10.03.1987
Efri deild: 54. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3863 í B-deild Alþingistíðinda. (3529)

397. mál, fangelsi og fangavist

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um fangelsi og fangavist. Í apríl 1982 samþykkti Alþingi þál. um fangelsismál þar sem Alþingi ályktaði að kjósa sjö manna nefnd til að gera heildarúttekt á fangelsismálum og endurskoða lög og reglur þar að lútandi.

Með bréfi, dags. 5. febr. s.l., sendi nefndin mér frv. til laga um fangelsi og fangavist ásamt fylgifrv., þ.e. frv. til laga um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga, og tilkynnti nefndin jafnframt að hún hefði lokið störfum.

Frv. er lagt fram efnislega óbreytt eins og það kom frá nefndinni en á því hafa verið gerðar nokkrar orðalagsbreytingar. Frv. er endurskoðun á lögum nr. 38/1973, um fangelsi og fangavist, og þeim ákvæðum V. kafla almennra hegningarlaga sem fjalla um fangavist. Auk þess gerir frv. ráð fyrir að lögfest verði nokkur grundvallaratriði um réttarstöðu fanga og í IV. kafla frv., um öryggi í fangelsum og agaviðurlög, eru nokkur nýmæli.

Þær forsendur sem nefndin hafði við samningu frv. voru að hún tók mið af núverandi aðstæðum hér á landi í fangelsismálum og gerir frv. ekki ráð fyrir grundvallarbreytingum á framkvæmd fullnustu óskilorðsbundinna refsivistardóma. Þó hafði hún til hliðsjónar norræna löggjöf á þessu sviði, einkum sænsk og norsk lög.

Í I. kafla frv. er fjallað um stjórn og skipulag fangelsismála. Í 2. gr. er fjallað um tegundir fangelsa og hverja megi vista í fangelsum. Samkvæmt frv. skiptast fangelsi í tvo flokka, þ.e. afplánunarfangelsi og gæsluvarðhaldsfangelsi. Eins og ítarlega er fjallað um í grg. með frv. er hér um grundvallarbreytingu á stefnumótun að ræða. Afplánunarfangelsi kemur í staðinn fyrir núgildandi ákvæði um ríkisfangelsi, vinnuhæli og unglingavinnuhæli. Þau refsipólitísku sjónarmið sem lágu á bak við hugmyndir um ríkisfangelsi og reyndar unglingavinnuhæli líka eiga ekki hljómgrunn nú og eins og rakið er í grg. hefur vinnuhæli sem tegund fangelsis ekki neina sérstöðu. Afplánunarfangelsi samkvæmt skilgreiningu frv. er í reynd ekki annað en samheiti yfir þá staði þar sem afplánun refsivistar fer fram.

Í 2. gr. er tæmandi talið hverja vista megi í fangelsum. Slíkt ákvæði er ekki í lögum nú. Í þessu sambandi er rétt að vekja sérstaka athygli á tveimur atriðum. Í fyrsta lagi gerir frv. ráð fyrir að ekki verði lengur heimilt að vista í fangelsum þá sem úrskurðaðir eru til að vinna af sér ógreidd barnsmeðlög. Í reynd hafa þeir ekki verið í fangelsum síðan um 1970. Árið 1978 bárust ráðuneytinu nokkrir slíkir úrskurðir til framkvæmda, en þegar á reyndi óskaði Innheimtustofnun sveitarfélaga eftir því að þeim yrði ekki fullnægt.

Í öðru lagi er í 2. gr. heimild til að vista þá í fangelsum sem dæmdir eru í öryggisgæslu. Þetta ákvæði er sett í frv. vegna þeirrar staðreyndar að þessir menn hafa verið og eru enn vistaðir í fangelsum þótt það sé óviðunandi staða eins og margoft hefur komið fram í umræðum, m.a. hér á Alþingi.

Önnur lausn á því hvar vista eigi þessa menn hefur ekki fundist.

Í II. kafla frv. er það helsta nýmælið að skv. 6. gr. er lagt til að Skilorðseftirlit ríkisins í núverandi mynd verði lagt niður en sett verði á fót ný stofnun sem taki yfir núverandi hlutverk skilorðseftirlitsins en annist að auki félagslega þjónustu við fanga og aðra skjólstæðinga stofnunarinnar. Tilgangurinn er m.a. að sinna betur en nú félagslegri þjónustu við fanga og undirbúningi þeirra að því að koma út í þjóðfélagið á ný.

Árið 1978 var fullnusta á óskilorðsbundnum refsivistardómum tekin inn í ráðuneytið, en fram að þeim tíma hafði hún verið í höndum sýslumanna og bæjarfógeta. Tel ég að við athugun á þessu frv. í nefnd ætti að kanna hvort ekki sé ástæða til þess að víkka enn frekar starfssvið stofnunarinnar skv. 6. gr. þannig að hún hefði einnig með höndum fullnustu á refsivistardómum og sinnti öllum almennum erindum frá föngum.

Í III. kafla frv. er fjallað um almenn atriði varðandi framkvæmd fullnustu refsivistardóma og um vinnuskyldu, tómstundir, nám fanga og ýmis atriði varðandi réttarstöðu þeirra, svo sem um heimsóknir, bréfaskipti, símtöl o.fl.

Mörg af þessum atriðum eru nú í lögum en um önnur er fjallað í reglugerð. Þykir rétt að um nokkur grundvallarréttindi fanga séu skýr lagaákvæði. Samkvæmt núgildandi lögum er ungur fangi skilgreindur sem fangi yngri en 22 ára. Í 10. gr. frv. er þetta aldursmark lækkað um eitt ár og er þar ákvæði um að fanga 20 ára og yngri megi vista í sérdeild þar sem þeir yrðu látnir sæta sérstakri meðferð.

