11.03.1987
Neðri deild: 62. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3988 í B-deild Alþingistíðinda. (3662)

418. mál, dráttarvextir

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um dráttarvexti. Þetta frv. er flutt af meiri hl. fjh.- og viðskn. deildarinnar eða nánar tiltekið þeim hv. þm. Páli Péturssyni, Kjartani Jóhannssyni, Guðmundi Bjarnasyni, Ólafi G. Einarssyni og Halldóri Blöndal auk þess sem hér flytur sitt mál.

Þetta frv. er í nokkrum köflum. Gert er ráð fyrir samkvæmt frv. að breyta lausafjárkaupalögunum, víxillögum, tékkalögum, lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda og loks vátryggingasamningalögunum. Öll ákvæðin í þessu frv. miðast við það að í stað sérstakra ákvæða um dráttarvexti verði dráttarvaxtakafli frv. til vaxtalaga sem er á þskj. 564, þau ákvæði komi í staðinn fyrir þessi sérstöku ákvæði.

Það er óþarfi, herra forseti, að hafa mörg orð um þetta mál. Þetta frv. var birt sem fylgiskjal með frv. til vaxtalaga og hæstv. viðskrh. gerði grein fyrir þessum málum í ræðu sinni þegar hann mælti fyrir frv. til vaxtalaga.

Þar sem þetta mál hefur þegar verið skoðað í nefnd er óþarfi að því verði vísað til hv. nefndar aftur og geri ég því að tillögu minni að því verði vísað til 2. umr.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.