12.03.1987
Sameinað þing: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4065 í B-deild Alþingistíðinda. (3683)

Almennar stjórnmálaumræður

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Við Íslendingar erum lánsamir þessa stundina. Við búum við mikið góðæri, eitt hið mesta á þessari öld. Aflaverðmæti úr sjó hefur aldrei verið meira, hefur aukist um rúm 40% á fjórum árum. Olía hefur hrunið í verði, fiskverð hækkað og viðskiptakjör eru í hámarki.

Góðærið lýsir sér í meiri tekjum þjóðarbúsins en nokkru sinni fyrr. En hefur það lýst sér í verulega bættum lífskjörum? Hafa launin hækkað að sama skapi? Líti nú hver í eigin barm. Finnst fólki að launakjör þess séu áberandi betri en nokkru sinni áður? Þessari spurningu munu flestir svara neitandi.

Það er einmitt meginboðskapur Alþb. í komandi kosningum að góðærið nái út til fólksins í landinu.

Þið heyrðuð áðan að talsmenn stjórnarflokkanna, þar á meðal Þorsteinn Pálsson, virtust harla ánægðir með ríkjandi ástand og töldu litla þörf á að bæta lífskjör fólks. Krítarkortin eiga víst að bjarga málunum. Og svo segja þeir að kaupmáttur tekna heimilanna hafi aukist að meðaltali undanfarið ár. Að meðaltali heitir það. En bak við meðaltölin felast mismunandi staðreyndir.

Maður gekk út í vatn. Hann hafði heyrt að dýpi vatnsins væri rúmur metri að meðaltali. Á það treysti hann þó hann væri ekki syndur - og drukknaði. Tekjur heimilanna hafa kannske vaxið eitthvað að meðaltali, en mjög mismunandi. Sums staðar verulega, annars staðar sáralítið. Í því meðaltali liggur mörgum við drukknun. Góðærið hefur ekki skilað sér til fólksins í landinu.

Við verðum að jafna lífskjör, bæði með launahækkun og aukinni samneyslu, hækka lágmarkslaun í 35-45 þús. kr. á mánuði, greiða öryrkjum og öldruðum mannsæmandi lífeyri, veita fjölskyldumálum forgang með úrbótum í skóla- og dagvistarmálum, lengja fæðingarorlof. Við eigum einnig að létta skattbyrði launafólks.

Við Alþýðubandalagsmenn höfum sýnt fram á með ítarlegum tillögum hér á Alþingi undanfarna daga hvernig afla má tekna til að gera 50 þús. kr. launagreiðslur á mánuði tekjuskattsfríar. En Þorsteinn Pálsson er á annarri skoðun þó hann hafi reyndar löngu lofað að afnema tekjuskatt af almennum launatekjum og ekki staðið við það. Hann var endurkosinn formaður flokksins með rússneskri kosningu um seinustu helgi og getur verið ánægður með sig. Auk þess vakti hann þjóðarathygli þegar hann lýsti því yfir við fjölmiðla að Alþb. teldist ekki lengur andstæðingur Sjálfstfl. Margir urðu að vísu nokkuð hissa við þessa yfirlýsingu og skildu ekki strax hvað maðurinn var að fara. En Þorsteinn bætti við til skýringar að nú væri orðin þjóðarsátt um stefnu sína og héðan í frá mundi Sjálfstfl. ákveða sjálfur hvaða flokkar yrðu titlaðir helstu andstæðingar hans. Síðan fór útnefningin fram og kom í ljós að Þorsteinn valdi Alþfl. sem óskaandstæðing sinn. Þá urðu ekki margir hissa. Auðvitað er það alveg tilvalið fyrir Sjálfstfl. að velja sér andstæðing sem hann ættar hvort eð er að vinna með eftir kosningar. Það skiptir þá ekki máli hvoru megin atkvæðin lenda.

