09.03.1987
Efri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3822 í B-deild Alþingistíðinda. (3434)
340. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Forseti. Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir varpaði hér fram spurningum sem mér er ekki auðið að svara, en hæstv. ráðh. er í atkvæðagreiðslu í Nd., þar eru nafnaköll skilst mér. En það verður haldið hér áfram kl. 21.00 í kvöld og ég spyr hvort við getum ekki klárað 2. umr. til atkvæða eins og um fyrra frv. og ég mun þá beina þessum spurningum til ráðherra sem hann gæti þá svarað við 3. umr. ef þm. samþykkir.