09.03.1987
Efri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3786 í B-deild Alþingistíðinda. (3421)

342. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. 1. minni hl. fjh.og viðskn. sem prentað er á þskj. 771. Eins og þar kemur fram er það frv. sem við erum nú að ræða flutt í tengslum við frv. til l. um staðgreiðslu opinberra gjalda. Felur þetta frv. í sér víðtækar breytingar á álagningu skatta á tekjur launamanna.

Ég vil láta þess sérstaklega getið í upphafi máls míns að þótt þjóðarsátt svokölluð kunni að ríkja um staðgreiðslu opinberra gjalda er fráleitt að ætla að slík sátt sé um þær breytingar á álagningu tekjuskattsins sem þetta frv. felur í sér. Hæstv. fjmrh. er með þessu frv. að sigla inn víðtækum breytingum á álagningarkerfi tekjuskatts í skjóli staðgreiðslukerfisins. Ég vænti þess að hv. þm. sé ljóst að þá er þeir greiða atkvæði um þessi frumvörp eru þeir að greiða atkvæði um miklu meira en um staðgreiðslukerfið. Þeir eru einnig að greiða atkvæði um hvernig álagningu beinna tekjuskatta á launamenn skuli háttað.

Eins og segir í þessu nál., með leyfi forseta, eru megineinkenni frv. þau í fyrsta lagi að hér er á ferðinni einföldun á álagningarkerfi tekjuskattsins með afnámi gildandi frádráttarliða, einu skattþrepi, einni skattprósentu og einum föstum persónuafslætti. Þótt einföldun álagningarkerfisins sé í sjálfu sér æskileg er sú mikla einföldun sem frv. gerir ráð fyrir hvorki réttlát né nauðsynleg forsenda staðgreiðslukerfisins, eins og haldið er fram í grg. með frv. Í öðrum löndum, þar sem staðgreiðslukerfi er notað, eru ýmsir frádráttarliðir í gildi og sem tillit er tekið til í skattkorti viðkomandi. Ég nefni þar enn, eins og ég gerði við 1. umr., það fyrirkomulag sem tíðkast í Bretlandi þar sem töluverð reynsla er komin á staðgreiðslukerfi skatta. Þar eru ýmsir afslættir í gildi og koma þeir einfaldlega fram á skattkorti viðkomandi. Það frv. sem við erum hér með og staðgreiðslufrv. sem fylgir þessu frv. er hins vegar íslensk sérsmíði, eins og fram kom í störfum nefndarinnar, og hefur, eftir því sem upplýstist í fjh.- og viðskn., lítið tillit verið tekið til við smíði þessara frv. hvernig fyrirkomulag þessara mála er í nágrannalöndum okkar. Ég tel það mjög miður því ég held að það sé sjálfsagt að nýta sér reynslu annarra þjóða og ég tala nú ekki um í jafnviðamiklum málum og þeim sem hér eru nú undir.

Þessi mikla einföldun á skattkerfinu, á álagningarkerfinu hefur einnig í för með sér að svigrúm til að taka tillit til mismunandi aðstæðna launamanna er verulega skert, eins og segir í nál., og þau tekjujöfnunaráhrif, sem álagning tekjuskatts hefur hingað til haft, eru fyrir borð borin. Þetta tel ég ákaflega hættulegt. Að vísu má taka á tekjujöfnunarþættinum í öðrum lögum. Það má gera það t.d. hvað varðar húsnæðismálin í húsnæðislögunum og það má gera það einnig í tryggingalögum. En engar tillögur hafa komið fram frá hæstv. ríkisstjórn samhliða þessum frumvörpum um slíkt, þannig að ég get ekki séð að það sé á dagskrá hjá ríkisstjórninni að mæta þessari útflatningu á skattkerfinu með einhverjum öðrum ráðstöfunum hvað varðar þá hópa í þjóðfélaginu sem greinilega koma til með að bera þyngri skattbyrði án þess að mega við því með tilkomu þessara frv. Í frv. er allt flatt út, álagningarkerfið er gert svo einfalt að það er marflatt. Við vitum hins vegar að aðstæður manna hér á landi eru mjög mismunandi og því er augljóst að jafneinfalt kerfi og þetta, sem tekur ekki neitt mið af misjöfnum aðstæðum manna, hlýtur að koma óréttlátlega út nema til annarra ráðstafana sé gripið.

