Hann leiddi biðtímann hjá sér. Honum finnst greinilega að biðtími skipti engu máli. En það er það sem skiptir máli fyrir fólkið. Það er biðtíminn. Hann hefur greinilega ekkert um hann að segja.
Ég vil spyrja hæstv. ráðh., af því að hann var að enda við að segja hér í ræðustólnum að hann vildi ekki leyna neinum skýrslum, hann vildi sýna öll skjöl sem hann hefði í fórum sínum til þess að upplýsa stöðuna: Er það rétt að hann hafi í fórum sínum og stjórn Húsnæðisstofnunar innanhússskýrslu um stöðu húsnæðismála sem staðfesti að það sem sagt hefur verið og sú gagnrýni sem komið hefur fram á kerfið sé rétt? Er það rétt, hæstv. ráðh., að þessi skýrsla sé trúnaðarmál og hana megi ekki birta? Ég tel það ekki forsvaranlegt, ef svo er, ef leyna á Alþingi, sem kýs stjórn Húsnæðisstofnunar sem hefur þessa skýrslu undir höndum, þessari skýrslu. Ég vil skora á ráðherrann, sem segir að hann vilji ekki leyna neinum skýrslum eða skjölum, að hann sýni nú þessa skýrslu á Alþingi, sýni þessa skýrslu sem merkt er trúnaðarmál og ekki má upplýsa. Og ég spyr: Hvað er að fela sem fram kemur í þessari skýrslu? Er það eitthvað um biðtímann sem hæstv. ráðh. kýs að leiða hjá sér að ræða um? Er hægt að finna þar einhverjar upplýsingar um fjármagnsþörf? (Gripið fram í: Er ekki einhver krati þarna í stjórninni sem getur sagt hv. þm. frá þessu?) (JBH: Það er verið að spyrja ráðherrann.) Ég óska eftir því að hæstv. ráðh. upplýsi Alþingi um þessa skýrslu og dreifi henni hér. Staða húsnæðismála á ekki að vera trúnaðarmál og ráðherrann vill ekki liggja á neinum leyniskjölum þannig að ég fer þess á leit við hann og óska eftir því að hann svari því hér við þessa umræðu að hann sé tilbúinn, hann sé reiðubúinn að birta þessa skýrslu.
Þó að hæstv. ráðh. sé þögull um biðtímann hefur forstjóri Húsnæðisstofnunar, þrátt fyrir það sem Halldór Blöndal var að vitna í og haft var eftir forstjóra Húsnæðisstofnunar um að biðtíminn væri úr sögunni, engu að síður upplýst í útvarpi þann 18. febrúar hver biðtíminn er. Þar kom fram hjá Sigurði E. Guðmundssyni að þeir sem sóttu um í janúar, forgangshópar sem sóttu um í janúar, fá sinn fyrri hluta í desember 1987 og seinni hlutann í júní 1988. Biðtíminn er 11 mánuðir í fyrri hluta og 17 mánuðir að því er seinni hlutann varðar. Og Sigurður E. Guðmundsson upplýsti líka að víkjandi hópar, eða aðrir en forgangshópar, sem sótt hefðu um í janúar, fengju sinn fyrri hluta ekki á þessu ári heldur í mars 1988 og seinni hlutann í september 1988, 14 mánaða biðtími eftir fyrri hlutanum og 20 mánaða biðtími eftir seinni hlutanum. Og hvað segja þessar tölur okkar ef þegar, að því er varðar umsóknir í janúar, er kominn svo langur biðtími?
Menn segja að það sé ekkert að marka þann umsóknafjölda sem hafi borist. Sumir eru meira að segja með útúrsnúninga í því máli eins og t.d. Ásmundur Hilmarsson sem hæstv. ráðh. var að vitna í. Hann segir í Alþýðublaðinu, með leyfi forseta, og það er eftir málflutningi þeirra sem vilja verja kerfið og þora ekki að taka á þeim vanda sem við blasir:
„Ef það er rétt að það berist að meðaltali 1000 umsóknir á mánuði um lán þá þýðir það 12 þúsund umsóknir á ári. Spurningin er: Finnst mönnum það líklegt til frambúðar?"
