11.03.1987
Neðri deild: 62. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3984 í B-deild Alþingistíðinda. (3654)

316. mál, flugmálaáætlun

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég ætla ekki að hefja langa ræðu almennt um flugmál þó að það væri út af fyrir sig áhugavert að ræða þau mál nú sem endranær. Í sambandi við afgreiðslu þessa frv. er rétt að undirstrika, m.a. vegna orða síðasta ræðumanns, að það stendur ekki til að Alþingi afgreiði þá skýrslu flugmálanefndar sem er birt sem fskj. með frv. og hv. síðasti ræðumaður vitnaði til, hv. 5. þm. Vestf. Það kann vel að vera að þar orki ýmislegt tvímælis og ég vil taka það sérstaklega fram að ég hefði mikla fyrirvara á ef ég ætti að samþykkja eða afgreiða með einhverjum hætti þetta fskj. Ég er hins vegar stuðningsmaður frv. eins og það liggur hér fyrir. Í því felst fyrst og fremst tvennt. Það er annars vegar að samþykkt verða lög um gerð svonefndrar flugmálaáætlunar sem kemur þá til kasta Alþingis að afgreiða á næsta þingi og í öðru lagi er samþykkt fjáröflun til framkvæmda í flugmálum. Þetta hvort tveggja styð ég og held að það sé mjög brýnt að nái fram að ganga.

Mínir fyrirvarar, sem ég gerði grein fyrir við 1. umr. þessa máls, viku fyrst og fremst að tvennu. Það var annars vegar að því að ég hefði talið æskilegt að binda með fastari hætti en lögin gera ráð fyrir framlög ríkisins til viðbótar hinum mörkuðu tekjustofnum sem einhvers konar fast hlutfall. Það hefur ekki náðst um það samstaða og ég fellst á að styðja afgreiðslu laganna þó svo sé, en ég hefði engu að síður talið hitt æskilegra þannig að framkvæmd flugmálaáætlunar í framtíðinni væri síður stefnt í óvissu vegna þess að framlög ríkisins á móti hinum mörkuðu tekjustofnum yrðu óviss.

Síðari fyrirvari minn laut að flokkun þeirri sem gert er ráð fyrir að þál. um flugmálaáætlun byggi á og getið er um í 3. gr. laganna, en að athuguðu máli og m.a. eftir upplýsingar frá flugmálastjóra, sem fullyrðir að sú flokkun muni í engu skerða möguleika flugvalla til að færast á milli ef aðstæður breytast, færast til að mynda úr flokki II í flokk I eða með einhverjum öðrum hætti færast til, þá get ég fallist á að slík flokkun er til nokkurs hægðarauka og það kann að vera skynsamlegt að greina flugvellina þannig í sundur m.a. til þess að þeir falli betur að þeim alþjóðlegu stöðlum í flugmálum sem við hljótum að byggja okkar mannvirki, flugvelli og tæki á eins og aðrar þjóðir.

Ég vísa til framsöguræðu hv. formanns og frsm. samgn. sem gerði grein fyrir þeim umræðum sem urðu um þetta tiltekna atriði í nefndinni og með þeim fyrirvara styð ég samþykkt þessa frv. og hef skrifað undir nál. án fyrirvara.