14.10.1986
Sameinað þing: 3. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

20. mál, samningur milli Íslands og Bandaríkjanna

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég held að rétt sé að upplýsa að við upphaf þessa fundar töluðum við okkur saman, sem nýkjörnir höfum verið í hv. utanrmn., um það að halda fund strax að loknum þessum fundi og skipta þar með okkur verkum og taka þetta mál til meðferðar ef það hefur þá verið sent til nefndarinnar, en raunar er rétt að geta þess líka að við fjölluðum auðvitað um þetta mál áður en það kom fyrir almenningssjónir. Við höfum þess vegna haft mjög góðan tíma til að skoða það og raunar landsmenn kannske allir. En ég verð að segja það eins og það er að ég hélt satt að segja í upphafi fundar að menn væru meira sammála um þetta plagg, þessa tillögu, en komið hefur á daginn og er alveg ljóst að það verður að gefa sér tíma í nefndinni bæði til að skoða þær athugasemdir sem komið hafa fram efnislega um þetta mál og eins afstöðu flokkanna þannig að þetta mál verður auðvitað ekki afgreitt í dag eins og sumir voru kannske að gera sér vonir um og hefði verið gaman hefðum við verið sammála að gera það snögglega eins og öldungadeild Bandaríkjaþings gerði og við vorum að vona að stóratburðir gerðust hér í samkomulagi á síðustu dögum. En það er alveg ljóst að við verðum að gefa okkur tíma til að skoða þetta nánar og munum gera það strax á eftir og þá á morgun ef til þess þarf að koma.

Ég held að umræðan um 4. gr. sé mikið byggð á misskilningi. Ég skal ekki fara út í það nánar efnislega. Að sjálfsögðu hafa sérfræðingar okkar um það fjallað og ég held líka að það sé alveg ljóst að ef einhver lög væru til hér sem mundu breytast með þessum lögum, þar sem menn einskorða sig við siglingar, flutningaþjónustu og annað ekki í 1. gr. og til hennar er einmitt vitnað í 4. gr., að ef einhver slík lög væru til, og greinin fjallar eingöngu um eldri lög eða gildandi lög, þá hlyti einhver að hafa komið auga á það því að það er búið að skoða þetta mjög náið. Ég hef reynt að láta hugann reika, kannske ekki flett öllu lagasafninu. Ég hef spurt marga um þetta. Baldur Möller fjallaði um málið, hefur verið upplýst. Það er tekið beinlínis fram í athugasemdunum að þarna sé eingöngu um að ræða bandarísk lög og tekið fram: en á Íslandi er ekki um að ræða ósamrýmanleg lög. Það segir ákveðið á athugasemdunum og það segja menn ekki, grandvarir menn sem eru í þágu ráðuneytanna, nema þeir hafi skoðað málin æði vel. En við skulum líta enn einu sinni á þessa grein, sjálfsagðasti hlutur sem við munum skoða.

Ég ætla ekki á þessari stundu að fara langt út í almennar umræður sem hér hafa orðið. Síst af öllu lasta ég það að menn ræði vítt og breitt um utanríkismál, varnarmál og öll okkar viðkvæmustu og mikilvægustu málefni því að menn hafa sjálfsagt ekki verið undir það búnir, hvorki ég né aðrir, að fara út í almenna umræðu um þetta á þessum fundi. Ég hélt að það mundi einskorðast við þessa einu þáltill. og hún mundi kannske fara í gegnum þingið mótatkvæðalaust, kannske með einhverri hjásetu, en það væri ekki slíkur ágreiningur um þetta mál sem í ljós hefur komið. En auðvitað hafa menn fullan rétt á að halda fram sinni skoðun og fá tækifæri til að semja sín nál. og gera grein fyrir sínum málefnum.

En ég endurtek að utanrmn. mun hittast þegar í stað að loknum þessum fundi og auðvitað taka öll þau mál til athugunar sem hér hefur verið drepið á og hraða sínum störfum eins og hægt er. Það verður veittur allur tími til þess og erum við sammála um það í utanrmn. að taka þann tíma sem þarf hverju sinni til að skoða málin niður í kjölinn.