28.10.1986
Sameinað þing: 9. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (318)

20. mál, samningur milli Íslands og Bandaríkjanna

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Við Alþýðuflokksmenn höfum lýst því yfir að við erum sammála þessum samningi og það er vegna þess að við teljum hann viðunandi lausn á þeim deilumálum sem verið hafa uppi milli Bandaríkjanna og íslenskra stjórnvalda um flutninga varnarliðsins.

Það kemur fram hér í orði nokkur andstaða gegn þessum samningi og ég verð að játa það að mér finnast þær raddir ansi hjáróma, einkum ef tekið er tillit til þess að sá stjórnmálaflokkur, Alþb., hefur setið í ríkisstjórn hvað eftir annað og látið sér lynda veru varnarliðsins hér og mikil samskipti. Og ég fullyrði það að þegar þeir hafa verið í ríkisstjórn hafi framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli verið með meira móti. Þá var t.d. síðast samþykkt að byggja flugskýli, það var samþykkt að byggja flugstöð og fleira og fleira. Þeir sögðust að vísu vera á móti flugstöðinni og er það óskiljanlegt í ljósi þess að hún var byggð m.a. til þess að aðskilja farþegaflug og herflug sem verður til þess að einangra varnarstöðina frá farþegafluginu (SJS: Er þetta á dagskrá?) þannig að þetta rekur sig hvað á annað. Það er greinilega óþægilegt fyrir þá sem sátu í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens að hlusta á það að þeir meti hugsjónir sínar minna en ráðherrastóla. Þeir tala um það að vilji menn gæta hagsmuna Íslendinga gagnvart þessum flutningum og öðru, er lýtur að varnarliðinu, þá sé það „aronska“. Ég spyr hvort það að meta hugsjónir sínar minna en ráðherrastóla kallist „hjörleifska“ eða eitthvað slíkt. Það er spurning hvort ekki er ástæða til þess að gefa því eitthvert nafn.

Ég tel að framsaga Eyjólfs Konráðs fyrir meiri hl. nál., hvar hann tilgreinir það að uppskipun skuli áfram vera í Njarðvíkum, sé viðunandi og treysti ég því að utanrrh. framfylgi því að svo verði.

En það er alveg nauðsynlegt þegar andstæðingar vestræns samstarfs tala hér, andstæðingar samstarfs lýðræðisþjóða Vestur-Evrópu og Ameríku, að gera sér grein fyrir því að þeim er ekki sama hvort þeir eru í ríkisstjórn eða utan ríkisstjórnar. Þeir tala sitt á hvað eftir því hvað hentar hverju sinni. Þess vegna er þessi gagnrýni marklaus, mærðarkennd og út í hött.