Í öðru lagi felur frv. í sér tilflutning á skattbyrði frá einhleypingum og barnlausum hjónum yfir á barnafjölskyldur. Þetta kemur glöggt fram sé skoðuð áætlun um vaxtaafslátt 1987 eftir fjölskyldum sem fylgir þessu nál. Þurfa menn ekki að vera undrandi á því að skattbyrðin flytjist á þennan hátt þar sem frv. felur í sér niðurfellingu á giftingarfrádrætti, skerðingu á ónýttum persónuafslætti maka, vaxtaafslátt í stað vaxtafrádráttar og húsnæðisbætur sem eru jafnháar til einhleypinga og til hjóna og greiðast einungis til þeirra sem byggja í fyrsta sinn án tillits til fjölskyldustærðar. Ef við skoðum aðeins það yfirlit sem fylgir með nál. um áætlun um vaxtaafslátt eftir fjölskyldum 1987 sjáum við að samkvæmt því kerfi sem nú er í gildi hefði meðalskattalækkun barnlausra hjóna árið 1986 orðið 24 þús. kr. Þessi skattalækkun hækkar í 28 þús. með tilkomu nýja kerfisins. Sama er að segja um einhleypinga. Þar er meðalskattalækkun 21 þús. áætluð 1986. Hún hækkar í 30 þús. 1987 miðað við nýja kerfið.

Þegar við komum hins vegar að barnafólkinu er þessu öfugt farið. Hjón með eitt barn hefðu fengið meðalskattalækkun 1986 27 þús. Hún lækkar niður í 24 þús. samkvæmt nýja kerfinu. Hjón með tvö börn hefðu fengið meðalskattalækkun 36 þús. og þarna er bilið stórt - hún lækkar niður í 24 þús. Hjón með þrjú börn og fleiri, og þarna er bilið stærst, hefðu fengið meðalskattalækkun 37 þús. samkvæmt gamla kerfinu, en hún verður 16 þús. samkvæmt nýja kerfinu.

Þarna er höggvið í þann knérunn sem síst skyldi, hæstv. fjmrh. Þarna er gengið lengst á hag barnmargra fjölskyldna og ef einhver efast um þá fjölskyldupólitík sem í þessum frv. felst og fram er sett af hæstv. ríkisstjórn held ég að sá hinn sami þurfi ekki lengur að velkjast í neinum vafa um það. Skattbyrðin er flutt frá barnlausum hjónum og einhleypingum til þeirra sem börn eiga. Það má með sanni segja að hvað þetta varðar eru þessi frv. aðför að barnafjölskyldum í landinu.

Rétt er að geta þess að í frv. er að vísu gert ráð fyrir barnabótum, en þær eru svo litlar að þær geta ekki vegið þungt í afkomu heimilanna. Að öðru leyti er ekkert tillit tekið til fjölskyldustærðar í þessum frv. og því er deginum ljósara að skattbyrði barnafjölskyldna verður óréttlátlega þung miðað við skattbyrði annarra. Jafnframt flytur frv. skattbyrðina frá hátekjuhópum til millitekjuhópa þar sem með einni skattprósentu í stað stighækkandi prósentu er að öðru óbreyttu verið að færa skattbyrðina frá þeim sem hæstar tekjur hafa til þeirra sem meðaltekjur hafa og ekki njóta til fulls hærri skattleysismarka. Þetta kemur reyndar glöggt fram í þeim línuritum sem fylgja með frv. Í þessu sem öðru er núv. ríkisstjórn söm við sig, þ.e. skattbyrðin er létt enn frekar á hátekjufólki en það telst til nýmæla í þessum frumvörpum að hún er færð yfir á barnafjölskyldur.

Þriðja megineinkenni þessa frv., sem við erum hér að ræða, er að sjónarhóll frv. virðist fyrst og fremst vera ríkissjóður fremur en hagur þess fólks sem við álagningarákvæði frv. á að búa. Það kom fram í störfum fjh.- og viðskn. og einnig er það ljóst, séu greinargerðir með frv. skoðaðar, að þeir útreikningar sem frv. byggir á miðast við að afkoma ríkissjóðs verði svipuð og í núgildandi skattkerfi og launamönnum síðan komið fyrir innan þess ramma. Upphæðir persónuafsláttarins og húsnæðisbótanna eru ákvarðaðar með þetta í huga en ekki hvernig þessir frádráttarliðir nýtast mismunandi tekjuhópum.

