03.03.1987
Sameinað þing: 57. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3624 í B-deild Alþingistíðinda. (3232)
374. mál, fangelsismál
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Herra forseti. Á þskj. 672 beinir hv. 2. þm. Austurl. þeirri spurningu til mín hvað líði störfum nefndar um úrbætur í fangelsismálum og hver séu áform ráðuneytisins hvað varðar þennan málaflokk.
Þann 10. maí 1982 kaus Alþingi nefnd til að gera heildarúttekt í fangelsismálum og endurskoða lög og reglur þar að lútandi skv. þál. sem samþykkt var 20. apríl 1982. Með bréfi dags. 5. febr. s.l. sendi nefndin mér frv. til l. um fangelsi og fangavist sem hún hafði samið ásamt fylgifrv., þ.e. frv. til l. um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga. Jafnframt tilkynnti nefndin að hún hefði lokið störfum. Þessi frumvörp hafa verið yfirfarin í ráðuneytinu og á þeim gerðar smávægilegar orðalagsbreytingar, en þeim hefur nú verið dreift á borð þm. eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda.
Það er vafalaust rétt hjá fyrirspyrjanda að fangelsismál séu ekki mjög oft til umræðu hér, en ég tek undir með honum, eins og fram kom í máli mínu hér á Alþingi fyrir stuttu, að úrbóta er þörf á mörgum sviðum og verið að reyna að gera það nú eftir því sem fjárveitingar frá Alþingi leyfa. En þegar fjallað er um þessi mál er mér samt sem áður efst í huga alltaf hvað hægt er að gera til þess að þörfin fyrir fangelsi verði minni í landinu en raun er á. Því miður, eins og þær skýrslur sem ég las fyrir stuttu hér sýna, fer vaxandi ár frá ári þörfin fyrir fangelsisrými. Þá er mér efst í huga hvað hægt er að gera til að draga úr þessari þörf. Þar er tvímælalaust efst á blaði það mál sem hér var til umræðu næst á undan þessu, þ.e. um heildaráfengisneyslu í landinu, því að undantekningarlaust má segja að það sé orsök að vandræðum þeirra sem til mín leita vegna þess að þeir hafa fengið dóm um fangelsisvist. Orsökin er áfengisneysla og afleiðingar hennar. Því er ákaflega brýnt að það sé unnið að framkvæmd þeirra tillagna sem hér voru til umræðu og reynt að gera allar þær ráðstafanir sem hugsanlegar eru til að stefna í þá átt sem þar var rætt um.