28.10.1986
Sameinað þing: 9. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

20. mál, samningur milli Íslands og Bandaríkjanna

Frsm. meiri hl. utanrmn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Ég vil geta þess strax að ég er ekki frsm. allrar nefndarinnar heldur meiri hl. nefndarinnar, sex nefndarmanna, en einn skilar séráliti eins og hv. þm. sjá á borðum sínum.

Nefndin hefur rætt málið á tveimur fundum frá því að það var hér til fyrri umr. og auðvitað er málið margrætt áður í utanrmn. Raunar var þetta plagg rætt í nefndinni áður en það var kunngjört almenningi þar sem nefndarmenn urðu sammála um að sú málsmeðferð væri rétt að málið gengi til Alþingis til samþykktar eða synjunar. Um það voru nefndarmenn allir sammála áður en málið var flutt í hv. Sþ.

Eins og menn minnast urðu allmiklar og snarpar umræður um þetta mál hér við fyrri umr., ekki nema gott eitt um það að segja, en þar komu fram ýmsar óskir um nánari skýringar og athuganir sem embættismenn utanrrn. síðan hafa unnið að og skal ég með fáum orðum lýsa nokkru af því sem þar kemur fram og rætt var á fundi nefndarinnar í gærmorgun.

1. 4. gr. kom mjög mikið til umræðu. Það er um hana að segja að mjög gaumgæfileg athugun hefur farið fram á því hvort um geti verið að ræða nokkur gildandi íslensk lög sem stangist á við samninginn. Niðurstaðan er sú að svo sé ekki, enda mundi það áreiðanlega vera komið fram í dagsljósið ef um eitthvað slíkt væri að ræða. En af þessari ástæðu þykir ekkert því til fyrirstöðu að Alþingi taki afstöðu sína til samningsins með þál. og það þurfi ekki að vera lög.

2. Í nefndinni var upplýst að flutningamagn sjóleiðis til og frá Íslandi á vegum varnarliðsins árið 1985 hefði numið 11 700 smálestum, en árið 1983 mun þessi tala hafa verið 12 800 lestir.

3. Spurt var um hvernig gera mætti ráð fyrir að hagað yrði samráði ef íslensk og bandarísk stjórnvöld þyrftu að ákvarða hvað talist gæti sanngjarnt farmgjald íslensks skipafélags skv. 1. tölul. samkomulagsins sem er á fskj. 2 með samningnum sjálfum. Því var lýst yfir við meðferð málsins að af Íslands hálfu væri gengið út frá því að varnarmálaskrifstofan og eftir þörfum verðlagsyfirvöld mundu fjalla um málið í samvinnu við hlutaðeigandi bandaríska aðila og verður það að teljast eðlilegt.

4. Aflað var upplýsinga um eða skýringa á afstöðu Rainbow-skipafélagsins til samningsins og lögð fram fréttatilkynning sem félagið hafði gefið út þar að lútandi. Efni hennar hafa menn kynnst, en niðurstaðan er að félagið mótmælir ekki þessum samningi.

5. Upplýst var að áhugi hefði komið fram á að haldið yrði áfram að nýta Njarðvíkurhöfn þótt íslensk skipafélög tækju við meiru af flutningunum og hefur hæstv. utanrrh. lýst yfir að hann hafi bæði áður og muni áfram beita sér fyrir því að svo verði. Að því er Eimskipafélagið snertir, eina félagið íslenska sem annast hefur flutning fyrir varnarliðið að undanförnu, liggur fyrir að það stefni að því að nota Njarðvíkurhöfn ef það fær aukna flutninga og raunar hefur það komið fram í blaðafregnum sem nefndin fékk og Eimskipafélagið staðfesti að réttar væru.

6. Við fyrri umræðu málsins vék hv. 1. þm. Reykv., fyrrv. fjmrh., að tollskjölum og tollafgreiðslu. Fram komu upplýsingar varðandi þessi atriði, m.a. að lyklar sem fela í sér vörulýsingu á farmskírteini standi ekki í vegi fyrir því að farmflytjandi viti jafnan hvers konar varning um er að ræða, enda upplýstist það raunar líka hjá hæstv. núv. iðnrh. í umræðunni að þetta væri allt í lagi nú þótt það hefði kannske ekki verið það áður. Einnig kom fram að við flutning á varningi sem er hættulegur á einhvern hátt sé fylgt venjulegum alþjóðlegum reglum sem íslenskar reglur útgefnar af Siglingamálastofnun eru í samræmi við.

7. Vikið hafði verið að þýðingu samningsins á íslensku í umræðunum og raunar líka í nefndinni. Fram hefur komið staðfesting löggilts skjalaþýðanda á að hvergi sé um að ræða ranga þýðingu, einungis álitamál eða smekksatriði eins og jafnan vill verða. Samt sem áður er gert ráð fyrir að utanrrn. skoði nánar einstakar ábendingar, sem fram hafa komið bæði í umræðunni á dögunum og eins í nefndinni, áður en hin endanlega íslenska þýðing verður send til bandarískra stjórnvalda.

Samningstextinn var undirskrifaður eingöngu á ensku eins og menn vita þar sem hætta var talin á að það gæti tafið fullnaðarafgreiðslu málsins ef dráttur yrði á staðfestri íslenskri þýðingu sem tekið hefði nokkurn tíma, en eins og menn vita stóð fyrir dyrum að þinghlé yrði í bandaríska þinginu og öldungadeildin þurfti að staðfesta samninginn ef hann hefði átt að geta tekið gildi fljótlega. Það má kannske segja að eðlilegra og skemmtilegra væri í tvíhliða samningum að þeir væru gerðir á báðum málum eins og oft er tíðkað, en hins vegar eru alþjóðasamningar oft samþykktir einungis á erlendu máli eins og menn vita og íslenska þýðingin hefur þannig ekki lagagildi.

Æskilegt er eftir þessa ítarlegu meðferð að mál þetta fái lokaafgreiðslu og að fullgilding samningsins geti farið fram nú þegar á morgun t.d. ef till. verður samþykkt í dag. Þegar fullgildingin hefur farið fram með þeim hætti að aðilar skiptist á fullgildingarskjölum hér í Reykjavík verður auglýst eftir útboðum þeirra í þá flutninga sem samningurinn tekur til með eins mánaðar útboðsfresti. Þar með munu íslenskum skipafélögum á ný opnast leiðir til eðlilegrar hlutdeildar í þessum flutningum.

Í samræmi við það sem hér segir hefur meiri hl. nefndarinnar skilað stuttu nál. svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Málið hefur verið rætt ítarlega í nefndinni, bæði áður en það kom formlega til meðferðar og nú eftir að vísað var til nefndarinnar samningi um lausn þess.

Á fundum nefndarinnar voru gefnar upplýsingar um þau atriði sem rædd voru við fyrri umræðu og liggja þau nú ljós fyrir.

Þar sem hér er um að ræða hagstæða lausn á erfiðu vandamáli telur meiri hl. nefndarinnar einsýnt að samþykkja beri tillöguna.

Minni hl., Hjörleifur Guttormsson, mun skila séráliti.“