04.03.1987
Neðri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3745 í B-deild Alþingistíðinda. (3351)

351. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu

Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 624 er frv. til l. um breytingu á lögum um þjóðarbókhlöðu, afar einfalt í sniðum og hefur hlotið afgreiðslu með skjótum hætti í hv. Ed. Við afgreiðslu fjárlaga láðist að gæta þess að ekki eru áform nú í fjárlögum fyrir 1987 um að hækka skattleysismörkin vegna skatts sem lagður er á vegna þjóðarbókhlöðunnar. Svo einfalt er þetta í sniðum en jafnframt nauðsynlegt og legg ég til, herra forseti, að þegar þessari umræðu lýkur verði máli þessu vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.