25.02.1987
Efri deild: 43. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3492 í B-deild Alþingistíðinda. (3079)
273. mál, uppboðsmarkaður fyrir sjávarafla
Frsm. sjútvn. (Valdimar Indriðason):
Virðulegi forseti. Það er vegna orða hv. 8. landsk. þm. áðan um að hún hefði ekki mætt við umræðuna að ég leitaði og fann niðri í skúffu hjá mér punkta úr þeirri tölu sem ég hélt þá þar sem ég fjallaði um þessi mál. Ég vil láta það koma fram, þó það sé endurtekning, svo hún viti hvernig þau mál stóðu. Svo ég grípi ofan í, með leyfi forseta. Ég er búinn að ræða um markaðinn:
Þó að þessi markaður verði fyrst um sinn aðeins í Reykjavík og Hafnarfirði og e.t.v. fyrir norðan mun verða spurt um markaðsverðið frá öðrum stöðum á landinu sem engan markað hafa. Sé markaðsverð hærra en útgefið verð verðlagsráðs mun verða leitað mjög fast eftir því af seljendum afla að verðið verði til samræmis við markaðsverðið ef það er hærra. Þetta skulum við gera okkur ljóst strax í byrjun. Uppboðsmarkaðir yrðu því viðmiðun í verði fyrir þá staði sem ekki hefðu markaði, en frjálst fiskverð yrði það sem kæmi samfara og í kjölfarið. Þá væri ekki lengur þörf fyrir Verðlagsráð sjávarútvegsins. Þetta var mín skoðun á málinu og í viðbót við þetta: Svokallaðir fjarskiptamarkaðir hafa einnig verið í umræðunni. Helsti munur á þeim og uppboðsmarkaði er sá að veiðiskipin þurfa ekki að landa afla sínum í gegnum markað heldur fer fram sala á honum beint úr veiðiskipi til einstakra byggðarlaga eða fiskvinnslufyrirtækja fyrir ákveðið verð sem þau hafa boðið í farminn. Fjarskiptamarkaður eða markaðir hefðu upplýsingar um þau fyrirtæki sem vildu kaupa aflann og á hvaða verði og einnig veiðiskip sem vildu selja sinn afla í gegnum slíka markaði. Þessi tilhögun kæmi mjög til greina og ætti að geta verið mun ódýrari í rekstri en uppboðsmarkaður.
Nefndin ræddi þetta nokkuð og varð hún sammála um að með reglugerð með frv. yrði einnig gert ráð fyrir að leyfa mætti slíkan markað ef um það væri sótt þó að það sé ekki sérstaklega tekið fram í frv. sjálfu. Þannig kom algerlega fram það sem við ræddum í nefndinni um þennan möguleika, einnig varðandi fjarskiptamarkaðinn.