Jafnframt hefur í störfum fjh.- og viðskn. komið fram að þeir útreikningar sem að baki frv. liggja eru mjög takmarkaðir og ónákvæmir, bæði hvað varðar þann grunn sem þeir byggja á og einnig áætlanir um einstaka kostnaðarþætti.

Í fjh.- og viðskn. reyndu menn til hins ýtrasta að fá auknar upplýsingar í þessu máli þannig að nefndarmenn hefðu einhver tök á að meta áhrif þessa frv. Það var beðið um margvíslegar upplýsingar og í ljós kom að töluverður hörgull var á þeim, enda margt sem beðið var um ekki verið unnið áður en frv. var lagt fram. Ég þakka fyrir þær upplýsingar sem ég hef fengið, en ég vil jafnframt taka fram að mikið skortir á að ég hafi fengið þær upplýsingar sem ég bað um.

Þann 2. mars s.l. skrifaði ég Þjóðhagsstofnun bréf og bað um eftirfarandi upplýsingar: Ég bað um upplýsingar um skiptingu vaxtafrádráttar vegna húsnæðiskaupa í núverandi skattakerfi eftir fjölda barna og tekjubilum framteljenda ásamt kostnaði ríkissjóðs vegna þess, skipt eftir fjölda barna. Ég bað um sömu stærðir samkvæmt húsnæðisbótafyrirkomulagi fyrirliggjandi frv. um tekjuskatt og eignarskatt og ég bað um kostnað ríkissjóðs vegna bráðabirgðaákvæða I og II í tekju- og eignarskattsfrv. Þessi kostnaðarliður hefur þrátt fyrir ítrekaða leit ekki fundist og virðist hvergi vera ráð fyrir honum gert í þeim áætlunum sem liggja að baki þessu frv.

Einnig bað ég í hv. fjh.- og viðskn. um að nefndin fengi til skoðunar drög að þeim reglum sem fjmrh. hygðist setja vegna sannanlegs kostnaðar í starfi skv. 3. gr. staðgreiðslufrv. þar sem kveðið er á um útvíkkun skattstofnsins. Ljóst er að ráðherra mun þurfa að setja allítarlega reglur um hvernig að þessu skuli staðið. Ég bað um drög að þessum reglum. Þau hef ég ekki fengið. Ég bað um að fá það útreiknað hvernig tekjuskattsdæmið kæmi út fyrir mismunandi fjölskyldustærðir og tekjubil með húsnæðisþættinum áætluðum inn í. Ég bað um mat á því hverju breytt húsnæðislánakerfi mundi breyta um áætlaðan fjölda þeirra sem kaupa í fyrsta sinn og þar með það fjármagn sem varið yrði til þessa hóps skv. frv. og er um kostnaðarlið ríkissjóðs að ræða. Ekkert af þessu hef ég fengið.

Ég er ekki að sakast við hv. formann fjh.- og viðskn. í þessu efni. Hann gerði sitt ýtrasta til að nefndarmenn fengju þær upplýsingar sem óskað var eftir. Ég er heldur ekki að sakast við þær stofnanir sem hafa séð um að vinna þessar upplýsingar. Tíminn var einfaldlega allt of stuttur og frv. er allt of illa undirbúið til þess að þessar upplýsingar hafi getað legið fyrir á þeim tíma sem við höfum haft til ráðstöfunar í fjh.- og viðskn. til að fjalla um frv. Það er því ljóst að á þeim grunni sem frv. byggir á og á þeim upplýsingum sem fram eru komnar er í raun og veru ekki nokkrum lifandi manni fært að leggja heildarmat á áhrif þessara frumvarpa.

Ég vil benda á að þessi skoðun kemur einnig fram í áliti Alþýðusambands Íslands sem er prentað sem fskj. með meirihlutaáliti um þetta frv. Þar kemur fram að Alþýðusamband Íslands treystir sér heldur ekki á grunni þeirra upplýsinga sem fram eru komnar í þessu máli að leggja mat á heildaráhrif þessara frumvarpa. Það er því alveg ljóst að við erum hér með í höndunum meiri háttar breytingar, grundvallarbreytingar á álagningarkerfi tekjuskatts hér á landi, án þess að nokkur, hvorki í kerfinu sjálfu, á hv. Alþingi né heldur hagsmunaaðilar úti í þjóðfélaginu, sé fær um að leggja mat á áhrif þess. Ég vil að þetta komi hér skýrt fram og ég gagnrýni mjög þessi vinnubrögð og tel þau til lítils sóma fyrir þessa hv. stofnun.

