26.02.1987
Sameinað þing: 56. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3550 í B-deild Alþingistíðinda. (3136)
277. mál, afnám skyldusparnaðar ungmenna
Flm. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þær undirtektir sem till. mín hefur hér fengið. Menn telja rétt að ræða þetta mál. Ég tel að þetta sé nú ekki frekar en önnur mannanna verk þannig að það hljóti að standa óbreytt um aldur og eilífð. Þetta er mál sem þarf auðvitað að skoða og meta í ljósi breyttra aðstæðna, og verulega breyttra frá því sem var þegar skyldusparnaðurinn var settur á.
Öll rök hv. 7. þm. Reykv. eru rétt í þessu máli. Þau eru öll rétt. Þau rök sem ég flutti hér áðan og hæstv. félmrh. eru reyndar líka rétt. Þetta þarf einfaldlega að vega og meta saman í rólegheitum.
Ég hef orðið var við það þegar ungt fólk kemur út á vinnumarkað og það er á sumrin aðallega og það er fleira ungt fólk í skólum núna en var fyrir 30 árum, miklu fleira ungt fólk í skólum, ég hef orðið var við það þegar þetta fólk kemur út á vinnumarkað að því finnst að það sé illa á móti sér tekið. Það sé verið að taka þetta og taka hitt. Og það tekur dálítinn tíma að gera þessu fólki grein fyrir því að t.d. lífeyrisgjöldin, sem verið er að taka af fólki, er í raun og veru ekki verið að taka af því. Þetta er eign sem fólkið á, en það er verið að geyma hana með tilteknum hætti. Sama er um stéttarfélagsgjöldin. Maður verður var við það þegar krakkar eru að koma út á vinnumarkaðinn eftir skóla að þau eru að grenja yfir því að það sé verið að taka af þeim stéttarfélagsgjöld og maður gerir þeim grein fyrir því til hvers er haldið uppi stéttarfélagi, til hvers er haldið uppi verkalýðsfélagi. Og sama er að segja um skyldusparnaðinn. Ég held að það sé æskilegt að við finnum leiðir til þess að fólk finni sig velkomið þegar það kemur út á vinnumarkaðinn jafnvel þó um skemmri tíma sé.
Mér finnst þess vegna koma til greina í þessu sambandi að velta því fyrir sé t.d. hvort það á að lækka skyldusparnaðinn og fækka undanþágunum. Undanþágufarganið er mjög alvarlegur og erfiður baggi á Húsnæðisstofnun ríkisins. Það eru tugir þúsunda umsókna sem koma til Húsnæðisstofnunar ríkisins, tugir þúsunda pappíra, fjöldi manna sem er í því að afgreiða þessa pappíra út og suður vegna þess að fólk er að biðja um undanþágur sem það á, fólk sem hefur verið í skóla að sumri til sækir um undanþágur þegar kemur fram yfir áramót. En því breyttum við með lögum sem sett voru hér á Alþingi 1985, og ég hygg að ég hafi átt dálítinn hlut í að voru sett, að undanþágunum að því er varðar skólafólk var breytt.
Ég held að þetta undanþágufargan eins og það er rekið af hálfu Húsnæðisstofnunar ríkisins sé að verða mjög dýrt og stofnuninni þungt í skauti. Ég hefði viljað einfalda þetta þannig að Húsnæðisstofnun ríkisins þyrfti ekki að vera með alla þessa skriffinnsku í kringum skyldusparnaðinn, t.d. með því að lækka skyldusparnaðarhlutfallið eða breyta því, hafa það jafnvel mismunandi, og fækka í staðinn undanþágunum og skera niður skriffinnskuna sem er gífurlegt apparat orðið á vegum Húsnæðisstofnunar ríkisins. í fskj. með till. minni birti ég hæstaréttardóma sem hafa fallið út af þessum þessum málum þar sem menn geta áttað sig á því, hv. þm., hvílík flækja þetta er, oft út af mjög litlum upphæðum.
Ég held að það sé einnig rétt að nefna það í þessu sambandi að innheimtan á þessu máli hefur verið mjög slæleg og mjög mismunandi. Unglingarnir hafa kvartað undan því að hún sé mismunandi. Það hefur í mörg ár verið rætt um það að skyldusparnaður sé lögtakskræfur rétt eins og orlofskröfur. í mjög mörg ár. Ef það er ætlun hæstv. félmrh. að láta það sama ganga yfir skyldusparnaðinn og orlofsféð, þá er rétt að drífa hér inn frv. í þinginu, helst á morgun, og klára það áður en þing fer heim því að það þarf lagabreytingu til þess að þetta geti gengið. Og ég er viss um að við náum saman um það að koma slíku frv. hér í gegn vegna þess að við viljum láta eitt yfir alla ganga í þessu efni.
En eins og ég sagði, herra forseti, till. er flutt til þess að koma málinu hér á dagskrá. Ég tel að það eigi að vega þar forsendur allar og meta. Málið er ekki einfalt heldur flókið. Það eru margar hliðar á þessu máli, m.a. gífurlegir fjárhagslegir hagsmunir. Allt þetta skulum við skoða en við skulum ekki gefa okkur það að þetta, frekar en önnur mannanna verk, sé með þeim hætti að það hljóti að standa 100% óbreytt um aldur og eilífð.