En utan við hring þeirra sem formaðurinn velur sér til samneytis stendur stór hluti þjóðarinnar, býsna stór hluti, og skrifar ekki upp á þjóðarsátt Þorsteins Pálssonar. Það gera ekki launamenn og síst þeir með lægri launin. Það gera ekki bændur sem ríkisstjórnin reynir að hýrudraga einmitt þessa dagana. Það gerir ekki fólkið á landsbyggðinni sem horft hefur upp á meiri öfugþróun í byggðamálum í tíð þessarar ríkisstjórnar en verið hefur um mjög langt skeið. Það gera ekki námsmenn sem fengið hafa lán sín stórlega skert og vita að enn frekari skerðing á högum þeirra vofir yfir þó hún sé látin bíða fram yfir kosningar. Það gerir ekki húsnæðishópurinn sem verst varð úti í misgengi lána og launa fyrir þremur árum, fékk aldrei leiðréttingu og fær nú annað kjaftshögg með skattkerfisbreytingunni. Það gera ekki þeir sem eru leigjendur og hafa haft skattfrádrátt en er nú neitað um húsnæðisbætur eins og aðrir eiga að fá þótt fáir séu í meiri þörf. Það gera ekki þúsundir starfsmanna í skólakerfinu öllu, allt frá leikskólum og grunnskólum upp í framhalds- og háskóla, sem hafa þungar áhyggjur af ástandi menntamála undir forustu Sjálfstfl., almennri stöðnun og vaxandi flótta hæfileikafólks yfir í önnur störf. Og þannig má lengi telja.

Hins vegar eru þeir auðvitað til sem hrópa húrra fyrir Þorsteini Pálssyni og þjóðarsátt hans. Til dæmis stórfyrirtækin sem áfram borga lítinn sem engan tekjuskatt, halda öllum heimildum til lækkunar á skatti meðan flestallir frádráttarliðir eru afnumdir hjá almennu launafólki. Eins er með þá sem eiga mikið fé á vöxtum og njóta stórfelldra vaxtahækkana í tíð þessarar stjórnar. Þeir geta líka reyndar hrópað húrra fyrir Steingrími Hermannssyni sem hjálpaði Þorsteini að keyra upp vaxtastigið. Margir sem eiga 5-10 milljónir í skuldabréfum geta lifað góðu lífi á fjármagnstekjunum einum og þurfa ekki að borga krónu af tekjum sínum í skatt, vaxtatekjur verða áfram skattfrjálsar og breytir engu hversu miklar þær eru.

En það verður aldrei þjóðarsátt um ójöfnuð og misrétti. Það verður heldur engin þjóðarsátt um afstöðu Sjálfstfl. og krata til kjarnorkuvopnalauss svæðis á Norðurlöndum. Í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi virðist meiri hluti fyrir hendi á þjóðþingum landanna að lýsa Norðurlönd svæði án kjarnorkuvopna um alla framtíð. En í svipinn strandar undirbúningur á því, eins og við höfum heyrt í fréttum, að ríkisstjórn Íslands streitist á móti. Auðvitað er þetta meiri háttar hneyksli. Og það dapurlegasta af öllu er að Alþfl. er öfugur og snúinn í þessu máli, eini flokkur jafnaðarmanna á Norðurlöndum sem það er. Á hinum Norðurlöndunum öllum eru það einmitt jafnaðarmenn sem hafa haft forustu í þessu máli. En hér er það Jón Baldvin sem segist vera vinstra megin við miðju en reynist yst á hægri kanti í þessu máli sem flestum öðrum.

Kaldastríðsstefna Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks í þessu máli á sér áreiðanlega lítinn hljómgrunn hér á landi. Ég er sannfærður um að yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar óskar sér utanríkisstefnu í anda friðar og afvopnunar. En hér er enn eitt dæmið um hvernig Sjálfstfl. tekst að deila og drottna með því að beita miðjuflokkunum fyrir sig til skiptis.

Óheft markaðshyggjan veður hér hömlulaust yfir á flestum sviðum og veldur vaxandi misrétti þegnanna. Á fínu máli er þessi stefna kölluð frjálshyggja. Hún miðar að því að gefa fjármagninu sem frjálsastar hendur. Um frelsi þeirra sem minnsta fjármuni eiga er minna spurt. Þess vegna eru lífskjörin lakari en áður. Þess vegna hafa vextir hækkað. Þess vegna hækkuðu lánin í hlutfalli við vísitölu meðan launin voru fryst.

