26.02.1987
Sameinað þing: 56. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3562 í B-deild Alþingistíðinda. (3146)

315. mál, varnir gegn mengun hafsins við Ísland

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil lýsa stuðningi við þessa till. sem tekur á mjög mikilvægu máli og hættulegu. Í október s.l. bar hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir fram fsp. til hæstv. utanrrh., svohljóðandi, með leyfi forseta:

1. „Hefur ráðherra látið kanna hvaða áhrif stækkun kjarnorkuversins í Dounreay á Skotlandi getur haft á Norður-Atlantshafið og þá sérstaklega með hliðsjón af losun geislavirkra úrgangsefna í hafið?

2. Hefur ráðherra gripið til einhverra aðgerða í þessu máli?"

Svar ráðherra var á þá leið að hann hefði leitað umsagnar um málið hjá Hafrannsóknastofnun, hjá sérfræðingi ríkisstjórnarinnar um kjarnorkumálefni, prófessor Magnúsi Magnússyni, hjá Geislavörnum og hjá Siglingamálastofnun, en svörin höfðu ekki borist honum enn og því gaf hann enga afstöðu upp til málsins. Hins vegar kom fram í umræðum um þessa fsp. að þingmannaráð norðvestursvæðisins, þ.e. samstarfsráð Alþingis og Lögþings Færeyinga og Landsþings Grænlendinga, hefðu ályktað um þetta mál á fundi á Selfossi á s.l. hausti.

Ég hygg að sú grg. sem hér liggur fyrir og var vitnað til áðan hafi í raun sprottið upp af þessari fsp. og er það vel. Það er mjög nauðsynlegt að halda þessum málum í umræðu og þess vegna er ráðstefna æskileg, en hins vegar er okkur nauðsynlegt og er það jafnvel enn brýnna að vera vel á verði og mótmæla kröftuglega.

Ég fagna því þeirri yfirlýsingu sem hæstv. félmrh. gaf hér áðan að við skulum eiga þátt að mótmælum ásamt öðrum Norðurlandaþjóðunum. Ég tók eftir því að hann talaði um umhverfismálaráðherra Norðurlandanna og þá hlaut ég að sakna þess að Íslendingar eiga engan umhverfismálaráðherra. Umhverfismálin hjá okkur eru dreifð á líklega ein sjö ráðuneyti. Öll slík dreifing miðar auðvitað að því að kljúfa málin niður í litlar einingar þar sem heildarábyrgð og yfirsýn er erfið. Ég held að þetta gæti orðið okkur góð áminning um mikið átak í umhverfismálum til að koma þeim öllum undir einn hatt.

Það er okkur brýn nauðsyn að lýsa sterklega yfir mótmælum við þessar aðgerðir í Skotlandi vegna þess, eins og komið hefur fram hér í umræðum, við eigum allt okkar líf og afkomu undir þeim fiski sem syndir í sjónum umhverfis Ísland og því að hann sé heilbrigður og ætur.