Hver hefur verið að tala um 12 þúsund umsóknir á ári? Ekki nokkur maður. Ég hef ekki nefnt það. (Félmrh.: Jú, jú.) Jú, segir hæstv. ráðh. Hann leyfir sér að segja jú, hæstv. ráðh. Ég sagði að það hefðu borist, og það var staðfest af ráðherra, 4260 umsóknir fyrir áramót og nú þegar 5000 umsóknir. Á hverju byggir áætlun sem ég byggi á um fjármagnsþörf? Að það berist 4500 umsóknir á öllu þessu ári eða 375 umsóknir til jafnaðar á hverjum mánuði? Og er það há áætlun, hæstv. ráðh.? Eru það 12 þúsund umsóknir á ári? Ég hef byggt á 4500 umsóknum, 375 umsóknum á mánuði og ég fullyrði að það er varleg áætlun. Og miðað við þá varlegu áætlun þarf að tvöfalda fjármagnið í húsnæðiskerfið á næsta ári og er þá líka gert ráð fyrir þeirri aukningu sem ráðherra talaði um að kæmi á fjármagni frá lífeyrissjóðunum.
Það hafa sem sagt borist nú um 5000 umsóknir á fyrstu fjórum eða fimm mánuðunum og það er 1000 umsóknum fleira en gert var ráð fyrir á heilu ári í forsendum laganna. Og ráðherra talaði um afföll. Og menn tala um að það séu svo margir sem séu að sækja um sem séu bara að fara í röðina af því að þeir tortryggi kerfið. Er ekki ein skýringin á því, hæstv. ráðh., að það er fjöldi fólks sem nú hefur lagt í að leggja inn umsóknir af því að það treysti á þau loforð og þau fyrirheit sem voru gefin, fjöldi fólks sem hefur ekki þorað að leggja út í það á undanförnum árum, í því öngþveiti sem verið hefur í húsnæðismálum, það hefur ekki þorað að leggja út í það að koma sér þaki yfir höfuðið. Þessi hópur er núna að koma fram og leggja inn sínar umsóknir. Ég er sannfærð um að það er ein meginskýringin á fjölda umsókna sem nú hafa komið fram en ekki það að fólk sé að tryggja sér að fara inn í einhverja röð í kerfinu og ætli sér ekkert að sækja um þessi lán.
Að því er varðar þessi 15% afföll: Hæstv. ráðh. dregur það í efa að fólki sé vísað frá af því að það standi ekki fjárhagslega undir greiðslubyrði lána. Hann segir að það séu engar upplýsingar um að fólki hafi verið sjálfkrafa úthýst úr kerfinu. Rengir hæstv. ráðh. það dæmi sem kom í sjónvarpinu um hjónin sem áttu 700 þús. í reiðufé, að vísu lág laun, 30 þús. kr., og þeim var vísað frá af því að þau stóðu ekki fjárhagslega undir greiðslubyrði lána. (Félmrh.: Veit hv. þm. hvað stóð á bak við þetta?) Og hvað með manninn með 90 þús. kr.? (Félmrh.: Veit hv. þm. eitthvað um þetta.) Hefur einhverjum verið vísað frá sem hefur verið með 90 þús. kr. tekjur`? (Félmrh.: Var ekki hv. þm. að segja það?) Ja, ég spyr ráðherra. Hann hlýtur að hafa kynnt sér málið. (Gripið fram í.) Það liggur fyrir að það er svo. Ég skal vitna hér í plagg frá Húsnæðisstofnun. Það er kannske leyniplagg sem ekki má vitna í. En þar stendur, með leyfi forseta:
„Það hefur vissulega komið fyrir að umsækjendum með yfir 90 þús. kr. mánaðarlaun hefur verið synjað um lán hjá Húsnæðisstofnun þrátt fyrir að fyrirhuguð íbúðakaup umsækjenda hafi ekki verið kostnaðarsöm. Ástæður synjunar gætu verið þær helstar að annaðhvort hafi góð mánaðarlaun umsækjenda ekki komið fram í umsókn eða skuldir umsækjenda fyrir séu það miklar að góð mánaðarlaun dygðu ekki.“ Og síðan er talað um það að 10% umsókna sem afgreiddar hafi verið hafi verið synjað.
