10.03.1987
Sameinað þing: 60. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3859 í B-deild Alþingistíðinda. (3519)
369. mál, erlent áhættufjármagn
Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Nýlega var unnin á vegum viðskrh. skýrsla um erlenda fjárfestingu og íslenskt atvinnulíf þar sem má finna allgreinargóða lýsingu á stöðu þessara mála samkvæmt íslenskum rétti. Þessari skýrslu hefur verið dreift á Alþingi. Í henni kemur fram að í íslenskri löggjöf er víða að finna takmarkanir á nýtingu erlends fjármagns í þágu íslensks atvinnulífs og að nauðsyn beri til að endurskoða íslensk lög og kanna hvort ekki megi létta af hömlum á ýmsum sviðum. Í þessu skyni hefur forsrh. skipað nefnd þar sem þessi mál ná til nokkurra ráðuneyta. Þeirri nefnd er ætlað að kanna ákvæði íslenskra laga og gera tillögur um hvernig haga skuli löggjöf á því sviði þar sem slíkar takmarkanir er nú að finna.
Innan gildandi laga er þó stjórnvöldum oft veitt svigrúm til að leyfa rýmri notkun á erlendu áhættufé og hafa þannig erlendum aðilum verið veittar undanþágur til reksturs verslunarfyrirtækja skv. lögum nr. 41/1968, um verslunaratvinnu, til aukinnar þjónustu fyrir íslenskt atvinnulíf. Einnig hafa reglur um erlendar lántökur vegna fjármögnunarleigu á vélum og tækjum til nota í atvinnurekstri hér á landi verið rýmkaðar allverulega. Ljóst er að það er mikið starf enn þá óunnið í þessum málum og breyta þarf ýmsum ákvæðum til aukins frjálsræðis í þessum efnum, en gæta ber þess þó að hafa taumhald á því að ekki flæði erlent fjármagn inn í útflutningsatvinnugreinar landsmanna.
Með skipan áðurnefndrar nefndar til að kanna þetta mál enn fremur en þegar hefur verið gert má segja að stigin séu fyrstu skref til rýmkunar á rétti manna til að fjárfesta í íslensku atvinnulífi með erlendu áhættufjármagni.