Skynsamlegast hefði vitaskuld verið að vinna þetta frv. betur og leggja það fram að nýju á komandi haustþingi á traustari tölulegum grunni, enda er ljóst að þess þings bíður að endurskoða meira og minna öll ákvæði þessa frv., eins og fram kom í máli hv. formanns fjh.- og viðskn. áðan þegar hann mælti fyrir meirihlutaáliti nefndarinnar og viðurkennt er í meirihlutaálitinu sjálfu. Það er hins vegar deginum ljósara að það er þessari ríkisstjórn og þá kannske einkum og sér í lagi fjmrh. hennar pólitískt kappsmál að koma þessu frv. í gegnum hv. Alþingi fyrir kosningar í vor og því er eðlileg skynsemi í vinnubrögðum greinilega ekki á dagskrá í þessu máli. Þetta gagnrýna ég mjög harðlega og tel þessum málum öllum til mikils vansa.

Þar sem svona háttar til um pólitíska afstöðu hér innan dyra er vitaskuld ekki um annað að ræða í þessu máli en reyna að sníða helstu vankantana af þessum frumvörpum með brtt. Í því skyni hef ég flutt allnokkrar brtt. við frv. sem er að finna á þskj. 772 og ég skal nú gera nokkra grein fyrir. Jafnvel þótt svo ólíklega vildi til að þær fengjust samþykktar, sem miðað við hvernig mál ganga hér á hv. Alþingi er allsendis ólíklegt, er björninn ekki unninn í þessu máli. Þessar tillögur miða því fyrst og fremst að því að sníða helstu vankantana af þessu frv. Þær ætla sér ekki meir.

Í fyrsta lagi taka þessar tillögur til niðurfellingar samsköttunarákvæða frv. og gera ráð fyrir auknum greiðslum barnabóta í staðinn. Í þessu frv. er gengið lengra í þá átt en áður að veita tekjuhærri maka afslátt frá skatti fyrir að hafa tekjulægri eða tekjulausan maka á framfæri sínu óháð fjölskyldustærð. Þetta samsköttunarákvæði kom fyrst inn í skattalögin á haustþinginu 1984 og síðan var það enn aukið, þ.e. það var enn rýmkað og gert víðtækara á haustþinginu 1985. Í bæði þessi skipti mælti ég eindregið gegn þessari breytingu. Á haustþinginu 1984 gerði ég svofellda grein fyrir afstöðu Kvennalistans í þessu máli, með leyfi forseta:

„Sú samsköttunarregla hjóna sem 3. gr. frv. (þ.e. þess frv. sem þá var til umræðu] hljóðar upp á er frá sjónarmiði fjárhagslegs sjálfstæðis giftra kvenna tvímælalaust spor aftur á bak. Með þessari reglu er lægra launaði makinn, í langflestum tilfellum konan, gerð að nokkurs konar viðhengi maka síns og í leiðinni er með nokkru verið að réttlæta lág laun kvenna úti á vinnumarkaðnum. Skattalögin eru með þessu ákvæði í raun að taka tillit til þess að flestar konur bera ákaflega lítið úr býtum úti á vinnumarkaðnum. Réttlæting á lágum launum kvenna á hvergi heima, hvorki í skattalögum né annars staðar. Vilji menn bæta hlut kvenna að þessu leyti og sjá til þess að þær njóti ávaxta erfiðis síns á að hækka laun þeirra úti á vinnumarkaðnum, m.a. með endurmati á störfum þeirra þar, og bæta aðbúnað barna þeirra í þjóðfélaginu því að öðruvísi geta konur ekki staðið jafnfætis körlum á vinnumarkaðnum.

En samsköttun hjóna snýst ekki aðeins um tekjumismun hjónanna. Hún virðist í fljótu bragði vera skref í þá átt að meta einhvers þau ólaunuðu störf sem unnin eru inni á heimilunum, heimilisstörfin. En eins og þetta er sett fram í 3. gr. þessa frv. er hér því miður um gersamlega óviðunandi fyrirkomulag á mati á heimilisstörfum að ræða ef það er þá meiningin.

1. Heimilisstörf eru unnin á öllum heimilum, ekki einungis heimilum hjóna eða sambýlisfólks, þannig að ef hér er verið að meta heimilisstörf ætti þetta ákvæði að ná til allra heimila og sambúðarforma sem fyrir hendi eru í þjóðfélaginu innan þeirra tekjumarka sem greinin kveður á um.