Nú skulum við athuga t.d. þann mann sem var með 90 þús. kr. launin sem ég vitnaði í um daginn. Var farið með hann t.d. samkvæmt ákvæðum húsnæðislaganna þar sem segir, með leyfi forseta:
„Telji Húsnæðisstofnun að augljóst sé að umsækjandi geti með engu mótið staðið undir fjármögnun viðkomandi íbúðar skal skýra umsækjanda frá því. Húsnæðismálastjórn er þá jafnframt heimilt að krefjast ríkari ábyrgðar á láninu en að öðrum kosti synja um lánveitingu.“
Var þessi tiltekni maður með 90 þús. kr. launin kallaður aftur fyrir Húsnæðisstofnun og var krafist ríkari ábyrgðar af honum? Hér stendur í synjunarbréfinu: „Ástæður synjunar: Umsækjandi getur ekki staðið fjárhagslega undir þeim íbúðakaupum sem ráðgerð eru.“ Og síðan, með leyfi forseta: „Jafnframt þessu skal yður tilkynnt að ráðgjafarstöðin er að sjálfsögðu reiðubúin til viðræðna við yður um þau íbúðarkaup sem ætla má að samræmist greiðslugetu yðar og unnt er að mæla með lánveitingu til.“
Ég spyr hæstv. ráðh.: Er hann ekki reiðubúinn að gera úttekt á þessum hópi sem vísað er frá, sem úthýst er úr kerfinu, fær ekki aðgang að almenna kerfinu, og leggja fyrir Alþingi skýrslu um það á hvaða forsendum fólki er vísað frá almenna húsnæðiskerfinu? Ég segi: Ef 15% umsókna eru ekki lánshæfar eins og ráðherra upplýsir er nauðsynlegt að fá að vita um það hvort fólki sé úthýst í stórum mæli úr kerfinu á þeirri forsendu að það standi ekki fjárhagslega undir greiðslubyrði lána. Og þá er spurningin: Hvert á þetta fólk að leita? Þetta eru spurningar sem félmrh. hefur ekki fengist til að svara og það þýðir ekki að vísa þessu fólki á félagslega íbúðakerfið. Það er fjárhagslega svelt vegna þess að talið var að nýju húsnæðislögin mundu draga verulega úr eftirspurn eftir félagslegu húsnæði. En það er nú annað að koma í ljós.
Það er alvarlegt umhugsunarefni fyrir verkalýðshreyfinguna þegar lífeyrissjóðirnir halda fjárhagslega uppi húsnæðislánakerfinu. Á sama tíma og stjórnvöld lofuðu auknum lánsrétti og hagstæðum greiðslukjörum var dregið úr ríkisframlaginu til húsnæðismála. Það var skerfur stjórnvalda, það var skerfur hæstv. félmrh. til nýju húsnæðislaganna, að draga verulega úr ríkisframlaginu. En ríkisframlagið í Byggingarsjóð ríkisins er á þessu ári aðeins 1000 millj. kr. meðan það var 1300 millj. kr. á s.l. ári. Og það er auðvitað alvarlegt ef af 3,8-3,9 milljörðum sem renna inn í húsnæðiskerfið á þessu ári fara aðeins 400-500 millj. í félagslegar íbúðabyggingar. Og ég spyr: Er það ásættanleg niðurstaða fyrir láglaunafélögin, sem fjármagna stóran hlut af húsnæðislánakerfinu, ef þeirra fólki er í einhverjum mæli úthýst af því að það stendur ekki undir greiðslubyrði lána? Og er það ásættanleg niðurstaða fyrir verkalýðsfélögin að þetta fólk geti heldur ekki fengið aðgang að félagslega kerfinu af því að það er fjárhagslega svelt? Á sama tíma er fjármagn lífeyrissjóðanna gegnum húsnæðislánakerfið notað til að veita lán til þeirra sem eiga fyrir stórar skuldlausar eignir og vilja minnka við sig. Það má spyrja: Er þessi réttur á kostnað láglaunafólksins? Það er talið að þessi hópur geti verið 15% af heildinni og tekið til sín um 500 millj. af ráðstöfunarfé Byggingarsjóðsins. Ef þessi hópur vill minnka við sig er alveg sama þó þetta fólk fái nokkrar milljónir á milli í reiðufé við íbúaskipti. Það á engu að síður rétt á niðurgreiddu lánsfé úr húsnæðiskerfinu að upphæð 1200 þús. kr. sem það getur haft af vænar tekjur með því að ávaxta í hagstæðum skuldabréfum. Það kom einmitt fram í sjónvarpinu nýlega að það væri hægt að hafa 13 þús. á mánuði í hreinar tekjur af ávöxtun af þessum skuldabréfum.
Það má spyrja við þessar kringumstæður: Fyrst húsnæðiskerfið er aflögufært til þessara hópa, er þá rétt að svelta félagslega kerfið og úthýsa láglaunafólki meðan öðrum, sem eiga skuldlausar eignir, stendur til boða fjármagn lífeyrissjóðanna gegnum húsnæðiskerfið til þess að ávaxta í þessum hagstæðu skuldabréfum? Það er auðvitað hlálegt ef húsnæðiskerfið er nú fært um að ráðstafa hundruðum milljóna til skuldlausra íbúðareigenda, sem eignuðust auðveldlega sitt húsnæði með hjálp verðbólgu og óverðtryggðra lána, á sama tíma og sérstök fyrirgreiðsla til greiðsluerfiðleikahópanna, sem byggðu á umliðnum árum, er stöðvuð vegna fjárskorts. Ég spyr: Er ekki eitthvað að þessu kerfi þegar hægt er að setja miklar fjárhæðir í fólk sem á skuldlausar eignir en er að minnka við sig en ekki er hægt að veita frekari fyrirgreiðslu til greiðsluerfiðleikahópanna?
