03.03.1987
Sameinað þing: 57. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3610 í B-deild Alþingistíðinda. (3213)

350. mál, öryrkjabifreiðir

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég lýsi ánægju minni með þá gjörð að ætla að koma til móts við fatlaða eins og tilgreint er hjá fjmrh. Það mun vera allt að 7% lækkun sem öryrkjar og fatlaðir geta fengið með þessu, en ég legg áherslu á að þær reglur sem verið er að semja komi sem allra fyrst því að það eru margir sem bíða eftir þessari úrbót og því fyrr, því betra til þess að það valdi ekki þeim sem njóta þurfa meiri áhyggjum en ástæða er til.