10.03.1987
Efri deild: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3877 í B-deild Alþingistíðinda. (3548)

196. mál, tollalög

Stefán Benediktsson:

Frú forseti. Það standa náttúrlega engin efni til þess að halda hér einhverjar langar tölur um þetta frv. Eins og fram kom í máli hæstv. ráðh. er tilgangur þessa frv. fyrst og fremst sá að koma á samræmdri heildarlöggjöf, að ná fram markmiðum einföldunar í tollameðferð, að koma á nýrri yfirstjórn tollyfirvalda, ríkistollstjóra, að ákveða frekar en nú tollumdæmi, að skipuleggja og ákveða yfirstjórn tollgæslu, að breyta og þá endurbæta greiðsluaðferðir við uppgjör tolla og að koma á samræmingu og skýrari ákvæðum um úrlausn ágreiningsmála.

Ég vil aðeins nota tækifærið hér til þess að benda á það að fulltrúi Alþfl. í þeirri nefnd sem um þetta mál fjallaði í Nd. gerði athugasemdir við og flutti brtt. vegna embættis ríkistollstjóra og hafði það aðallega út á þá tilhögun að setja að gert er ráð fyrir því í frv. að tollstjórinn í Reykjavík verði jafnframt ríkistollstjóri og að tollstjórar um allt land verði síðan undirsátar þessa tollgæslustjóra í Reykjavík, sem er undirmaður tollstjórans í Reykjavík, sem á svo aftur að vera ríkistollstjóri samhliða sínu eigin embætti. Sem ríkistollstjóri verður þá tollstjórinn í Reykjavík yfirmaður sjálfs sín. Jafnframt er þessum embættismanni í Reykjavík ætlað að vera yfirmaður allra tollstjóra um allt land þótt hér sé náttúrlega um hliðstæð embætti að ræða og að því er tollgæslumál varðar eiga tollstjórar úti á landi að lúta undirmanni eins tollstjóranna, nefnilega þess sem situr í Reykjavík.

Ég er í þeirri nefnd sem fjalla mun um þetta mál hér í Ed. og fæ því tækifæri til þess að þetta atriði verði skýrt betur út fyrir mér og öðrum nefndarmönnum, en tek undir það með fulltrúa okkar í minni hl. fjh.- og viðskn. Nd. að þetta er í fyrsta lagi ekki alveg í samræmi við þær yfirlýsingar manna um valddreifingu sem mjög hafa nú verið háværar á seinustu misserum og í öðru lagi virðist þetta vera hálfgert klúður hvað valdskiptingu snertir þegar einn og sami maðurinn getur verið í raun og veru yfirmaður sjálfs sín.