Við þessar aðstæður liggur fyrir að 2500-3000 félagslegar íbúðir vantar á næstu þremur árum og í áliti milliþinganefndar, undirrituðu m.a. af Halldóri Blöndal, kemur fram að eftirspurn eftir félagslegum íbúðum er langt umfram það fjármagn sem er til ráðstöfunar. Eftirspurn eftir félagslegum íbúðum og fjármagni úr Byggingarsjóði verkamanna er langt umfram það fjármagn sem er til ráðstöfunar. Samt eigum við nokkur hundruð milljónir sem við getum látið til hópanna sem eiga skuldlausu eignirnar. Boðskapur Halldórs Blöndals er bara: Fáum reynslu af nýja kerfinu og látum félagslegar íbúðir bíða. Hv. 2. þm. Norðurl. e. Halldór Blöndal hefur talað langt mál við þessa umræðu og auðvitað var ekki við öðru að búast í hans málflutningi en útúrsnúningum og rangfærslum um staðreyndir málsins. Hann forðast eins og hæstv. félmrh. að tala um kjarna málsins, gerir lítið úr biðtímanum sem þó skiptir miklu máli fyrir húsbyggjendur og íbúðakaupendur. Um fjármögnunina og fjárvöntunina hafði hann lítið að segja nema þá kannske helst að snúa út úr mínu máli. Og í ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals kom fram, með leyfi forseta:
„Jóhanna Sigurðardóttir hefur þá einföldu lausn, eins og ég skil hennar orð, að hún vill bæta tveimur milljörðum eða þremur, hvort heldur, í húsnæðiskerfið á þessu ári.“ Þetta er auðvitað ekki rétt farið með tölur og er eins og annað sem fram kemur í máli hv. þm. En kjarni málsins er sá að ef menn telja ekki rétt, t.d. vegna þensluáhrifa eins og hv. þm. Halldór Blöndal nefndi, að setja nauðsynlegt fjármagn inn í húsnæðiskerfið, þá var nauðsynlegt, hv. þm., að gera sér grein fyrir því strax. Gera sér grein fyrir því strax þegar frv. var hér til umræðu, áður en tekið var til við að lofa húsbyggjendum og íbúðarkaupendum því sem ekki er hægt að standa við. Kjarni málsins er sá sem stjórnvöld verða að gera upp við sig núna þegar við höfum þessi lög sem lofa fólki gulli og grænum skógum: Eru þau reiðubúin til þess að setja meira fjármagn inn í húsnæðiskerfið eða á að mæta fjárvöntun og lánsloforðum með lengri biðtíma?
Hæstv. félmrh. upplýsti hér fyrr í vetur, fyrir áramótin, í nóvember að mig minnir, í sjónvarpsþætti um nýju húsnæðislögin þegar settar voru fram efasemdir um að fjármögnunin stæðist: Að sjálfsögðu, sagði hæstv. félmrh., mundu stjórnvöld setja nauðsynlegt fjármagn inn í kerfið ef það kæmi í ljós að um fjárvöntun væri að ræða. - Nú fer hæstv. ráðh. bara undan í flæmingi. Vill helst ekki tala um fjárvöntunina þó hún blasi við, þó hann hafi sett hér fram tölur og upplýsingar sem staðfesta að um mikla fjárvöntun sé að ræða.
Hv. þm. Halldór Blöndal gerði hér að umræðuefni fyrr í dag samspil hárra raunvaxta og minnkandi kaupgetu og hann taldi sig geta afsannað mitt mál með því að vitna til kaupmáttar atvinnutekna í riti Þjóðhagsstofnunar. En það kemur því ekkert við, hv. þm., sem ég var að halda fram. Ég vil minna hv. þm. á það, ef hann hefur hlustað á umræðurnar um greiðslujöfnunina þegar hún var hér til umræðu fyrir tveimur til þremur árum síðan, að þá settu einmitt fulltrúar ASÍ, og ég veit að hv. þm. Halldór Blöndal ber mikla virðingu fyrir forustumönnum ASÍ, þeir settu þetta einmitt fram í sjónvarpi, áhrif og samspil hárra raunvaxta og minnkandi kaupgetu. Þm. hefur greinilega ekki skilið hvað ég var að sýna fram á, ég trúi ekki öðru en hv. þm. viðurkenni að háir raunvextir hafi veruleg áhrif á greiðslubyrði fólks og þar með kaupgetu. Ætlar hv. þm. að neita því? (HBI: Var ekki þm. að tala um að hækkun úr 2,5% í 3,5% skerti lífskjörin um 49%? Var það ekki það sem þm. var að reyna að segja?) Ég var að tala um það, hv. þm., (Gripið fram í.) ef ég kemst að fyrir hv. þm., hæstv. forseti. (Forseti: Ég bið um hljóð á fundinum. Það er aðeins ræðumaður sem hefur leyfi til þess að tala.) Ég var að sýna þingheimi fram á það og væntanlega helst hv. þm. Halldóri Blöndal, sem illa skilur málin, að háir raunvextir hafa áhrif á greiðslugetu og kaupmátt fólks. Og það sem ég var að leiða í ljós var hvaða áhrif raunvextir, hvert prósentustig til hækkunar, hafi á kaupmátt og þar af leiðandi greiðslugetu til að standa undir lánum.
