11.03.1987
Sameinað þing: 61. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3966 í B-deild Alþingistíðinda. (3614)
225. mál, kennsla í ferðamálum
Frsm. félmn. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 765 um till. til þál. um stofnun ferðamálaskóla. Félmn. Sþ. hefur rætt till. og kannað þær umsagnir sem bárust um þetta mál og leggur nefndin til að till. verði samþykkt með þeim breytingum sem er að finna á sérstöku þskj., en undir þetta rita auk mín Jóhanna Sigurðardóttir, Davíð Pétursson, Árni Johnsen, Guðrún Helgadóttir og Jón Kristjánsson, en Stefán Valgeirsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.
Í þessari till. til þál. á þskj. 241 um stofnun ferðamálaskóla var lagt til að Alþingi ályktaði að fela ríkisstjórninni að hraða undirbúningi að stofnun ferðamálaskóla þar sem veitt verði menntun í þeim greinum sem tengjast alhliða ferðamannaþjónustu svo að ekki þurfi lengur að sækja nám í þessari ört vaxandi atvinnugrein til annarra landa. Hér var að dómi nefndarmanna um mikilsvert mál að ræða.
Ég bæti því við að það er orðið fyllilega tímabært að koma á slíkum ferðamálaskóla eða skipulegri fræðslu í ferðamálum þar sem auk gisti- og veitingareksturs yrðu kenndar aðrar greinar sem tengjast ferðamálum og eru raunar þáttur af þeim, svo sem móttaka og þjónusta við ferðamenn. Má þar og nefna rekstur ferðaskrifstofa, störf á því sviði, svo sem skipulagningu ferða, ráðstefnuhald, útgáfu farseðla og markaðs- og kynningarmál. Annar þátturinn er leiðsögn ferðamanna, en í þeim efnum hafa verið haldin námskeið. Þá má nefna gestamóttöku, tungumálanám, auk þeirra greina annarra sem tengjast rekstri hótela og gistihúsa bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Hér er því um mjög víðtækt mál að ræða og mál sem er brýnt að komist í framkvæmd vegna þess að í dag fer engin skipulögð kennsla í ferðamálum fram í landinu, innan eða utan skólakerfisins. Nefndin varð sammála um að hér þyrfti að gera á bragarbót. Hins vegar lagði nefndin við umfjöllun þessarar till. til eina brtt. sem orðast svo, með leyfi hæstv. forseta:
"Tillgr. orðist svo:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hraða undirbúningi að skipulegri kennslu í ferðamálum. Veitt verði menntun í þeim greinum sem tengjast alhliða ferðamannaþjónustu svo ekki þurfi lengur að sækja grundvallarnám í þessari ört vaxandi atvinnugrein til annarra landa“.
Breytingin er einfaldlega sú að í þáltill. sjálfri var gert ráð fyrir skóla þó svo að í grg. væri tekið fram að bóklega námið væri sjálfsagt að færi fram í fjölbrautaskólum og öðrum slíkum skólum víðs vegar um land. Það var raunar aldrei ætlunin að setja ætti á stofn á þessu fyrsta stigi sjálfstæða nýja stofnun, heldur nýta þær stofnanir sem fyrir hendi eru, bæði kostnaðarins vegna og vegna þess að þegar eru uppi nokkrar áætlanir um bóklega kennslu á ferðamálasviði í menntaskóla. Um það varð samkomulag í nefndinni að nefna í stað „ferðamálaskóla“ undirbúning skipulegrar kennslu í ferðamálum. Það er vitanlega það sem er hér höfuðatriðið, að slíku námi verði hrint af stokkunum. Það er ekki fyrir hendi í landinu nú. Þá orðast fyrirsögn till. svo: Tillaga til þál. um kennslu í ferðamálum.
Nefndin varð sammála um að afgreiða málið á þessa lund.