09.03.1987
Efri deild: 52. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3828 í B-deild Alþingistíðinda. (3457)

342. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. (Stefán Benediktsson):

Frú forseti. Ég hef leyft mér að flytja skriflega brtt. við þetta frv. um að síðari mgr. 32. gr. frv. falli niður. Þessi mgr. staðgreiðslufrv. fjallar um 1% gjald sem sveitarfélögum er gert að greiða vegna aukins kostnaðar ríkisins af framkvæmd þeirra frumvarpa sem hér er verið að samþykkja. (RA: Er það ekki 0,5?) Ég var að koma að því, hv. 3. þm. Norðurl. v. Þessu var að vísu núna í 2. umr. breytt í 0,5%, en breytir ekki þeirri staðreynd að hér er um algera hækkun útsvars að ræða því að sveitarfélögin hafa alveg sama kostnað ef ekki hugsanlega meiri af framkvæmd þeirra laga sem hér er verið að samþykkja. Það virðist ekki af þeim tölum sem við höfum séð vera mikið svigrúm hjá sveitarfélögum til að bæta á sig eða þegna þeirra og því eðlilegt að leggja það einfaldlega til að þetta ákvæði verði fellt niður. Auk þess hefur margkomið fram gagnrýni sveitarfélaga, bæði stórra og smárra, á þetta ákvæði. Þess vegna, frú forseti, hef ég leyft mér að flytja þessa brtt.

Ég tel bæði þennan þátt og ýmsa aðra þætti innheimtuáforma þessa frv. alls ekki nægjanlega vel frá gengna og hallast að því að taka undir þær skoðanir, sem fram hafa komið hjá sveitarstjórnum, að það verði raunverulega alls ekki hægt að framkvæma staðgreiðsluna með þeim hætti sem áformað er þó að ég hafi ekki getað mótað í þeim flýti sem verið hefur á afgreiðslu þessara mála brtt. við þetta frv. sem með einhverju móti gætu kippt þeim hlutum í lag sem einkum hafa sætt gagnrýni af hálfu sveitarfélaganna. En þar skiptir kannske mestu það atriði að stjórnir sveitarfélaga telja að með því að færa innheimtuna þetta langt frá uppruna sínum, þ.e. þegnum sveitarfélaganna, náist ekki sá árangur sem næst með hinum beinu persónulegu samskiptum milli gjaldheimtu og/eða sveitarstjórna við innheimtu gjaldanna. En þá verður bara að vona að þessir hlutir verði skoðaðir í ljósi þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið hjá sveitarfélögunum og reynt að breyta þeim á hausti komanda.