Ég skal taka sem dæmi Sigtúnshópinn. Hv. þm. kannast vonandi við hann. Hann hefur til að mynda sýnt fram á að vegna misgengis launa og lánskjara á árunum 1983-1985 hafi húsbyggjendur og íbúðarkaupendur orðið að greiða 2,6 milljarða kr. í umframgreiðslur vegna misgengis launa og lánskjara, þar af 910 millj. kr. vegna hækkaðra raunvaxta. Ætlar hv. þm. síðan að halda því fram að raunvextir, háir raunvextir hafi ekki áhrif á greiðslugetu fólks? Ég hef haldið því fram að þriðjungur af láni forgangshópa eða 600-700 þús. kr. af 1700 þús. kr. láni sé horfið í verðhækkanir á s.l. 5-6 mánuðum. Og ef þetta fólk þarf þá að taka lán úr bankakerfinu til að standa undir útborgun, til að standa undir útborgun sem hefur hækkað úr 71% í 75%, ef það þarf líka að leita eftir skammtímaláni í bönkum með háum raunvöxtum, þá skerði það auðvitað greiðslugetu fólks og minnki kaupmátt þess. Svo einfalt er það, hv. þm.
Í stað þess að ræða málefnalega um þá ágalla sem hafa komið í ljós á nýju húsnæðislöggjöfinni og í stað þess að ræða af skynsemi um það hvernig eigi að taka á vandanum og mæta fjárvöntuninni eyddi hv. þm. löngum tíma í að ræða um kaupleiguíbúðir. Hann fór hamförum eins og hann gerir alltaf ef hann heyrir einhvers staðar nefnt orðið „búseti“ eða „kaupleiga“ eða „félagslegar íbúðir“. Þá þýtur hv. þm. upp hér í ræðustól og lætur öllum illum látum, oft án þess að hafa kynnt sér málið til hlítar. Það hefur berlega komið í ljós í þessari umræðu.
Af því að hv. þm. Halldór Blöndal og einnig hæstv. ráðh. telja að kaupleiguíbúðir séu verkalýðshreyfingunni á móti skapi og eins og hv. þm. Halldór Blöndal orðaði það „að honum sé ekki kunnugt um að verkalýðshreyfingin hafi tekið undir kaupleigutillögurnar," þá vil ég leiða verkalýðsleiðtoga marga hverja hér fram til vitnis um skoðun þeirra á kaupleiguíbúðum. Ég held að það sé nauðsynlegt, hæstv. forseti, þegar hér hefur komið fram bæði í málflutningi hæstv. ráðh. og hv. þm. Halldórs Blöndals að verkalýðshreyfingin vilji helst ekki vita af kaupleiguíbúðum. Það lágu þegar fyrir í maí 1986 skoðanir ýmissa málsmetandi verkalýðsleiðtoga.
Hvað segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir um kaupleiguíbúðirnar? Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir segir: Athyglisverðasta tillaga sem komið hefur fram lengi. Orðrétt segir Aðalheiður: „Þetta er tvímælalaust athyglisverðasta tillaga sem komið hefur fram lengi í húsnæðismálum. Tvímælalaust eru kaupleiguíbúðir mikið hagsmunamál fyrir lægst launaða fólkið sem fárra kosta á völ í húsnæðismálum. Ég tel það skyldu verkalýðshreyfingarinnar að athuga gaumgæfilega þennan kost.“
Hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson hefur þegar sagt það hér úr þessum ræðustól, þess vegna er óþarfi að vitna mikið til hans, en hann segir í þessu blaði sem ég er að vitna í að að hans mati séu kaupleiguíbúðir efstar á blaði.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, segir: Skoða ber þennan kost í fyllstu alvöru. Orðrétt segir hann: „Mér finnst hugmyndin athyglisverð. Í verkamannabústaðakerfinu eiga hópar í erfiðleikum með að fjármagna útborgun. Það er því mikill kostur ef hægt er að veita þessum hópum möguleika á mánaðarlegum greiðslum án útborgunar.“
Kristján Thorlacius, formaður BSRB, segir: Fagna tillögum um kaupleiguíbúðir.
