28.10.1986
Sameinað þing: 9. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (330)

Framleiðnisjóður landbúnaðarins

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Með nýju búvörulögunum var stór auknu fé varið til svokallaðra búháttabreytinga á vegum Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Með lögunum var m.a. stóraukið vald fært í hendur landbrh. frá því sem áður var. Það er sannarlega vandasamt að fara með slíkt vald og framkvæmdin hefur í sumum tilvikum tekist misjafnlega.

Ég lít svo til að þau tilboð, sem hafa verið sett fram um kaup eða leigu á fullvirðisrétti bænda og ráðherra hefur ákveðið að gera bændum og nota til þess fé Framleiðnisjóðs, séu umdeilanleg. Tvennt er augljóst.

1. Þessi boð eru sett fram á alröngum tíma.

2. Skipulagslaus kaup á fullvirðisrétti geta myndað skörð í byggðina þar sem síst skyldi.

Sú leið sem hér er valin er þó alls ekki þess efnis að hún geti ekki komið til greina, en þá þarf að standa betur að málum en nú er gert.

Í fyrsta lagi þarf að setja slík boð fram á réttum tíma, ekki á síðari hluta sláturtíðar heldur á útmánuðum áður en bændur kaupa áburð eða eru farnir að stofna til heyskapar og leggja í allan þann reksturskostnað sem þarf til að sjá búinu farborða.

Í öðru lagi þarf að hafa einhverja stefnu í því hvernig fækkun bústofns skuli koma niður þannig að menn geri sér grein fyrir áhrifum þess á byggðina, rekstur vinnslustöðva, hagsmuni markaðar og að tekið sé tillit til búrekstraraðstöðu og landgæða bæði einstakra jarða og byggðarlaga.

Í sambandi við þetta atriði er rétt að vekja athygli á því að á sumum svæðum landsins hefur verið gerð úttekt á búrekstraraðstöðu allra jarða. Svo hefur verið gert til að mynda á vegum Ræktunarfélags Norðurlands á Norðurlandi. Slík úttekt hefur leitt í ljós að allmargar jarðir hafa takmarkaða eða erfiða búrekstraraðstöðu fyrir hefðbundinn búskap. Álitlegt gæti verið að verja fé úr Framleiðnisjóði til að hjálpa bændum á slíkum jörðum til að hverfa frá hefðbundinni búvöruframleiðslu. Ég hlýt að furða mig á því að ekkert skuli hafa komið fram í þessum efnum frá til að mynda hæstv. ráðherra um að ætlunin sé að beina þessum aðgerðum í slíkan farveg eða að leitast sé við að fylgja einhverri stefnu um hvaða áhrif þessar aðgerðir skuli hafa á byggð, búsetu og búrekstraraðstöðu í sveitum landsins.