09.03.1987
Efri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3824 í B-deild Alþingistíðinda. (3437)

341. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda

Frsm, meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Þetta mál hefur einnig verið skoðað í hv. fjh.- og viðskn. Meiri hl. flytur smávægilegar brtt. Þær varða ekki efnisatriði frv. heldur eru þær fluttar til að lagfæra mistök sem urðu við endanlegan frágang frv. Þetta er eingöngu um gildistöku. Það er að vísu nýmæli í íslenskri lagagerð að gera önnur lög gild með sérstökum lögum, en þó að ég sé stundum dálitið íhaldssamur hygg ég að þetta geti verið nokkuð þægilegt og smellið í þessu tilfelli og kannske fleiri tilfellum.

Meiri hl. nefndarinnar mælir með samþykkt frv.