28.10.1986
Sameinað þing: 9. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í B-deild Alþingistíðinda. (332)

Framleiðnisjóður landbúnaðarins

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Menn hljóta að spyrja þess eftir að hafa hlýtt á þessa umræðu fram að þessu hvar stefnan sé mörkuð í sambandi við landbúnaðarmálin hjá hæstv. núv. ríkisstjórn. Hér eru það ekki aðeins við stjórnarandstæðingar sem eðlilega gagnrýnum framkvæmd þeirrar stefnu sem hæstv. landbrh. ber fram heldur koma upp málsmetandi menn úr báðum stjórnarflokkunum og hafa uppi harða gagnrýni á framkvæmd þessarar stefnu og um mótun stefnunnar, a.m.k. að því er varðar framkvæmd laganna frá 1985. Þetta hlýtur að vekja sérstaka athygli.

Við tökum líka eftir því að forustumenn í stjórnarflokkunum, eins og formaður Framsfl., hæstv. forsrh., velja sér það hlutskipti að skipta um kjördæmi. Hann hefur boðað framboð í Reykjaneskjördæmi nýverið. Það er í rauninni táknrænt fyrir stöðumatið hjá formanni þess stjórnmálaflokks sem þó fer með landbúnaðarmálin.

Ég tel að eitt hið alvarlegasta í landbúnaðarstefnu núv. ríkisstjórn sé það litla svigrúm sem bændastéttinni er gefið til þess að bregðast við aðsteðjandi vanda. Enginn neitar að hann hefur verið til staðar. Hann er afleiðing og uppskera af áratuga löngu stjórnleysi í landbúnaðinum á ábyrgð núv. ríkisstjórnarflokka. Og það eru engir tilburðir í þá átt að skyggnast inn í þá möguleika sem eru til þess að breyta búháttum í sveitum og gefa nægilegt svigrúm til þess.

Á síðasta Alþingi óskuðum við þm. Alþb. eftir skýrslu frá hæstv. landbrh. Hann veitti okkur heldur rýra úrlausn rétt undir þinglok. M.a. var þar spurt hvar væru áætlanir í sambandi við uppbyggingu nýrra búgreina í sveitum. Það lá ekkert fyrir hjá hæstv. ráðherra og við höfum ekkert séð til viðbótar.

Það ber að virða þegar einstakir stjórnarþm. rétta hæstv. ráðherra hjálparhönd, eins og hv. þm. Egill Jónsson gerir hér. Ég virði það út af fyrir sig því að hann er einn af ábyrgðarmönnum þeirrar stefnu sem ráðherrann er að útfæra á sinn hátt, tók þátt í undirbúningi þeirrar lagasetningar sem gerð var 1985 á Alþingi á sauðburðartímanum.

Íslenskar sveitir og íslenskar byggðir þurfa á öðrum vinnubrögðum að halda en tíðkuð hafa verið í sambandi við stöðu bændanna. Öll landsbyggðin á undir högg að sækja, þéttbýli líka, og þegar þetta leggst saman er eðlilegt að illa horfi.