02.03.1987
Neðri deild: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3599 í B-deild Alþingistíðinda. (3201)

316. mál, flugmálaáætlun

Stefán Valgeirsson:

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta frv. sem liggur fyrir í löngu máli þar sem það kemur í nefnd sem ég á sæti í. Þó langar mig til að spyrja hæstv. samgrh. um þessa flokkun. Þegar nefndin tekur til starfa, sem hún mun gera eins snarlega og hægt er, mun ég reyna að fá upplýsingar en þó langar mig aðeins til að heyra um þessa flokkun hjá hæstv. ráðh. Mér skilst að það séu bara þrír flugvellir sem eru í þessum fyrsta flokki, þ.e. þar sem hugsanlegt er að verði lengri flugbrautir en 1800 metrar. Það virðist ekki fara, ekki eingöngu a.m.k., eftir farþegafjölda, flutningaþörf. Það er t.d. Vestmannaeyjaflugvöllur og Ísafjarðarflugvöllur sem sérstaklega Vestmannaeyjar - eru með svipaða tölu og t.d. Egilsstaðir. Ef við lítum á hvað er líklegt að gerist í náinni framtíð, t.d. varðandi Húsavíkurflugvöll og e.t.v. fleiri flugvelli, má benda á að það eru áreiðanlega möguleikar í Þingeyjarsýslum að framleiða eldisfisk í tugþúsundum tonna ef þeir eru nýttir til hins ýtrasta. Mér er þess vegna ofarlega í huga hvers vegna þessi flokkun er svona. Hvað er á móti því að setja t.d. í fyrsta flokk suma þessa flugvelli, eins og Vestmannaeyjaflugvöll, Sauðárkróksflugvöll og Húsavíkurflugvöll og e.t.v. fleiri, vegna þess að það eru flugvellir með 1800 metra flugrein og lengri. Síðan eru í öðrum flokki flugvellir með 1200-1800 metra flugrein. Það er hámark á þessum öðrum flokki en þó er það eftir ákvörðun hvers tíma í sjálfu sér hvort verður farið yfir þetta mark. Þess vegna vildi ég fá aðeins að heyra hjá hæstv. ráðh. rökin fyrir þessum skiptum, ekki síst þar sem það eiginlega blasir við að við förum að flytja á markað ferskan fisk og jafnvel kjöt á næstu árum ef allt fer sem manni sýnist horfa í dag.

Að öðru leyti ætla ég ekki að fjalla um þetta fyrr en við 2. umr. Ég vil þó segja það að auðvitað er alltaf spurning um það hvernig á að fjármagna svona framkvæmdir. En með reynslu t.d. af þeirri langtímaáætlun í vegamálum sem við höfum þegar fengið held ég að í raun og veru sé ekki hægt að fara aðra leið. Eins og horfir núna með langtímaáætlun í vegamálum finnst mér það vera döpur reynsla og sú þáltill. fer aldrei orðalaust í gegn eins og hún liggur fyrir. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni.