24.02.1987
Sameinað þing: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3454 í B-deild Alþingistíðinda. (3061)
307. mál, álit milliþinganefndar um húsnæðismál
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs um þingsköp í tilefni af því að það er runninn nýr dagur. Ég veit ekki hvernig öðrum hv. þm. líður eða starfsfólki hér í húsinu, en ég veit að ég er a.m.k. orðin mjög þreytt, en ég vil ómögulega missa af þessari umræðu og þar sem ég hef grun um að það séu a.m.k. tveir ef ekki þrír þm. á mælendaskrá enn þá og ég get ekki ímyndað mér annað en hæstv. ráðh. eigi eftir að taka til máls, a.m.k. saknaði ég svara við spurningum bæði frá sjálfri mér og öðrum þm., og ekki er ótrúlegt að fleiri vilji tjá sig um þetta mál, auk þess sem mér skilst að meiningin hafi verið að taka aðra skýrslu um húsnæðismál á dagskrá, vil ég nú spyrja hver sé meiningin um áframhaldandi fund, hvað sé ætlunin að hann standi lengi og sömuleiðis, ef meiningin er að ljúka þessu dagskrármáli, hvað knýi svo mjög á um það að ljúka þessari umræðu núna og hvort það megi ekki fresta henni þar sem nú er orðið svo áliðið.