25.02.1987
Efri deild: 43. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3521 í B-deild Alþingistíðinda. (3103)

316. mál, flugmálaáætlun

Frsm. samgn. (Egill Jónsson):

Virðulegi forseti. Mér finnst satt að segja að þeir virðulegu alþm. sem hér hafa talað séu of viðkvæmir fyrir næstu alþingiskosningum. Ekki veit ég hvernig kann að standa í bólið hjá þeim sem þar taka þátt í leik, en ekki finnst mér hins vegar þessi umræða vera sterk. Það verð ég að segja.

Það er talað um með mikilli vorkunnsemi að Egilsstaðabúar þurfi að fara að greiða flugvallagjald. Ég held að þetta sé álíka hátt flugvallagjald og var lagt á þá, þegar búið er að framreikna það, það hefur staðið lengi óbreytt, og man ég ekki eftir neinni vorkunnsemi frá þeirri tíð.

Mér finnst líka einkar athyglisvert, þegar verið að tala um kosningamál, þegar verið er að tala um þau málefni sem hæstv. samgrh. hefur lagt fyrir. Ég fæ ekki séð að það sé hægt að líta á þau þannig því að t.d. varðandi vegáætlun er einungis skipt mörkuðum tekjustofnum. Því hygg ég að sé hægt að finna fordæmi fyrir, og m.a. frá þeim tíma sem vinstri flokkarnir hafa stjórnað á Alþingi, að hafi verið skipt meira en mörkuðum tekjustofnum.

Það er eins með hafnaáætlun sem hér hefur verið lögð fram til kynningar á Alþingi og m.a. stjórnir hafnanna skv. hafnalögum eiga eftir að fjalla um. Hún er vitanlega ekki lögð fram hér nema til kynningar. Ég hygg að það hefði þótt óviðeigandi að þeirri skyldu hefði ekki verið sinnt að kynna hana á Alþingi jafnhliða því að hún væri lögð fyrir stjórnir hafnanna eins og vera ber skv. hafnalögum. Þannig er það að vissulega hefði verið auðvelt að setja upp meiri kosningaprógrömm í kringum þessar áætlanir en gert hefur verið.

En ástæðan fyrir því að ég fór sérstaklega að kveðja mér hljóðs byggist á þeim talnaforsendum sem frv. byggir á og þá sérstaklega með tilliti til þess að skýra betur afstöðu mína og meiri hlutans til þeirrar tillögu sem hér hefur verið lögð fram um að skilyrða ríkissjóð til að leggja fram ákveðið fjármagn í þessa flugvallaáætlun. Skal ég reyna að hafa þetta bærilega skýrt.

Miðað við þær tölur sem eru birtar í frv. og eru orðnar ríflega ársgamlar þyrfti 56,6 millj. úr ríkissjóði. Ef tölurnar eru hins vegar framreiknaðar til núvirðis og þá bæði kostnaðurinn við áætlunina og líka tölurnar væri þörf ríkissjóðs 65,7 millj. kr. Þessar tölur eru byggðar, eins og ég sagði áðan, á farþegafjölda frá árinu 1985. Rauntölur sem fjárlagagerðin byggist á miðað við það sem var inn komið níu fyrstu mánuði ársins að viðbættri hækkun um 6,5% gefur hins vegar til kynna hver fjárlagatalan er. Það er einfaldlega það sem ég var að segja frá. Ef þær forsendur væru lagðar til grundvallar, þ.e. forsendur fjárlaga sem byggðust á rauntölum fyrstu ellefu mánuði ársins, væru tekjurnar af flugvallagjaldinu, sem hafa runnið til ríkissjóðs, 136 millj. kr. og þar með lækkaði fjárlagaþörfin úr ca. 66 millj. kr., eins og hún er og ég hef áður lýst, niður í 40 millj. kr. Hér er einfaldlega um nýrri viðmiðun að ræða en frv. gerir ráð fyrir. Þá er ekki gert ráð fyrir neinum uppreikningi öðrum en verðlagsuppreikningi, ekki magnuppreikningi á aðra tekjuliði sem frv. kveður á um þannig að þessi mismunur, miðað við fjárlagaforsendur, yrði m.a.s. innan við þessar 40 millj.

Þetta er einfaldlega það sem ég var að bera saman áðan og ber hagsýsluna fyrir. En þetta skiptir í rauninni ekki máli að öðru leyti en því að auðvitað kemur það í hlut ríkissjóðs og vitanlega verður tekin um það ákvörðun þegar fjárlög eru afgreidd hverju sinni hvað mikið þarf að koma úr ríkissjóði til að jafna markaða tekjustofna annars vegar og útgjöld flugmálaáætlunar hins vegar. Þetta er það sem verður tekin ákvörðun um við fjárlagagerð og það er nákvæmlega sama hvaða skuldbindingar verða settar inn í þetta frv. gagnvart ríkissjóði.

Það er út af fyrir sig rétt og staðfestir þetta, sem hefur komið fram hjá hv. þm. Skúla Alexanderssyni, að svona viðmiðanir hafa oft og tíðum reynst haldlausar, en það er hins vegar hægt að nefna um það dæmi að áætlanir ekki mjög ósvipaðar þessum hafa haldið sínum hlut. Það er hægt að nefna um það fleiri en eitt dæmi þó að ég geri það ekki hér.

Þetta fannst mér nauðsynlegt að kæmi fram við umræðuna þannig að menn gætu fengið að vita á hvaða talnagrunni ég hef byggt minn málflutning.