04.03.1987
Neðri deild: 52. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3753 í B-deild Alþingistíðinda. (3367)

359. mál, stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Íslands

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Það vakti mikla athygli á s.l. hausti, þegar Sjálfstfl. efndi til flokksráðsfundar í nóvembermánuði, hversu gífurlega áherslu flokkurinn lagði á endurskipulagningu bankakerfisins. Í stjórnmálayfirlýsingu þessa flokksráðsfundar var lýst yfir eindregnum og afdráttarlausum stuðningi við fram komnar tillögur frá seðlabankastjórn um að stofnaður skyldi einkabanki. Tillagan snerist um það að sameina Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og Útvegsbanka í einn öflugan einkabanka.

Formaður Sjálfstfl. kvað fast að orði í ræðu sinni á þessum fundi. Hann hafði um það stór orð að nú þyrfti að bregðast við hinu mikla áfalli sem leiddi af gjaldþroti Hafskips og bregðast við á réttan hátt með því að byggja upp heilbrigðara bankakerfi, nú þyrfti að draga úr ríkisafskiptum í bankakerfinu, auka áhrif og hlutdeild atvinnulífsins sjálfs. Í þessu efni þyrfti ekki að velkjast í vafa, ríkisstjórnin yrði þegar í stað, þá í nóvember, að taka af skarið. Formaður Sjálfstfl. lýsti það fullkomlega ábyrgðarlaust að láta ákvörðun dragast deginum lengur í þessu máli.

Þetta var sagt í nóvember. Nú leggur hæstv. ríkisstjórn fram frv. á Alþingi um endurreisn bankans. Að nafninu til er það kallað vera í hlutafélagsformi. Í reynd er þetta hlutafélagsform nafnið tómt. Frv. felur í sér að Útvegsbankinn verði endurreistur með allt að eins milljarðs kr. framlagi úr ríkissjóði og Fiskveiðasjóði sem starfar á ábyrgð ríkissjóðs. Stóru orðin um það að aldrei skyldi eyrir greiddur úr ríkissjóði í Hafskipsskattinn fræga eru orðin orðin tóm. Þessi skattur er fram kominn, einn milljarður kr.

Það má því segja um þessa lausn, svokallaða, að fjallið tók jóðsótt og það fæddist lítil mús. Þetta frv. felur ekki í sér neina lausn á þeim vanda sem kom í ljós þegar Hafskip varð gjaldþrota. Strax í desember s.l. gerðum við í þingflokki Alþfl. ítarlega grein fyrir okkar tillögum varðandi lausn þessa máls. Við lögðum þar til í fyrsta lagi að ríkisbankakerfið í heild yrði endurskipulagt. Markmiðið væri að mynda tvo öfluga alhliða viðskiptabanka. Annar bankinn átti að hafa Útvegsbanka og Búnaðarbanka að uppistöðu, hinn bankann átti að mynda utan um Landsbankann þótt skipulagsbreytingar milli þessara tveggja banka kæmu til greina. Síðan gerðum við það að tillögu okkar að annar þessara tveggja banka yrði gerður að alvöruhlutafélagi með dreifðri hlutafjáreign og hugsanlega með erlendri þátttöku að hluta sem kæmi þá í stað ríkisábyrgðar.

Eftir að hæstv. ríkisstjórn hafði gefist upp á þeirri leið sem boðuð var á flokksráðsfundi Sjálfstfl., m.a. vegna innbyrðis ágreinings milli stjórnarflokkanna, eftir að hún hafði gefist upp á því að sú leið yrði farin, þá mælti reyndar stjórn Seðlabankans með því að svipuð leið yrði farin og við höfðum lagt til, eftir að tilraunir um sameiningu við einkabankana höfðu farið út um þúfur.

Niðurstaðan er því sú að eftir að langur tími hefur liðið og mikill skaði er skeður, þá skilar ríkisstjórnin auðu og hún hefur sleppt tækifæri, sem ekki er víst að komi strax aftur, til þess að endurskipuleggja bankakerfið með einhver framtíðarmarkmið í huga. Þessi framtíðarmarkmið ættu að vera a.m.k. þrjú. Í fyrsta lagi átti fyrir löngu síðan að vera búið að eyða óvissu um starfsemi Útvegsbankans. Í annan stað hefði átt að nýta þetta tækifæri til þess að bæta skipulag og rekstur bankakerfisins í heild. Og í þriðja lagi teljum við að nú hafi verið kjörið tækifæri til að bæta stjórnkerfi bankanna, draga skýrari línur um stjórnarábyrgð og draga úr fjárhagslegri ábyrgð ríkisins á rekstri viðskiptabanka. Maður skyldi ætla að slík sjónarmið nytu stuðnings innan raða Sjálfstfl. en reyndin virðist ekki vera sú þegar á hólminn er komið.