2. Ef hér er um mat á heimilisstörfum að ræða ættu launin fyrir þau að skrifast á þann sem heimilisstörfin vinnur en ekki þann sem heimilisstarfanna nýtur eins og gert er ráð fyrir“ - og einnig er gert ráð fyrir í þessu frv. „Í reynd þýðir þetta að tekjuhærri makinn, í flestum tilfellum eiginmaðurinn, fær afslátt frá skatti vegna þess að hann hefur konu heima til að sinna heimilisstörfunum. Heimavinnandi aðilinn skoðast þá á framfæri þess sem teknanna aflar. Sá útivinnandi fær afslátt fyrir að hafa heimavinnandi á sínu framfæri í stað þess, sem réttlátara væri, að sú heimavinnandi njóti sjálf launanna af störfum sínum.“

Svolítið síðar segir, með leyfi forseta: „3. Sé um mat á heimilisstörfum að ræða tekur það mat ekki tillit til þeirra kvenna sem vinna fulla vinnu utan heimilis og síðan heimilisstörfin að auki, kvenna sem búa að fullu við tvöfalt vinnuálag og getur það ekki talist réttlátt.

4. Það er lögfræðilegt álitamál hvort starfsmat eigi að fyrirfinnast í skattalögum, hvort skattalög eigi ekki að vera hlutlaus að þessu leyti og að í þeim eigi starfsmat ekki heima. Að öllu samanlögðu er ég andvíg þessu samsköttunarákvæði. Það vinnur gegn fjárhagslegu sjálfstæði kvenna og tekur ekki til heimilisstarfa á réttlátan hátt. Ef heimilisstörf eru metin til launa á að greiða þeim sem störfin vinna þau laun, ekki öðrum“, og þá reglu höfum við Kvennalistakonur lagt til grundvallar í afstöðu okkar til þessara samsköttunarákvæða skattalaganna sem komist hafa í tísku á undanförnum þremur árum og flutt hafa verið inn í þingið af núv. ríkisstjórn.

Eins og ég hef hér til talið brýtur þessi samsköttunarregla í bága við sérsköttunarreglu skattalaganna og er í rauninni makalaus óvirðing við fjárhagslegt sjálfstæði tekjulægri eða tekjulausa makans, í flestum tilfellum heimavinnandi kvenna. Fjárhagslegt sjálfstæði allra einstaklinga án tillits til kynferðis og hjúskaparstöðu er grundvallaratriði í þeirri viðleitni að tryggja jafnrétti kvenna og karla hér á landi og því ber að virða það í skattalögum sem og öðrum lögum. Hins vegar er nauðsynlegt að taka tillit til fjölskyldustærðar skattgreiðenda í skattalögum og því liggur beinast við að nýta þá fjármuni sem frv. gerir ráð fyrir að fari til samsköttunar til hækkunar barnabóta. Því er í brtt. á þskj. 772 lagt til að þeim 1750 millj. kr. sem skv. frv. og gildandi skattalögum yrði varið til samsköttunar hjóna, og ég vek athygli hv. þingdeildarmanna á því að hér er ekki um smáar fjárhæðir að ræða, 1 milljarð 750 millj. kr., að þessu fé yrði varið til hækkunar barnabóta í staðinn fyrir að verja því til samsköttunar. Hér yrði um nærfellt 100% hækkun barnabóta að ræða þannig að bætur með fyrsta barni hækkuðu úr 12 625 kr. í 24 900 kr. og bætur með hverju barni umfram eitt úr 18 910 kr. í 37 295 kr. Með þessu móti er fjárhagslegt sjálfstæði heimavinnandi virt í skattalögum, greiðslu fyrir unnin störf er skilað til þeirra í stað þess að maki þeirra fái afslátt fyrir að hafa heimavinnandi á framfæri sínu og aukið tillit er tekið til fjölskyldustærðar í lögunum sem er brýn nauðsyn miðað við þá hlutfallslegu þyngingu á skattbyrði barnafjölskyldna sem frv. felur í sér og ég fjallaði um áðan. Þessar brtt. er að finna í 1., 2., 3., 4. og 5. lið a og b á þskj. 722, í 6. lið a, b og d, þannig að hv. þingdeildarmenn viti hvar þær er að finna þá er að atkvæðagreiðslu kemur. Með þessu er reynt að taka fyrir þá makalausu vanvirðingu við störf heimavinnandi og tekjulágra kvenna sem í þessu felst og jafnframt unnið á móti þeirri aðför að barnafjölskyldum sem í þessu frv. er að finna.

