05.03.1987
Sameinað þing: 59. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3774 í B-deild Alþingistíðinda. (3408)
383. mál, snjómokstur á Siglufjarðarvegi
Flm. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. sem ég flyt á þskj. 693 um snjómokstur á Siglufjarðarvegi. Tillagan til ályktunar er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að endurskoða reglugerð um snjómokstur með það fyrir augum að tryggja bættar samgöngur að vetrarlagi og skal m.a. gert ráð fyrir að vegurinn milli Siglufjarðar og Sauðárkróks sé hreinsaður þegar fært er milli Reykjavíkur og Akureyrar um Skagafjörð. Almennt skal við það miða að reglur um snjómokstur verði sveigjanlegri en nú er og meira miðaðar við aðstæður, einkum þar sem lítið vantar á að unnt sé að halda leiðum opnum til þéttbýlisstaða út frá hringveginum.“
Tilefni þessarar till. kemur glögglega fram í tillgr. sjálfri, en þar er að því vikið að oft er um að ræða óveruleg snjóahöft sem þó stöðva alla umferð á veginum milli Siglufjarðar og Sauðárkróks þótt síðan sé aftur fært úr Skagafirði hvort heldur til Reykjavíkur eða Akureyrar. Á það er bent í till. að snjómokstursreglur eru nokkuð ósveigjanlegar. Þær þurfa að taka meira tillit til aðstæðna og þurfa að vera þess eðlis að hægt sé að ryðja minni háttar höftum úr vegi þegar í raun og veru vantar ósköp litið upp á að hægt sé að halda löngum leiðum opnum til þéttbýlisstaða út frá hringveginum.
Ég geri mér fulla grein fyrir að svona getur staðið á miklu víðar en á Siglufjarðarleið. Ég er hér með till. um þá leið sérstaklega vegna þess að ég þekki þar vel til og veit að þetta er mjög til baga þar, en ég viðurkenni fúslega að svona stendur áreiðanlega á víða annars staðar, ekki kannske hvað síst á Vestfjörðum og Austfjörðum. Því legg ég áherslu á það í tillögunni að reglur um snjómokstur séu endurskoðaðar í heild sinni, þær séu gerðar sveigjanlegri en nú er og meira sé tekið mið af aðstæðum á hverjum stað.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þessa till. Hún skýrir sig að öðru leyti sjálf. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði till. vísað til hv. allshn.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.
11