11.03.1987
Sameinað þing: 61. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3964 í B-deild Alþingistíðinda. (3610)
170. mál, fjármögnunarfyrirtæki
Frsm. allshn. (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um fjármögnunarfyrirtæki. Þessi till. leggur til að það verði undirbúin löggjöf um þessa starfsemi og í síðari hluta var lögð á það áhersla að mörkuð yrði stefna um það að hve miklu leyti erlendum aðilum skuli heimiluð þátttaka í slíkri starfsemi hér á landi. Það blasir við að það eru nokkuð mörg atriði sem þarf að taka tillit til í lagasetningu sem þessari. Eitt af þeim atriðum sem þar þarf að taka tillit til er að sjálfsögðu að marka slíka stefnu.
Nefndin hefur lagt til, með leyfi forseta: „Nefndin hefur fjallað um till. og mælir með samþykkt hennar breyttrar eins og hún kemur frá nefndinni á sérstöku þskj." - Stefán Benediktsson var ekki fjarverandi afgreiðslu málsins og óska ég eftir að heimilað sé að það leiðréttist hér með.
Orðalag brtt. er svo, með leyfi forseta: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta undirbúa löggjöf um fjármögnunarfyrirtæki“.