Formaður Verkakvennafélagsins Framsóknar segir: Verkalýðshreyfingin á að stuðla að kaupleigukerfinu.
Guðríður Elíasdóttir, formaður Framtíðarinnar, segir: Brýnt að verkalýðshreyfingin kanni þennan kost.
Þessir formenn umræddra félaga, ásamt Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur, formanni Sóknar, fylgdu þessu eftir og skrifuðu milliþinganefndinni, skrifuðu hæstv. ráðh. og óskuðu eftir því að milliþinganefndin beitti sér fyrir því að leggja tillögur fyrir ráðherra til þess að koma í framkvæmd kaupleiguíbúðum.
Formaður milliþinganefndar upplýsti hérna áðan, jú að bréfið hefði borist nefndinni, en hann mundi ekki einu sinni eftir hvort nefndin hefði kynnt sér það, hvort bréfið hefði verið lesið. Ég tel þetta lítilsvirðingu við formenn þriggja stórra láglaunafélaga sem setja stóran hlut af fjármagni sinna lífeyrissjóða inn í húsnæðiskerfið. Og svo gæti komið í ljós að þeirra félagar, sem vegna lágra launa gætu ekki staðið undir greiðslubyrði lána, hafi ekki aðgang að húsnæðiskerfinu. Og svo er bara hundsuð beiðni frá formönnum þessara félaga um að skoða af alvöru kaupleigukerfið!
Hæstv. félmrh. gerði líka mikið úr því að sveitarstjórnarmenn vildu lítið vita af þessum tillögum. Hann taldi þetta allt skrum hjá Alþfl. í síðustu sveitarstjórnarkosningum að því er kaupleigutillögurnar varðar. Auðvitað er þetta allt vitleysa. (HBl: Þetta var allt vitleysa.) Ég get sagt hv. þm. það og hæstv. félmrh. að þar sem fulltrúar Alþfl. eiga aðild að sveitarstjórnum er í samstarfssamningi að finna ákvæði um að hrinda í framkvæmd kaupleigukerfinu. Ég get nefnt að t.d. á Akureyri, þar sem íhaldið er í samstarfi við Alþfl., eru ákvæði um að hrinda í framkvæmd kaupleigutillögunum. Það er í Kópavogi, það er í Hafnarfirði. Alls staðar þar sem Alþfl. hefur haft einhver áhrif er þetta sett inn í samstarfssamninginn. En hvað kemur í veg fyrir að hægt sé að hrinda þessu í framkvæmd? Hvað kemur í veg fyrir það?
Við þurfum að fá lagagrunn til þess að byggja á. Það þarf að setja lög um kaupleiguíbúðir. Við höfum gert tilraun til þess, við Alþýðuflokksmenn. Hér í fyrra þegar húsnæðislöggjöfin var til umræðu fluttum við brtt. Þær voru allar stráfelldar af hæstv. félmrh., af hv. þm. Halldóri Blöndal. Það væri auðvitað prófandi að flytja þessar till. einu sinni enn. Það gefst til þess gott tækifæri nú að láta á það reyna hvort menn séu tilbúnir að gera það sem t.a.m. fulltrúar stórra láglaunafélaga vilja, koma í framkvæmd kaupleiguíbúðum. Það væri athugandi að flytja brtt. við frv. hæstv. ráðh. sem nú liggur fyrir Alþingi til breytingar á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Það væri athugandi að flytja núna brtt. að því er varðar kaupleiguna.
Hv. þm. Halldór Blöndal kvartaði yfir því hér í umræðum fyrir nokkrum vikum síðan að við hefðum ekki flutt neitt lagafrv. um málið. Ef við flytjum aftur þessar brtt., þá gefst hv. þm. Halldóri Blöndal tækifæri til þess að segja afstöðu sína í atkvæðagreiðslu um málið, láta það koma í ljós hvort hann vilji styðja sveitarstjórnarmenn íhaldsins á Akureyri sem vilja hrinda í framkvæmd kaupleigunni, hvort hann vilji styðja þá í því með því að greiða fyrir því hér á Alþingi. Þeir hafa undirritað samstarfssamning um að koma þessu til framkvæmda. En málið er það að ég hef enga trú á því að þessar tillögur verði samþykktar meðan þessi ríkisstjórn situr að völdum. Það þarf að skipta um ríkisstjórn. Skipta um ríkisstjórn til þess að koma á kaupleigutillögunum, til þess að þær verði samþykktar hér á Alþingi.
