02.03.1987
Efri deild: 45. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3583 í B-deild Alþingistíðinda. (3173)
197. mál, veiting prestakalla
Valdimar Indriðason:
Virðulegi forseti. Það frv. sem hér liggur fyrir er búið að vera lengi í smíðum, eins og kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, og að sjálfsögðu verða nokkuð deildar meiningar um hvort fara skal eftir því sem hér er lagt til eða leitað annarra leiða. Ég held að við getum öll verið sammála um að sú tilhögun sem höfð hefur verið á prestskosningum hefur valdið mörgum leiðindum og meiðslum, en hins vegar er það líka að margir vilja hafa visst frjálsræði í þeim efnum.
Ég er ekki viss um að hér sé valin rétta leiðin. Það er talað um að það séu sóknarnefndir sem taki að sér að velja prest fyrir söfnuðinn og í flestum tilvikum eru það fimm manns sem eru í sóknarnefnd sem kosin er á sérstökum safnaðarfundi. Ég býst við að það séu frekar fáir sem taka þátt í þeirri kosningu með fullri virðingu fyrir sóknarnefndarmönnum sem kosnir eru. Þetta verður svo kjörnefndin sem á að kalla til prest og 2/3 af nefndinni geta ráðið þar úrslitum.
Það sem ég vil benda á við þessa umræðu, en ég ætla ekki að leggjast á móti þeirri breytingu sem hér er lögð til, er að athuga ætti mjög alvarlega að það yrði fjölmennari hópur sem að kjörinu stæði. Þar sem eru stórar sóknir, t.d. hérna í Reykjavík og í stærri bæjarfélögum, er þetta mikið vandaverk og vandmeðfarið hjá þeim fáu aðilum sem þarna eiga um að fjalla. Mér dytti í hug að það yrði fjölgað í þessum hópi sem sæi um að gera tillögu um prest til viðkomandi sóknar, eða sóknarnefndin yrði þá stækkuð þegar svo bæri undir, að það væru sem sagt fleiri en þessir fimm aðilar sem þarna fjölluðu um. (KSG: Það er gert ráð fyrir því.) Það er gert ráð fyrir því, en meginreglan á að vera sú að sóknarnefndin sjálf geri þetta ásamt varamönnum. Þess vegna vildi ég leggja áherslu á það og benda á við þessa umræðu að venjulegar prestskosningar eins og eru núna mættu hverfa að mínu mati, en það yrði að vera fjölmennur hópur sem fjallaði um hverjir kæmu til með að hljóta stöðu prests í stórri sókn. Það er of fámennt lið sem um þetta fjallar skv. frv.