10.03.1987
Sameinað þing: 60. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3860 í B-deild Alþingistíðinda. (3522)
369. mál, erlent áhættufjármagn
Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Út af orðum hv. 3. þm. Reykv. vil ég segja örfá orð. Ég taldi rétt að sú skýrsla sem unnin var yrði prentuð og send Alþingi þannig að allir alþm. fengju að kynnast því hvaða starf var á bak við þessa skýrslu og hvað þeir sem hana sömdu töldu að gera þyrfti. Allir þm. eiga því að standa jafnt að vígi hvað þetta snertir. Næsta skrefið í þessu var skipun þeirrar nefndar sem forsrh. ákvað að skipa. Það er fyrst og fremst til að samræma störf hinna einstöku ráðuneyta. Mitt álit er það að þegar sú nefnd lýkur sínum störfum sé komið að því að taka ákvarðanir sem verða vafalaust pólitískar ákvarðanir. Þá er það mín skoðun að það sé rétt að fulltrúar þingflokkanna eigi aðild að því. En það eru fyrst og fremst upplýsingagögnin sem fyrir liggja.