Í raun og veru er engum af þessum sjálfsögðu markmiðum náð nema þá hinu fyrsta, að til skamms tíma er eytt óvissu um rekstur bankans, þó að enn sé það sem fyrr að bankinn fullnægir ekki ákvæðum nýsettra laga um viðskiptabanka. En það er sérstök ástæða til þess að minna á að fjárhagsvandi Útvegsbankans er reyndar eldri þrátt fyrir allt en Hafskipsmálið og lýsir ekki aðeins vanda Útvegsbankans eins heldur má rekja rætur þessa vandamáls víða í úreltu skipulagi bankakerfisins á Íslandi. Á þessu máli er ekkert tekið í tillögum ríkisstjórnarinnar.

Það er sérstök ástæða til þess að rifja upp hverjar voru tillögur stjórnar Seðlabankans á sínum tíma um lausn á þessu máli. Það voru settar fram fjórar hugmyndir:

Í fyrsta lagi samruni Útvegsbanka, Iðnaðarbanka og Verslunarbanka í nýjum hlutafjárbanka sem átti að stofna samkvæmt ákvæðum viðskiptabankalaga með væntanlegri aðild sparisjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Seðlabanki fyrir hönd ríkissjóðs átti að ábyrgjast 850 millj. kr. hlutafé í hinu nýja félagi, sem síðan yrði selt einkaaðilum, auk eftirstöðva lána og annarra skuldbindinga Útvegsbankans eins og þær stæðu þegar samruni færi fram. Það er þessi leið sem Seðlabankinn mælti með, Sjálfstfl. tók upp á sína anna og ríkisstjórnin gafst síðan upp á í janúar.

Í annað stað var tillaga um sameiningu Búnaðarbanka og Útvegsbanka í einn ríkisbanka. Þeirri tillögu hefur líka verið hafnað, væntanlega m.a. vegna andstöðu Framsfl.

Í þriðja lagi var skipting og samruni Útvegsbanka við Landsbanka og Búnaðarbanka sem störfuðu áfram sem ríkisbankar.

Og loks var fjórða tillagan um endurreisn Útvegsbankans sem ríkisbanka.

Af þessum fjórum kostum, sem nefndir voru, sagði í álitsgerð um Útvegsbankamálið frá því í nóvember 1986 að endurreisn Útvegsbankans væri langversti kosturinn af þessum fjórum sem til greina kæmu. Mandarínar Seðlabankans gengu m.a.s. svo langt að segja að svo veigamiklar röksemdir mæltu gegn þessari leið að það yrði að telja að hún kæmi alls ekki til álita. Því var haldið fram að alls enginn áfangi næðist með þessum hætti í nauðsynlegum skipulagsbreytingum á bankakerfinu og að þetta væri dýrasti kosturinn fyrir ríkissjóð. Því var jafnframt haldið fram í þessu áliti seðlabankastjórnar að ekki væri séð hvaða hagsmunum væri þjónað með því að endurreisa Útvegsbankann og minntu þar á að sporin hræddu og áttu þá við margendurteknar, árangurslausar tilraunir um langt árabil til þess að koma rekstri bankans að óbreyttu á réttan kjöl. Þetta var álit seðlabankastjórnar í nóvember.

Nú liggur ljóst fyrir að ríkisstjórnin hefur haft þetta álit að engu. Niðurstaðan er þess vegna sú að ríkisstjórnin er hér að fleyta sér fram yfir kosningar. Hún skilar auðu í Útvegsbankamálinu. Hún hefur í raun og veru ekkert gert. Frá því í ársbyrjun 1986 hefur Útvegsbankinn í reynd starfað á ábyrgð ríkissjóðs, að vísu fyrir milligöngu og í gjörgæslu Seðlabanka.

