09.03.1987
Efri deild: 50. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3777 í B-deild Alþingistíðinda. (3410)
Tilhögun þingfundar
Forseti (Stefán Benediktsson):
Áður en gengið er til dagskrár vildi ég leyfa mér að upplýsa menn aðeins um fyrirhugaðan gang mála hér í dag. Menn eru mjög tímabundnir og mikið að gerast. Það er ætlunin að taka fyrir fyrstu þrjú málin sem eru a dagskrá og síðan 1. umræðu málin að svo miklu leyti sem tími leyfir þannig að það dregst eitthvað fram eftir fundi að staðgreiðslu-, gildistöku-og tekjuskattsfrumvörpin komi til umræðu.