26.02.1987
Sameinað þing: 56. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3549 í B-deild Alþingistíðinda. (3135)

277. mál, afnám skyldusparnaðar ungmenna

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Ég varð satt að segja nokkuð undrandi þegar ég sá fyrirsögn þessarar þáltill. um afnám skyldusparnaðar. En hv. 3. þm. Reykv. hefur nú mildað það nokkuð með ræðu sinni með því að tala um húsnæðisreikninga og að þetta séu orðin nokkuð gömul lög. Það er að vísu rétt eins og hann sagði að þetta var endurskoðað að mig minnir 1980 og að sjálfsögðu þarfnast svona lagað alltaf endurskoðunar og breytinga. Ég vil ekki mótmæla því. En það sem ég vildi leggja áherslu á er að gildi þessa sparnaðar er skyldan. Ég skal taka undir að hækkun vaxta á húsnæðisreikningum o.s.frv. er æskileg og góð. En skylduna má ekki afnema. Mikið lifandis ósköp vildi ég að þessi skylda hefði hvílt á mér svona tala nú bara gamlir menn - að þessi skylda hefði hvílt á mér þegar ég var ungur.

Ég var í ein 12-14 ár í stjórn Framkvæmdanefndar byggingaráætlunar og fékk það hræðilega verkefni að velja umsækjendur, það þurfti að taka einn af hverjum tíu, og svo í verkamannabústöðunum. Þar skáru sig úr hjón sem af báðum hafði verið tekinn skyldusparnaður. Þau áttu fyrir útborgun. En ótrúlega margir, sem höfðu sæmilega góðar tekjur, höfðu ekkert fé til útborgunar. Síðan maður varð var við þetta, þá heldur maður ákaflega fast í þennan skyldusparnað og ég held að hann hafi ótrúlega mikið gildi. Þó að það sé komið nýtt húsnæðismálakerfi, og það til mikilla bóta, þá þarf að leggja fram eigið fé engu að síður, það er ekki 100% lán, og þar skera þeir sig yfirleitt úr sem hafa verið á skyldusparnaði.

Hæstv. félmrh. minntist á slælega innheimtu og það gladdi mig mjög að gerðar hafi verið ráðstafanir til að innheimta þetta. Það er nefnilega iðulega að ungir menn koma kannske á skrifstofu Dagsbrúnar og segja: Gæti ekki Dagsbrún innheimt fyrir mig skyldusparnað? Maður kann nú orðið á þetta og segir: Var hann tekinn af þér? Nei, hann var það að vísu ekki, en það er skylda að taka hann. Og maður spyr kannske ungt verkafólk hvort það sé yfirborgað eitthvað og það svarar: Nei, það heitir nú ekki. Það er að vísu samkomulag um að það sé ekki tekinn af mér skyldusparnaður. - Innheimtan hefur verið í ákaflega miklum ólestri og það gleður mig mjög að félmrh. er búinn að gera ráðstafanir til bættrar innheimtu.

Ég tók eftir því í ræðu hv. 3. þm. Reykv. að það er endurskoðun og breyting sem hann hefur í huga. En fyrir alla muni: Afnemum ekki skylduna. Það getur vel verið að það gangi í þá sem ungir eru, kannske 18, 19, 20 ára, að afnumin sé skylda þeirra til sparnaðar. En þegar lengra líður, þegar þeir standa frammi fyrir heimilisstofnun, þá gjörbreytir það högum þeirra hvort þessi skylda um ákveðinn sparnað hefur verið eða ekki. Ég vil þakka hæstv. félmrh, fyrir að hafa gert ráðstafanir til bættrar innheimtu, sem hefur verið í megnasta ólestri, ég hef orðið var við það að hún er nú mun betri. En fyrir alla muni, og hef ég sjálfan mig í huga, það verður svo um margan sem vill afnema skyldusparnaðinn í dag á ungu fólki að þeir munu segja eins og ég: Mikið hefði nú verið gott ef ég hefði verið í skyldusparnaðinum. Þetta skiptir bókstaflega hamingju fólks, þegar komið er að ákveðnum þætti í lífi þess.