02.03.1987
Efri deild: 45. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3582 í B-deild Alþingistíðinda. (3172)
197. mál, veiting prestakalla
Karl Steinar Guðnason:
Virðulegi forseti. Þeir sem hér hafa talað hafa lagst gegn þessu frv. og með kúnstugum rökum í sumum tilvikum. Einn segir að prestskosningar séu af leiðinlegu tagi og annar segir að þær séu skemmtilegt fyrirbrigði. Ég hef þá skoðun að með því að samþykkja þetta frv. sýnum við kirkjunni þá virðingu sem henni sæmir.
Þetta mál hefur verið til umræðu í mjög langan tíma og niðurstaða sú sem komist hefur verið að er gerð af nefnd sem skipuð var 20. júlí 1977. Nefndin skilaði áliti 1978. Síðan hefur þetta mál verið að þvælast fram og til baka í Alþingi og engin ákvörðun verið tekin. Málið hefur ekki komist úr nefnd. Er það vissulega til háðungar.
Þau lög sem eru í gildi í dag eru frá 1915 og þykir mér ástæða til að vekja athygli á því að allmikil reynsla er komin á prestskosningar. Það eru ekki bara prestar sem eiga að hafa skoðun á því hvernig með þessi mál er farið. Það varðar ekki aðeins prestana hvernig valið er í embætti heldur líka fólkið í söfnuðunum. Það hefur verið mikil óánægja með það fyrirkomulag sem ríkt hefur og mér þykir undrum sæta að þetta er eina embættið fyrir utan stjórnmálin sem kosið er til. Það mætti hugsa sér að kjósa sýslumenn og dómara og fleiri eins og gert er í Ameríku, en við gerum það ekki. Hins vegar eru prestar kjörnir hér og þeir sitja síðan í sínu embætti þar til þeir komast á eftirlaunaaldur. Það er sjálfsagt einsdæmi líka að menn séu kosnir í eitt skipti fyrir öll. Vissulega eru ágallar á því.
Annars staðar, og þá á ég við nágrannalöndin, er kosningafyrirkomulagið ekki eins afgerandi og hérna. Það er vísað í grg. til þess hvernig þetta er á Norðurlöndum. Í Danmörku og Noregi er fyrirkomulagið með þeim hætti að umsækjendur um prestsembætti senda umsóknir sínar til kirkjumálaráðuneytanna sem senda þær viðkomandi safnaðarráðum. Safnaðarráð greiðir atkvæði um umsækjendur og sendir niðurstöðu til viðkomandi biskups sem sendir kirkjumálaráðuneyti ásamt umsögn en ráðherra veitir.
Í Svíþjóð skiptast á almennar safnaðarkosningar líkt og hér nú og bein veiting. Með því er reynt að gefa veitingarvaldinu möguleika á að færa menn til í embættum eftir því sem þörf er á. Ég tel að það sé nokkur þörf á því að geta fært menn til í embættum eins og þar er gert og væntanlega opnast möguleiki fyrir því síðar.
En ég vek athygli á því að það frv. sem hér liggur fyrir er árangur af nefndarstörfum sem byggðust á samkomulagi og nú hafa biskup og kirkjuráð lagt á það mikla áherslu að fá afgreiðslu á þessu máli, telja að það verði að koma þessari umræðu frá, breyta fyrirkomulaginu. Ég virði þann vilja og greiði þess vegna þessu frv. atkvæði mitt. Það má hugsa sér að þetta verði gert til reynslu. Engin lög eru eilíf og ef þetta gefst ekki eins og skyldi má vissulega breyta því aftur.
Það er kostur við að færa kjörið yfir í sóknarnefndirnar að því leyti að það gefur sóknarnefndunum aukið vægi og býst ég við að það verði þá kirkjunnar starfi til góða. Ég vænti þess að frv. verði samþykkt.