Hagsmunir fjármagnseigenda ganga fyrir öllu öðru. Við sjáum það í skattamálum eins og ég hef lýst. Við sjáum það í fleiri gjaldþrotum og nauðungaruppboðum en nokkru sinni fyrr á skömmum tíma. Við sjáum það í menntamálum, bankamálum, byggðamálum. Byggðastefna er eitur í beinum svonefndra frjálshyggjumanna. Og það er ósköp skiljanlegt. Byggðastefna er hugsuð út frá hagsmunum fólks en ekki fjármagns. Hún gengur þvert á eðli óheftrar markaðshyggju sem óspart ýtir undir fólksflutninga inn á fjársterkustu svæði landsins.

Undir forustu frjálshyggjumanna er bruðlað með fé almennings og stóreignamönnum veitt mikil skattfríðindi með þeim afleiðingum að ríkissjóður er rekinn með gífurlegum halla. Þeir vilja reyndar hafa það þannig. Þá finnst þeim auðveldara að réttlæta að framlög til velferðarmála og sveitarfélaga séu skorin niður við trog. En sjáið þið hvað kom út úr Hafskipshneykslinu og fjárþrotum Útvegsbankans. Í stað þess að stokka upp bankakerfið og gera það einfaldara og ódýrara var ákveðið að gefa einkafjármagninu bankann. Og meðgjöfin er 1000 millj. kr. úr sjóðum ríkisins, 1000 millj. kr. úr vösum ykkar sem greiðið skattana. Það er 20 þús. kr. gjöf frá hverju fimm manna heimili í landinu.

Þetta eru mennirnir sem tala um það í alvöru að selja Ríkisútvarpið til einkaaðila, barnaheimilin, jafnvel Áfengisverslunina og leyfa innflutning á búvörum til höfuðs íslenskum landbúnaði. Er ekki kominn tími til að stinga við fótum?

Alþb. er eina aflið sem er nægilega sterkt til að fylkja liði fyrir nýrri og gæfulegri stjórnarstefnu. Við leggjum áherslu á frelsi fjölskyldunnar til að lifa mannsæmandi lífi frekar en frelsi fjármagnsins. Í menntamálum er meginkrafan: fjárhagslegt jafnrétti til náms. Við viljum dreifa valdi og ábyrgð til starfsmanna, til byggðarlaga, auka sjálfstjórn héraða og færa frumkvæði að nýsköpun sem mest í hendur heimamanna. Við viljum jafna símkostnað og orkukostnað og stöðva sívaxandi skerðingu Jöfnunarsjóðs. Við viðurkennum sannarlega að blómlegt atvinnulíf er undirstaða velmegunar. Þegar fyrirtæki eru stofnuð er sjálfsagt að hjálpa þeim yfir erfiðasta hjallann, en síðan eiga þau auðvitað að greiða skatta og standa undir sameiginlegum útgjöldum landsmanna með eðlilegum hætti. Annars eru þau á framfæri skattgreiðenda og það kann aldrei góðri lukku að stýra.

Stjórnarflokkarnir settu allt sitt traust á erlenda stóriðju, þegar stjórnin var mynduð, en vanræktu flest annað. Afleiðingarnar eru dapurlegar. Við höfnum erlendri stóriðju. Hins vegar höfum við mikla trú á uppbyggingu smáfyrirtækja, vexti þeirra og viðgangi. Við viljum nýja atvinnustefnu, nýja sókn í atvinnulífi og höfum sett fram ítarlegar tillögur um það efni.

Við vörum eindregið við ábyrgðarlausum hallarekstri ríkissjóðs og teljum verulega hættu á verðbólgusprengingu á næstu mánuðum ef ekkert er að gert og óstjórnin á fjármálum ríkisins heldur áfram.

Við vörum sérstaklega við virðisaukaskattinum. Honum fylgir margföld skriffinnska og skatturinn leggst með fullum þunga á hvers konar matvæli, m.a. landbúnaðarvörur og á alla menningarstarfsemi í landinu. Ólafur Einarsson sagði um daginn að skattinum hefði verið frestað „í bili“. Með öðrum orðum: hann kemur eftir kosningar ef þeir fá að ráða.

En kjósendur eiga úrslitaorðið. Óbreytt fylgi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í næstu kosningum þýðir óbreytta stefnu, áframhald á óheftri markaðshyggju. Sigur Alþfl. breytir þar litlu. En sigur Alþb. er aftur á móti ávísun á jafnrétti, félagshyggju og friðarstefnu.

Ég þakka áheyrnina.