Hv. þm. Halldór Blöndal kemur hér aftur og aftur í ræðustól, hvenær sem hann hefur tilefni til þess. Hvenær sem hann heyrir einhvern tala um Búseta eða félagslegar íbúðir, þá kemur hann hér og reynir að rakka niður kaupleigutillögur Alþfl. og spyr: Hvað margar á að byggja? Hvernig á að fjármagna þær? Hvað eiga sveitarfélögin að gera? Hvar eiga þau að fá fjármagn? Þetta stendur allt í tillögunni. Nú held ég að hv. þm. Halldór Blöndal ætti að taka sér tíma frá þingstörfum, svo sem eins og einn dag, hann mundi þá ekki tefja þingstörfin svona lengi eins og hann hefur gert að tala um þetta mál, taka sér nú tíma og lesa þessa tillögu. (JBH: Hann má ekki vera að því, það hefur allur tíminn farið í Sturlumálið.) Já, allur tíminn í Sturlumálið, en ég held að hann ætti nú samt að reyna að taka sér tíma og lesa þessa tillögu frá orði til orðs. Þar er að finna svör við öllum þessum spurningum. Öllum þessum spurningum sem hv. þm. hefur sett hér fram. Hverri einni og einustu, varðandi fjármögnunina, varðandi hvað margar íbúðir á að byggja, varðandi framkvæmdaaðila. Þetta stendur allt í tillögunni.
Herra forseti. Ég get farið að ljúka máli mínu. Ég vil þó aðeins fara nokkrum orðum um það sem fram kom í máli hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar hér áðan. Hann vildi ekki gera mikið úr þeirri gagnrýni sem fram hefur komið á kerfið en þó viðurkenndi hv. þm. veika punkta í samkomulaginu sem var félagslegi hlutinn. Það er alveg rétt, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, að það er mjög veikur punktur í þessu öllu saman. Ég tel mig hafa sýnt fram á það. Og ég skora nú á hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson að hann beiti sér fyrir því, t.d. inni í miðstjórn ASÍ, að verkalýðshreyfingin skoði þetta mál af alvöru og hvort ekki sé rétt að endurmeta á nýjan leik þær forsendur sem lágu að baki þessum lögum. Og eins, hv. þm., hvort ekki sé rétt að beina meira af því fjármagni sem er til staðar nú inn í félagslega kerfið ef sú er raunin að fólki er úthýst af því það getur ekki staðið undir greiðslubyrði lána í almenna kerfinu. Ef menn segja að það sé ekki til fjármagn, þá skulum við bara horfa á þessa hópa sem hér hafa hvað eftir annað verið nefndir, þessir sem eiga stóru skuldlausu eignirnar og geta tekið til sín nokkur hundruð milljónir af þessu fjármagni, það væri þá réttara að láta þau hundruð milljóna sem renna til þessara hópa inn í félagslega kerfið. Ég held að verkalýðshreyfingin ætti að skoða það af einhverri alvöru.
Hv. þm. telur að þriðjungur detti út. Þetta er auðvitað bara getspá. Eins og ég sagði áðan tel ég að þarna sé um stóra hópa að ræða sem hafa ekki treyst sér út í húsbyggingar eða íbúðarkaup á umliðnum árum en eru nú að koma og leggja inn umsóknir af því að þeir telja að hér sé komin mjög hagstæð húsnæðislöggjöf þar sem greiðslubyrði lána er mjög hófleg. Það er auðvitað ein skýringin á þeim fjölda umsókna sem um ræðir. Ég held að við getum ekkert gengið fram hjá því, hv. þm., að þær umsóknir sem fyrir liggja eru mælikvarði á þörfina. Og ég vil biðja hv. þm. að aðstoða mig í því, hvernig sem við förum að því, að gerð verði úttekt á þessum hópum sem hafa fengið synjanir og þessum afföllum sem menn eru að tala um þannig að við getum gert okkur þá betur grein fyrir vandanum, hvort hann felst í stórum mæli í því t.d. að fólki er úthýst af því að það stendur ekki undir greiðslubyrði lána.
Reyndar talaði hv. þm. um það að gera þyrfti sérstakar ráðstafanir fyrir þá sem ekki geta notfært sér kerfið. Nú er spurning, hv. þm., hvort ekki sé rétt að þú fylgir því eftir sem þú hefur sagt hér í ræðustól, að gerð verði úttekt á þeim afföllum og þeim synjunum sem þegar liggja fyrir, sem talið er að sé um 10-15%. - Er hæstv. félmrh. hér einhvers staðar nærri?