Ég vil láta þess getið að stjórn Kvenréttindafélags Íslands hefur sent frá sér umsögn um þetta atriði frv. sem ég vil lesa, með leyfi forseta:

„Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Kvenréttindafélags Íslands 2. mars s.l.:

Fundur stjórnar Kvenréttindafélags Íslands 2. mars 1987 mótmælir alfarið fram komnu ákvæði í 10. gr. frv. til l. um breytingar á lögum nr. 75/1981 þar sem heimiluð er millifærsla á persónuafslætti milli hjóna. Telur stjórnin þá hugsun sem í frv. þessu felst vera andstæða jafnrétti og vill að í stað millifærsluliðar verði barnabætur stórhækkaðar. Með því er komið til móts við fólk með börn á framfæri án tillits til hjúskaparstöðu.

Virðingarfyllst,

f.h. stjórnar Kvenréttindafélags Íslands.

Björg Jakobsdóttir framkvæmdastjóri.“

Þetta mun hafa verið sent öllum hv. alþm. og einnig fjölmiðlum. Þannig er ljóst að hvað þetta atriði varðar eru kvennahreyfingar landsins sammála, en því miður er hlutur þeirra á Alþingi ekki nógu stór til að koma í veg fyrir að þetta samsköttunarákvæði gildi áfram og verði öllu víðtækara en nú er ef að líkum lætur. Ég legg mikla áherslu á þetta atriði og bið hv. þingdeildarmenn að gaumgæfa það vandlega áður en að atkvæðagreiðslu kemur.

Í öðru lagi er á þskj. 772 gerð tillaga er varðar námsmenn sérstaklega og felur í sér að upp verði tekinn sérstakur námsafsláttur. Í frv. er skattbyrði þeirra sem fara í langskólanám þyngd sérstaklega með niðurfellingu á námsfrádrætti, niðurfellingu á uppsöfnun eftirstöðva námsfrádráttar til lækkunar á tekjuskattsstofni eftir nám og staðgreiðslu skatta á fyrsta tekjuári eftir nám. Eins og að ofan greinir er niðurfelling frádráttarliða engan veginn forsenda staðgreiðslukerfis skatta og til að mæta aðstæðum þessa hóps er lagt til að námsmenn, sem náð hafa 20 ára aldri og tekið verðtryggð lán frá Lánasjóði ísl. námsmanna til námsins, skuli njóta sérstaks námsfrádráttar frá tekjuskatti á fyrsta tekjuári eftir nám að upphæð 18 þús. kr. Þessi upphæð er þannig fundin að hún tekur mið af upphæð óráðstafaðs námsfrádráttar við álagningu 1986, en í stað þess að dreifa afslættinum á nokkur ár er þessi upphæð margfölduð með þremur og þá gert ráð fyrir að námsmenn njóti þess sem svarar þremur árum, en hún síðan greidd út á einu ári og nýtist námsmanni aðeins í eitt skipti til að vega upp á móti þeirri þyngingu skattbyrði sem frv. felur í sér fyrir þennan hóp.

Það er viðurkennt í nál. meiri hl. að eitthvað þurfi að gera hvað þetta varðar. Ég sé enga ástæðu til að bíða með aðgerðir að þessu leyti. Það er ekki mikill vandi að taka á þessu máli strax og því er þessi till. nú flutt. Hún tekur sérstakt mið af því að það sem mun vera erfiðast fyrir námsmenn við gildistöku þessara frv. er að fyrsta árið sem þeir hafa tekjur eftir að námi lýkur verður ekki lengur skattlaust eins og er í eftiráálagningarkerfinu heldur munu þeir þurfa að greiða skatta strax af sínum launum. Því kemur þessi afsláttur til útborgunar aðeins einu sinni og þá á þessu fyrsta ári til að vega upp á móti þessu atriði.

