04.03.1987
Efri deild: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3693 í B-deild Alþingistíðinda. (3294)
359. mál, stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Íslands
Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur skoðað þetta mál og m.a. fengið á sinn fund seðlabankastjórana Geir Hallgrímsson og Jóhannes Nordal svo og Baldur Guðlaugsson lögfræðing sem mun vera aðalhöfundur frv. lagalega og bankastjórana Lárus Jónsson og Halldór Guðbjarnason. Auk þess kom Már Elísson, forstjóri Fiskveiðasjóðs, til fundar.
Meiri hl. flytur eina brtt. og um hana má segja að samkvæmt lögum um Iðnþróunarsjóð tilnefni Útvegsbanki Íslands einn mann í framkvæmdastjórn Iðnþróunarsjóðs og annan til vara. Landsbankinn, Iðnaðarbankinn, Búnaðarbankinn og Iðnlánasjóður tilnefna einnig einn fulltrúa hver. Í 14. gr. frv. segir að nýi hlutafélagsbankinn komi í stað Útvegsbanka Íslands í fiskveiðasjóðslögunum. Þar er hins vegar ekki minnst á Iðnþróunarsjóð þótt gengið hafi verið út frá því að það sama gildi að því er hann varðar.
Svo að ekkert fari á milli mála kann hins vegar að vera nauðsynlegt að taka það sérstaklega fram í lagatextanum og í samráði við hæstv. viðskrh. er þessi brtt. þar með flutt.
Við 1. umr. þessa máls tóku margir til máls og umræðan var ítarleg og stóð æðilengi. Það er ekki mjög margt sem mér virðist hafa skýrst frá þeirri ítarlegu grg. sem fylgir frv. og framsöguræðu hæstv. ráðh. Um þetta mál hafa auðvitað verið miklar umræður líka í fjölmiðlum, á mannamótum o.s.frv. og þess vegna kannske ekki mikil ástæða til að ég sé að flytja hér langt mál.
Ég held að það hafi kannske ekki verið vakin á því nægileg athygli að í frv. er tekið mjög rækilega fram að eiginfjárstaða hins nýja hlutafélagsbanka verði einn milljarður og um þetta er nánar fjallað í öðrum greinum frv. Ég held því að það séu óþarfa áhyggjur sem menn hafa af því að bankinn verði ekki nægilega öflugur og meira en nægilegt eigið fé til þess að afla sér viðskipta. Ég held að svo sé ekki, eins og þetta frv. er úr garði gert, heldur miklu fremur hitt að bankinn verður sterkur banki með þessum hætti. Um hitt má svo auðvitað deila hvort ríkisvaldið hefði átt að taka þátt í bankastofnun með þessum hætti. Ég tel að engra annarra kosta hafi verið völ. Rétt sé að vinna að málinu með þessum hætti og stofna einmitt öflugan banka í staðinn fyrir að endurreisa veikan banka.
Um þessi mál ræddum við auðvitað við viðmælendur okkar í nefndinni, við bankastjórana, einkum og sér í lagi seðlabankastjórana. Það var spurt um það hver staða hlutafélagsbankans yrði eftir tvö ár ef ríkið hætti þá ábyrgðum og því svara menn auðvitað á einn veg: Það verður að koma í ljós hversu vel tekst að stjórna þessari stofnun á þessum tveimur árum og enginn er kannske dómbær um það nú á þessari stundu að segja til um það hve öflugur bankinn verði. Meginatriðið er það að hér er þó stofnaður hlutafélagsbanki en ekki nýr ríkisbanki, eða ríkisbanki endurreistur, ef menn vilja heldur nota það orðalag.
Spurt var um það líka hvaða álit seðlabankastjórar hefðu á því hvernig ganga mundi að afla hlutafjár. Þeir svöruðu því auðvitað líka með þeim hætti að fyrst yrði að fá löggjöf um þá ákvörðun að þetta skuli gert. Á meðan svo sé ekki sé náttúrlega ekki hægt að búast við því að nokkur maður fari að leita eftir hlutafjárkaupum þar sem ekkert hlutafé sé enn til sölu. Þetta verði þess vegna allt að koma á daginn.
Auðvitað var líka rætt talsvert um þátttöku erlends banka, allt að fjórðungi hlutafjárins, og ég fyrir mína parta tel ekkert athugavert við það, heldur kannske þvert á móti að það gæti kennt okkur ýmislegt að hafa slíka aðild. Þess vegna mæli ég hiklaust með samþykkt frv. með þessari lítilvægu breytingu og það gerir meiri hl. nefndarinnar, auk mín Jón Kristjánsson, Egill Jónsson og Valdimar Indriðason.