Ég er rétt að ljúka máli mínu en vil samt gera lokatilraun til þess, hæstv. ráðh., að reyna að fá fram svör við spurningum sem ég hef sett fram, ekki í einni ræðu, ekki tveimur, heldur reyndar í þrem ræðum og síðan áttum við hæstv. ráðh. orðastað í útvarpi fyrir skemmstu þar sem ég reyndi að fá fram svör við þeim spurningum sem ég tel nauðsynlegt að fram komi. En ekkert hefur gengið. Ég vil nú gera lokatilraun til þess að biðja hæstv. ráðh. að svara þessum spurningum:
Það er í fyrsta lagi hvort hann sé tilbúinn til að gefa Alþingi skýrslu um og gera úttekt á þeim hópum sem fá synjanir í almenna húsnæðiskerfinu, gera úttekt á þeim afföllum sem hann talar um, þessum 15% afföllum og þeim synjunum sem þegar liggja fyrir og þær ástæður sem að baki synjuninni liggja. Ég held að þetta sé veigamikil forsenda til þess að við getum bætt ágalla kerfisins og að við stöndum ekki frammi fyrir því að fólk í láglaunafélögunum fái ekki lán, ekki heldur úr lífeyrissjóðunum af því þeir hafa meira og minna kannske lokað fyrir sérstök lán til sinna sjóðfélaga, treysta á að þeir fái lán úr almenna kerfinu. Við getum bara ekki staðið frammi fyrir því að þessu fólki sé alls staðar úthýst og fái hvergi lán. Þess vegna spyr ég í fyrsta lagi um það.
Ég spyr hæstv. ráðh. í annan stað um þessa skýrslu sem á að liggja fyrir stjórn Húsnæðisstofnunar og hann á að hafa í fórum sínum sjálfur, skýrslu sem á að staðfesta langan biðtíma, sem á að sýna fram á fjármagnsþörfina, að hann leggi hana nú hér fyrir Alþingi eða a.m.k. fyrir þá nefnd sem núna er að fjalla um nokkrar breytingar á nýju lögunum um Húsnæðisstofnun. Hæstv. ráðh. gæti kannske upplýst um það hér og talað gleggra máli um biðtímann sem fyrir liggur, hvort hann geti staðfest það sem fram hefur komið um langan biðtíma, að biðtíminn stefni í að verða á þriðja ár núna í árslok. Ef ráðherra segir ekki eitt einasta orð um biðtímann hér í ræðustól, sem skiptir máli fyrir fólkið, þá lít ég svo á að hann samþykki það með þögninni sem hér hefur verið sagt um langan biðtíma. (Gripið fram í.) Ég var að vitna til þess áðan, ef hæstv. ráðh. hefur hlýtt á mitt mál, að Sigurður E. Guðmundsson upplýsti það fyrir skemmstu í útvarpi að biðtími vegna janúarumsókna væri allt fram til ársins 1988.
Að síðustu vil ég spyrja hæstv. ráðh. um það sem ég reyndi að gera á síðasta fundi þegar þetta mál var til umræðu, og ég bið hæstv. forseta forláts á því að ég skuli tefja tíma sameinaðs þings með síendurteknum spurningum um sama mál, en það verður að virða mér það til vorkunnar að hæstv. ráðh. svarar ekki því sem ég spyr hann hér um. Ég vil spyrja hann um það sem fram kemur hér í athugasemdum með lagafrv. um húsnæðismálin. Þar kemur fram, með leyfi forseta:
„Aðgerðir til lausnar á greiðsluerfiðleikum þeirra sem byggðu eða keyptu húsnæði árið 1980 og síðar. Nú þegar verði 300 millj. kr. til viðbótar þeim 200 millj. sem fyrir eru varið til fólks sem á í greiðsluerfiðleikum.“ - 300 millj. kr. til viðbótar.
Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því enn og aftur og vonast eftir svari: Hefur ríkissjóður staðið skil á þessum 300 millj.? Hefur hann staðið skil á þessu fjármagni, þessum 300 millj., eða er þetta fjármagn fengið úr Byggingarsjóði ríkisins og tekið af fjármagni til almennra útlána? Er ríkissjóður í skuld við Byggingarsjóð ríkisins að því er varðar þessa upphæð, 300 millj. kr.? Ég held að það sé nauðsynlegt að fá svar við þessu. Það vantar nógu mikið fjármagn inn í kerfið þó að Byggingarsjóður ríkisins eigi ekki að hafa af honum þessar 300 millj. og því vil ég spyrja um það í lokin hvort svo sé, að ríkissjóður skuldi Byggingarsjóði ríkisins þessa upphæð.
Að lokum, hæstv. forseti, treysti ég á það að hæstv. ráðh. svari mínu máli og þeim spurningum sem ég hef hér fram borið þannig að ég þurfi þá ekki að koma aftur hér í ræðustól og endurtaka þessar spurningar.