Ástæða er til þess að vekja athygli hér á einni hugmynd. Þegar menn líta á bankakerfið í heild og skipulag fjárfestingarlánasjóða hafa menn hvað eftir annað áréttað, og áréttað það oft á tíðum á liðnum árum, að skipulagsveila alvarleg væri sú að hólfa bankana og sjóðakerfið niður eftir atvinnuvegum og búa þannig til múra milli atvinnuvega, tengja bankana sérstökum atvinnuvegum og hagsmunum og dreifa þar með ekki með eðlilegum hætti áhættu í þessum rekstri. Oft hefur verið til þess vitnað að Útvegsbankinn hafi orðið að bera óeðlilega miklar byrðar í samanburði við aðra banka vegna áhættusamra fjárfestinga í sjávarútvegi. M.ö.o.: Sú stefna að fylgja áfram þessari sundurhólfun banka- og sjóðakerfis byggir á viðhorfum úreltrar atvinnustefnu og horfir aftur í tímann en ekki fram. Það er einmitt sundurhólfun og sérhæfing af þessu tagi sem er ein helsta undirrót vanda Útvegsbankans og reyndar má rekja rætur þessa vanda í starfsemi Landsbankans líka. Með því að festa þetta úrelta skipulag í sessi og fela ríkissjóði og Fiskveiðasjóði að borga brúsann eru menn komnir að dapurlegri niðurstöðu og búnir að sleppa mikilvægu tækifæri til þess að hverfa frá þessum úreltu skipulagsaðferðum og búa sig með öðrum hætti undir framtíðina.

Þetta er heldur dapurleg reynsla vegna þess að í raun og veru var lausn á Útvegsbankamálinu prófsteinn á vilja og getu þessarar ríkisstjórnar til þess að gera þýðingamiklar breytingar í átt til heilbrigðari og ábyrgari starfshátta í banka- og viðskiptalífi, en á því prófi hefur þessi ríkisstjórn fallið með afdráttarlausri falleinkunn.

Það er ástæða til þess að minna á að þetta stjfrv. felur í sér alvarlegt frávik nú þegar frá nýsettri löggjöf um viðskiptabanka sem ríkisstjórnin á sínum tíma gumaði þó af að hafa sett, og er þá átt við eiginfjárhlutfall bankans. Reyndar má minna á að bankinn hefur frá því í ársbyrjun 1986 ekki fullnægt ákvæðum þessara laga, um hlutfall eiginfjár af niðurstöðutölum efnahagsreiknings, þannig að í fyrsta sinn þegar reynir á þessi ákvæði nýsettra laga, sem þóttu út af fyrir sig nokkurt framfaraspor, þá er ekki farið eftir þeim. Út frá stjórnmálalegu sjónarmiði má benda á að þessi niðurstaða staðfestir enn það ginnungagap sem er milli orða og yfirlýsinga stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka og reynslunnar. Sérstaklega er kannske vert að skoða það í ljósi væntanlegs landsfundar Sjálfstfl. þar sem menn munu væntanlega árétta heitstrengingar um stefnufestu við grundvallarsjónarmið sjálfstæðisstefnunnar, stuðning við einkaframtak, andstöðu við banka o.s.frv. Þar fara menn með „ritúalið“ sitt eftir guðspjöllunum, en í reynd er veruleikinn allur annar.

Sömu stóru orðin voru höfð uppi á flokksráðsfundi Sjálfstfl. í nóvember. Þau orð eru nú innantóm, dæmd ómerk. Eins verður með yfirlýsingarnar sem verður farið með á landsfundinum innan fárra daga og það ber að skoða þær yfirlýsingar í ljósi þessarar reynslu. Þar sem sagt var að endurskipulagning bankakerfisins þyldi enga bið, það væri ábyrgðarlaust að fresta ákvörðunum, það bæri að draga úr ríkisábyrgð í bankarekstri og að aldrei skyldi renna eyrir úr ríkissjóði í Hafskipsskatt. Allt eru þetta ómerk orð. Það stendur ekki steinn yfir steini í þessum yfirlýsingum.

Það dylst engum að ábyrgð Sjálfstfl. er stór í þessu máli. Engum dylst að ábyrgð ráðamanna Sjálfstfl. á Hafskipsmálinu var stór. Hún dylst ekki þeim sjálfum. Þess vegna setti flokksráð Sjálfstfl. endurskipulagningu bankakerfisins á oddinn í nóvember. Getuleysi þessa stærsta flokks þjóðarinnar til að standa við áform sín sannar það rækilega nú að e.t.v. er það Sjálfstfl. sjálfur sem er báknið sem helst þarf burt úr íslensku stjórnkerfi.

Í tvo áratugi hafa menn talað um nauðsyn endurskipulagningar bankakerfisins. Sú lausn sem hér er lögð til breytir engu í því efni og í ljósi þess getum við ekki mælt með samþykkt þessa frv.