Í 15. gr. er það nýmæli að þar er ákvæði um að fanga skuli séð fyrir aðstöðu til tómstundaiðkana og líkamsþjálfunar. Núverandi aðstaða fanga til tómstundaiðkana og líkamsþjálfunar er mjög bágborin. Vinnuskylda fanga miðast við 40 klst. á viku en er í reynd minni. Fangar hafa mikinn tíma aflögu og er nauðsynlegt að þeim sé sköpuð aðstaða til hollra tómstundaiðkana.

Í 17. gr. er fjallað um heimsóknir til fanga. Í fangelsum landsins er ekki sérstök aðstaða fyrir heimsóknir og fara þær almennt þannig fram að gestir fá að fara inn í herbergi viðkomandi fanga. Skapar þetta mikil óþægindi í fangelsum og getur skapast hætta m.a. varðandi möguleika á að smygla pillum og fíkniefnum inn í fangelsið. Því er í þessa grein sett ákvæði þar sem heimilt er að leita á þeim sem ætla að heimsækja fanga. Í erlendum fangelsum eru víðast hvar sérstök heimsóknaherbergi þar sem heimsóknir til fanga fara fram.

Í IV. kafla frv. er fjallað um öryggi í fangelsum og agaviðurlög. Eru þar ýmis nýmæli. Í 22. gr. er ákvæði um að heimilt sé að gera upptækt áfengi, vímuefni og lyf sem fangi hefur við komu í fangelsi eða kemst yfir í því skyni. Einnig er þar upptökuheimild fyrir aðra muni sem smyglað er inn í fangelsi eða reynt að smygla þangað. Sérstakan rökstuðning fyrir heimild til upptöku á áfengi, lyfjum og vímuefnum ætti ekki að þurfa. Varðandi muni er það að segja að ekki er gert ráð fyrir að það eitt að reynt sé að smygla eða að munum sé smyglað inn í fangelsi valdi því að þeir séu gerðir upptækir. Upptökuheimildinni er einkum beint gegn munum sem fanga, samföngum eða starfsmönnum geta verið hættulegir eða nota má til stroks eða annarrar ólögmætrar starfsemi í fangelsinu. Ef ástæða þykir til að banna aðra muni er almennt gert ráð fyrir að þeir séu afhentir við lok afplánunar.

Í 23. gr. er heimild til að leita á fanga. Þetta atriði er ólögfest nú en í reglugerð um fangavist er heimild til að leita á fanga þegar ástæða þykir til. Í greininni eru leiðbeiningarreglur um hvenær megi gera slíka leit. Þar er einnig ákvæði um að leit innan klæða skuli gerð af starfsmanni sama kyns og fanginn.

Í 24. gr. er heimild til að taka þvag- og blóðsýni úr föngum. Tilgangurinn með þessari heimild er tvíþættur: Í fyrsta lagi þykir nauðsynlegt að hægt sé að ganga úr skugga um hvort fangi sé undir áhrifum áfengis og/eða lyfja og í öðru lagi eru fangar áhættuhópur margra alvarlegra smitsjúkdóma og þykir nauðsynlegt að hægt sé að staðreyna hvort þeir séu smitaðir jafnvel án þess að leyfi fáist fyrir því hjá þeim. Í þessari grein er einnig ákvæði um heimild til innvortis leitar á fanga. Ákvæði er um að slík leit verði einungis gerð af lækni eða hjúkrunarfræðingi.

Í 25. gr. er ákvæði um að heimilt sé að einangra fanga ef það þykir nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða til að koma í veg fyrir ólögmæta starfsemi fanga í fangelsinu. Þá er þar heimild til að einangrun sé beitt til að vernda fanga frá samföngum.

Í 26. gr. er fjallað um agaviðurlög. Eru þau ákvæði að mestu óbreytt frá núgildandi ákvæðum með þeim breytingum að heimilt er að beita áminningum fyrir minni háttar brot auk þess sem skilorðsbinda má ákvæði um agaviðurlög. Þá er heimild til einangrunar vegna agabrota stytt úr 90 dögum í 60. Þá er í greininni ákvæði um hvernig standa skuli að ákvörðun um beitingu agaviðurlaga en nú eru þau ákvæði í reglugerð.

V. kafli frv. fjallar um ýmis ákvæði. 27. gr. er efnislega samhljóða 2. gr. laga nr. 26/1983 þar sem lögfest var ákvæði um að óheimilt væri að innheimta opinber gjöld hjá föngum um ákveðinn tíma og að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum. Rétt er að athugað verði hvort þetta ákvæði verði ekki óþarft ef frv. til laga um staðgreiðslu skatta verður lögfest.

Hæstv. forseti. Ég tel að í frv. þessu felist mikil réttarbót þar sem núgildandi lög eru um margt ófullkomin og úrelt auk þess sem frv. skýrir um margt réttarstöðu fanga. Að skýr ákvæði gildi um réttarstöðu fanga dregur úr hættu á að þeir séu beitti órétti í fangavistinni og fyrir starfsmenn fangelsa er það jafnnauðsynlegt að ákvæði um réttarstöðu fanga séu skýr.

Nú er ljóst að ýmis ákvæði frv. kunna að vera umdeild. Á þessu sviði er alltaf spurning um hvað eigi að lögfesta og hvað ekki. Varðandi 2. gr. má t.d. benda á að þar er dómsmrh. falið ákvörðunarvald m.a. um stærð fangelsa, hvort þau eigi að vera opin eða lokuð og margt fleira.

Ég mun ekki ræða fleiri atriði frv. við þessa framsögu en legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.