09.03.1987
Neðri deild: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3850 í B-deild Alþingistíðinda. (3490)
399. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu hv. 4. þm. Norðurl. e. skipaði hæstv. félmrh. nefnd til að semja frv. um þetta málefni, húsnæðissamvinnufélög og búseturétt, 27. júní 1984. Þessi nefnd samdi frv. um þetta efni en það varð ekkert samkomulag á milli stjórnarflokkanna um að standa saman um að flytja þetta frv. og þess vegna flutti hæstv. félmrh. það ekki. Við hins vegar, sem vorum í félmn. og erum fyrir Framsfl., hv. þm. Stefán Guðmundsson og ég, fluttum þetta frv. á þinginu 1984-1985 en það náði ekki fram að ganga.
Hv. 4. þm. Norðurl. e. Steingrímur J. Sigfússon kom með þetta frv. núna, sem er alveg nákvæmlega eins að mér sýnist og það frv. sem við fluttum fyrir tveimur árum, og bauð mér að vera meðflm. Það var auðséð að þetta frv. mundi aldrei fá neina afgreiðslu á þessu þingi og þess vegna þýðingarlítið að vera að leggja það fram. Hins vegar munu þeir sem fluttu þetta fyrir tveimur árum og ég hygg félmrh. ef hann hefur möguleika á því síðar að reyna að lögfesta þetta frv. sem hann lét semja eins og áður segir.
Ég hef svo ekki meira um þetta að segja því hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon er búinn að ræða efni frv. svo að engu er við það að öðru leyti að bæta.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.