Í þriðja lagi er á þskj. 772 gerð brtt. hvað varðar húsnæðisbæturnar. Eins og segir í nál. er vaxtafrádráttur vegna húsnæðiskaupa afnuminn í þessu frv. og þess í stað gert ráð fyrir sérstakri greiðslu húsnæðisbóta til þeirra sem eru að kaupa húsnæði í fyrsta sinn. Það er vitaskuld álitamál hvort taka eigi með beinum hætti á húsnæðismálum í skattalögum. Lögin um Húsnæðisstofnun ríkisins kunna að vera öllu heppilegri vettvangur. Bent skal á að ná má sömu markmiðum og frv. gerir ráð fyrir með því að lækka vexti af lánum Húsnæðisstofnunar til þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn um um það bil 1,5%. Samkvæmt gildandi lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins er ákvörðun vaxta af lánum hennar í höndum ríkisstjórnar þannig að það þarf ekki einu sinni lagabreytingu til að ná þessu marki. Ég bendi hérna á þetta og vil jafnframt láta þess getið að okkur Kvennalistakonum finnst öllu heppilegra að taka á málum eins og húsnæðismálum í lögum um Húsnæðisstofnun en að taka þau beint inn í skattalög.

Hins vegar er það ekki í nokkru samræmi við veruleikann í húsnæðismálum hér á landi að taka aðeins tillit til þeirra sem eru að koma sér upp húsnæði í fyrsta sinn eins og frv. kveður á um, þar sem húsnæðisbæturnar greiðast aðeins til þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Flestir ef ekki allir hér á landi þurfa fleiri en eina atrennu til að komast í fullnægjandi húsnæði. Það sýnir okkur reynslan á undanförnum árum. Miðað við núgildandi lög um Húsnæðisstofnun ríkisins sem veita kaupendum í fyrsta sinn öllu hærra lán en öðrum og taka ekki tillit til fjölskyldustærðar húskaupenda má ætla að erfiðasti þröskuldurinn við öflun húsnæðis sé önnur og þriðja atrenna barnafjölskyldna til að komast í viðunandi húsnæði. Þess vegna er lagt til á þskj. 772 að ákvæðið um sérstakar húsnæðisbætur nái fyrst og fremst til þeirra sem búa í ófullnægjandi húsnæði miðað við fjölskyldustærð samkvæmt reglum sem Húsnæðisstofnun setur þar um. Er með þessu komið til móts við þær staðreyndir að fæstum tekst að komast í fullnægjandi húsnæði í fyrstu atrennu, þá ófrávíkjanlegu staðreynd að húsnæði þrengist eftir því sem börnum fjölgar og að núgildandi húsnæðislög taka ekki tillit til fjölskyldustærðar heldur eingöngu til þess í hvert skipti viðkomandi festir kaup á húsnæði. Jafnframt er í þessu tekið mið af þeirri staðreynd að frv. eykur hlutfallslega skattbyrði barnafjölskyldna og jafnvel þótt barnabætur til þeirra séu auknar, eins og gert er ráð fyrir í þeim brtt. sem fluttar eru á þskj. 772, vegur það engan veginn nægilega upp á móti. Þess vegna er einnig brýnt að taka sérstakt tillit til þeirra að þessu leytinu til.

Ég vil láta þess getið að svipuð skoðun hvað varðar húsnæðisþáttinn kemur einnig fram í áliti sem stjórn Bandalags háskólamanna þeirra sem hjá ríkinu vinna hefur sent frá sér, en þar segir, með leyfi forseta:

„Stjórn BHMR telur að miða eigi bótakerfi vegna húsnæðiskaupa við það hverjir þurfa á sérstakri fyrirgreiðslu samfélagsins að halda. Gallinn við fyrirliggjandi frv. er sá að þeir sem eru að eignast sitt fyrsta húsnæði eru ekki nauðsynlega þeir sem búa í ófullnægjandi húsnæði miðað við fjölskyldustærð og greiðslugetu.“

Og síðan segir: „Fyrirliggjandi tillaga mun fyrirsjáanlega flytja styrki frá fjölskyldum sem nú búa margar hverjar í of litlu húsnæði til barnlausra hjóna og einstaklinga. Í skýrslu Þjóðhagsstofnunar dags. 3.3.1987 er sýnt að vaxtaafsláttur skv. bráðabirgðaákvæðum frv. flytur skattbyrði frá fjölskyldum almennt til einstaklinga og sérstaklega frá hjónum með börn til barnlausra hjóna og einstaklinga. Vaxtaafsláttur í samanburði við vaxtafrádrátt flytur einnig skattbyrði frá hjónum sem bæði afla tekna til hjóna með eina fyrirvinnu. Hið mikilvæga er að hagur barnafjölskyldna er fyrir borð borinn.“

