04.03.1987
Efri deild: 48. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3721 í B-deild Alþingistíðinda. (3328)

391. mál, fæðingarorlof

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Ragnhildur Helgadóttir):

Frú forseti. Fyrir mörgum árum sagði forveri forsetans viturlega: „Þar sem veður eru nú mjög tekin að spillast og menn farið að fýsa til sinna heima er rétt að fara að slíta fundi.“

Ég veit að hv. þingdeildarmenn eru komnir í þessar hugleiðingar en mig langar einungis til þess að þakka hv. þm. fyrir undirtektir þeirra. Ég veit að það er mikill vilji til þess að afgreiða þetta mál vel og ganga vel frá öllum atriðum.

Að því er varðar tímann sem þetta kemur fram á, þá er þess að geta að þessi nefnd hefur ekki setið að störfum nema síðan s.l. vor. Og ég verð að segja að ég tel að hér sé um svo vandaða vinnu að ræða að það sé í raun og veru mjög mikils virði og sé þá betra að frv. komi seint fram á þingtíma en að undirbúningnum sé ábótavant.

Ég hygg að hv. þdm. eigi eftir að komast að raun um það þegar þeir skoða málið betur að það sé einmitt til að gera málið skýrara að skipta þáttunum upp í tvö frv., en ekki með þeim flókna hætti sem ég tel að nú sé, að vinnuréttarmál séu inni í tryggingalögum. Það eru í raun og veru tvö mál. Enda er það svo að þetta er alls staðar í nágrannalöndum okkar. Alls staðar er þetta einmitt svo að sú leið hefur verið farin að skipta þessu upp og greiðslunum, skipta upp annars vegar greiðslu vegna fæðingarorlofs, þ.e. fjarvista frá launuðu starfi annars vegar og svo vegna heimavinnandi mæðra hins vegar. Alls staðar hefur þessi leið verið valin.

Að því er varðar stöðu heimavinnandi mæðra að þessu leyti vil ég árétta það að hér er um að ræða stórt skref til bóta frá því sem nú er, mikla hækkun sem og lengingu á þeim tíma sem þær hafa haft. Og ef frv. verður að lögum, sem ég vona sannarlega og tel mig mega vænta, þá verður staða þeirra líka með því besta sem þekkist hér í álfunni ef ekki hin langbesta.

Ég vil nefna aðeins eitt sem e.t.v. hefði mátt misskilja í ræðu minni hinni fyrri að því er varðar fjármögnunina. Þegar ég gerði grein fyrir því hver kostnaðurinn yrði og talaði um að mánaðarlenging mundi kosta 119 millj., þá skiptist það vitanlega til helminga vegna þess að u.þ.b. helmingurinn er fjármagnaður af atvinnurekendum og helmingurinn af ríkinu. Fæðingarstyrkurinn er allur greiddur af ríkinu, en fæðingardagpeningarnir eru aftur á móti alfarið greiddir af framlagi atvinnurekenda til lífeyristrygginga. Þetta vildi ég nefna sérstaklega til að skýra málin frekar.

Að því er svo varðar athugasemdir í sambandi við greiðslur í fæðingarorlofi vegna ættleiddra barna og svo vegna andvana fæddra barna, þá skil ég það að að því er varðar hið andvana fædda barn er auðvitað um mjög mikið álag og vandasamt mál að ræða og viðkvæmt. Sömuleiðis þarf hið ættleidda barn sína umhugsun ekki síður en það sem móðirin hefur fætt sjálf. En á það er að líta að forsendur sjálfs fæðingarorlofsins, frísins, eru í raun og veru tvær, annars vegar heilsufarssjónarmið, bæði barnsins og móðurinnar, og svo uppeldis- og umönnunarsjónarmiðið. Þannig að þegar um er að ræða ættleitt barn þá er ekki það sjónarmið sem varðar heilsufar móðurinnar kannske með sama hætti og þegar hún hefur fætt barnið sjálf. Og með andvana fædda barnið er ekki uppeldissjónarmiðinu til að dreifa. En aftur á móti fellst ég á það að það getur vel verið að þar verðum við að skoða þann þátt sem auðvitað felst í auknu álagi vegna missis eins og hv. þm. benti á. En við lendum líka í nokkrum vanda í sambandi við það atriði þegar við lítum á tímann ef eitthvað kemur fyrir öðru hvoru megin við þann eðlilega áætlaða fæðingardag.

Þetta eru atriði sem ég treysti hv. nefnd til þess að fjalla um. Ég vil ítreka það að ég þakka hv. þm. fyrir góð viðbrögð og ábendingar.