Aðalatriðið í þessu máli er að fyrstasinnákvæðið bæði í þessu frv. og eins í gildandi húsnæðislögum er í rauninni fjarri öllum veruleika í húsnæðismálum hér á landi. Við vitum að allir þurfa fleiri en eina atrennu til að komast í viðunandi húsnæði. Að vísu mun þetta breytast nokkuð með nýju húsnæðislögunum, þ.e. þegar þau fara að virka, vegna þess að með því að heimila stóraukin lán til fyrstasinnkaupenda geta þeir keypt stærra en ella þannig að e.t.v. hefur þá einhver hópur þeirra von um að komast í viðunandi húsnæði strax í fyrstu atrennu. Þó ekki allur hópurinn. En það er sá hópur sem verst hefur orðið úti í húsnæðismálunum á undanförnum árum sem þessi brtt. vísar einkum og sér í lagi til. Það er stór hópur barnafjölskyldna sem býr í ófullnægjandi húsnæði, nýtur ekki fyrstasinnákvæðisins í lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins og á harla litla möguleika á því að komast í fullnægjandi húsnæði miðað við fjölskyldustærð. Þessi brtt. tekur ekki síst til þessa hóps og brýn nauðsyn er á að taka sérstakt tillit til hans. Einnig má gera ráð fyrir að standist núgildandi húsnæðislög það próf að hægt sé að framkvæma þau um eitthvert árabil, sem áhöld eru reyndar um, fari kostnaður vegna þessa ákvæðis minnkandi með hverju ári sem líður.

Í fjórða lagi er á þskj. 772 gerð tillaga um framreiknun bóta og afsláttarliða. Í frv. er gert ráð fyrir að upphæðir persónuafsláttar, sjómannaafsláttar, barnabóta, barnabótaauka og húsnæðisbóta séu framreiknaðar tvisvar á ári í samræmi við lánskjaravísitölu. Meðan verðbólga er einhver hér á landi, og annað er víst ekki treystandi á, rýrna þessar fjárhæðir sem henni nemur á reikningstímabilinu. Til að sporna við slíkri rýrnun þessara bóta og afsláttarliða er nauðsynlegt að reikna upphæð þess afsláttar sem tillaga er gerð um oftar og því er lagt til að það verði gert mánaðarlega í stað tvisvar á ári. Þarna er verið að koma í veg fyrir sjálfkrafa þyngingu skattbyrðinnar ef verðbólga er hér einhver vegna þess hversu sjaldan fjárhæðir bóta og afsláttarliða eru reiknaðar samkvæmt því sem gert er ráð fyrir í frv.

Að endingu tekur 1. minni hl. fjh.- og viðskn. fram í nál. sínu að mjög mikilvægt sé að hækka skattleysismörk frá því sem ráð er fyrir gert í frv. þannig að tekjuskattur af meðaltekjum og þaðan af lægri verði afnuminn. Samkvæmt samþykkt Alþingis og yfirlýstri stefnu þessarar ríkisstjórnar hefur staðið til að lækka í áföngum tekjuskatt af almennum launatekjum. Framlagning þessara frumvarpa sýnir í sjálfu sér að ekki er við það staðið af núv. ríkisstjórn. Ljóst er að meðaltekjur eru fyrir ofan það sem nemur skattleysismörkum eins og þau eru fram sett í þessum frumvörpum. Ein leið til að mæta þessu er að hækka skattleysismörkin enn frekar en orðið er og það er tvímælalaust vilji okkar Kvennalistakvenna. En til að mæta því tekjutapi sem ríkissjóður yrði fyrir af þessu væri eðlilegt að hafa skattþrep hins nýja kerfis tvö og leggja hærri skattprósentu á tekjur ofan ákveðins marks. Eins og segir í nál. er ekki enn ljóst hvernig skattlagningu á eigna- og fjármagnstekjur verður háttað, en þær eru mikilvægur þáttur heildartekna launamanna. Því leggur 1. minni hl. ekki fram till. nú um hvar skuli draga mörkin í þessu efni né hversu há skattprósenta efra skattþreps skuli vera heldur bíðum við með slíka tillögugerð til upphafs næsta þings og þeirrar endurskoðunar sem þá mun óhjákvæmilega fara fram á ákvæðum þessa frv., enda liggja þá væntanlega fyrir ítarlegri upplýsingar en nú um tekjur landsmanna og álagningu annarra beinna skatta.

Virðulegi forseti. Með þeim brtt. sem ég hef hér gert grein fyrir legg ég til að þetta frv. verði samþykkt. Ég vil taka það strax fram að verði þessar brtt. felldar mun ég ekki greiða þessu frv. atkvæði mitt.