12.03.1987
Sameinað þing: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4089 í B-deild Alþingistíðinda. (3691)

Almennar stjórnmálaumræður

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Það er mörgum spjótum beint að Alþfl. hér í kvöld. Þorsteinn Pálsson og Ragnar Arnalds vörðu verulegum hluta af tíma sínum til þess að ráðast á Alþfl. Við því er í sjálfu sér ekkert að segja. Það er verst hvað þetta var vitlaust hjá þeim.

Þorsteinn talaði sig eiginlega heitan. En það er hins vegar sorglegt með Þorstein hvað honum er lítið annt um sannleikann og fer rangt með tölur, eins og frægt er orðið, og þá ekki bara þegar hann fjallar um tillögur Alþfl. Líklega ætti hann að hætta að nota tölur. Mér líkar hins vegar vel þegar Þorsteinn varar við ríkisstjórninni 1979-1983. Þetta var ríkisstjórn þeirra félaga hans, Alberts Guðmundssonar og Eggerts Haukdals. Hann má gjarnan tala meira um þá ríkisstjórn og vara við henni.

Það var reyndar líka hraustlega mælt hjá hæstv. forsrh. þegar hann var að lýsa viðskilnaði þessarar ríkisstjórnar hér í ræðu sinni áðan og lýsti því þannig að hrun og atvinnuleysi hefði verið fram undan. Hann var nefnilega sjútvrh. í þeirri ríkisstjórn, Steingrímur Hermannsson.

Ragnar Arnalds réðst á Alþfl. með offorsi vegna hugmynda um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd og bar okkur Alþýðuflokksmönnum á brýn kaldastríðsstefnu. En ekkert er fjær sanni. Eins og allir vita er Ísland kjarnorkuvopnalaust og við viljum að það verði það áfram. Ef það á að staðfestast með sérstakri yfirlýsingu varðandi Norðurlöndin, þá viljum við að við fáum fullvissu fyrir því að það sé til gagns og að yfirlýsingin auki öryggi okkar en minnki það ekki. Þetta er kjarninn í okkar stefnu. Forsendan undir því að gagn sé að er að jafnvægi haldist. Þess vegna þarf gagnkvæmni af hálfu Varsjárbandalags og Sovétríkjanna og tryggingu fyrir því að öryggisnet Atlantshafsbandalagsins sé jafntraust eftir sem áður. Svo einfalt er nú það. Og þess vegna þarf svæðið að vera stærra en Norðurlöndin ein og þá til austurs. Þess vegna duga ekki einhliða yfirlýsingar eins og Ragnar Arnalds er að biðja um. Þess vegna er forsendan undir gagnsemi yfirlýsingarinnar víðtækt samkomulag um slökun og afvopnun og traust stórveldanna á milli í stað tortryggni. Þá getur yfirlýsingin aukið öryggi okkar og þá skulum við gefa hana. Allt tal þeirra Alþýðubandalagsmanna um að kratar á Norðurlöndum vilji einhliða yfirlýsingu, eins og þeir Alþýðubandalagsmenn boða hér, er helbert bull.

Annars var athyglisvert að heyra forsrh. hér rétt á undan mér státa sig af hinum mikla árangri stjórnarliðsins sem hann sagðist vera stoltur af. Flestum verður á að brosa þegar forsrh. vill að landslýður þakki honum sérstaklega landburð af afla, batnandi viðskiptakjör, lækkandi olíuverð og lækkandi vexti á þeirri skuldasúpu sem hann hefur sjálfur hlaðið upp. Það er svolítið sérstakt að menn skuli, eins og Steingrímur gerir, hrósa sér af árangri þegar ríkisbúskapurinn er rekinn með 6 milljarða halla í 10 milljarða góðæri. En þetta snertir Steingrím ekki baun eins og menn fengu að heyra hér áðan.

En spurningin er ekki síður þessi: Hvernig birtist góðærið og stjórnarstefnan fólkinu í landinu? Hvað segir útvegsmaðurinn og fiskverkandinn sem hefur verið að gefast upp? Hvað segir t.d. fólkið í fiskvinnslufyrirtækjunum suður með sjó, í kjördæminu sem Steingrímur er nú flúinn í, fiskvinnslufólkið sem er að missa atvinnuna af því fyrirtækin eru að loka og skipin eru seld í burtu? Og hvað segir sjómaðurinn sem eftir 25 ára strit er úthlutað 5000 kr. í lífeyri úr sjóðakerfinu? Hvað segir framhaldsskólaneminn sem stendur nú frammi fyrir því að enn eitt árið kannske tapist hjá honum vegna kennaraverkfalls? Já, hvernig hefur stjórnarstefnan birst fólkinu í landinu? Er þetta hin rétta leið? Ég bara spyr.

Við þekkjum reyndar mörg fólk sem er örvinglað af því að aldrað foreldri fær ekki þá aðhlynningu í ellinni sem það á skilið og sem það svo sárlega vantar. Það er ekkert pláss í þjóðfélaginu fyrir þetta aldraða fólk. Sjúkradeildir eru lokaðar af því að ekki fæst starfsfólk til að vinna þar á þeim launum sem í boði eru af hálfu atvinnurekandans, ríkisins sjálfs. Aðrar deildir eru ekki kláraðar af sömu ástæðu.

Við þekkjum líka öll ungt fólk sem hefur verið að kikna undan því að koma sér upp húsnæði á undanförnum árum þegar misgengi launa og lánskjara keyrði skuldasúpuna upp úr öllu valdi. Þetta var hluti af stjórnarstefnunni sem Steingrímur var að státa sig af hér áðan. En það kemur ekki við Steingrím eða Þorstein, vandræði þessa fólks. Og enn bíður þetta fólk eftir leiðréttingu.

Þetta er léleg útkoma úr góðærinu. Þetta er ekki til að státa sig af. Þetta er ekki hin rétta leið. Við viljum ekki hafa þetta svona, þetta þarf ekki að vera svona og þetta á ekki að vera svona.

En við skulum í staðinn líta til framtíðarinnar og átta okkur á hvernig við viljum að þjóðfélagið eigi að vera, ákveða hvað við viljum, setja okkur markmið og hrinda þeim í framkvæmd.

Það sem við ætlum okkur Íslendingar er að losna úr viðjum vinnuþrældóms. Við lifum nefnilega ekki bara til þess að vinna og við eigum þann rétt að þurfa ekki að slíta okkur út til þess eins að eignast húsnæði og sjá sjálfum okkur farborða. Við viljum eiga sameiginlegar stundir með fjölskyldunni og eðlilegan frítíma, eins og tíðkast í öðrum löndum. Og enginn á að þurfa að bera kvíðboga fyrir elli sinni eða elli foreldra sinna. Það á að vera pláss fyrir aldraða í þjóðfélaginu. Og þjóðfélagið, það á að svara kröfum tímans. Dagvistun barna sem þurfa á því að halda verður að vera fyrir hendi. Skólarnir eiga að aðlaga starf sitt að þörfum fjölskyldunnar þar sem báðir foreldar vinna eðlilegan vinnudag. Og þeir eiga að veita trausta menntun í tengslum við atvinnulífið og þannig að menntunin gagnist til að knýja á um framfarir í atvinnustarfsemi.

Þetta er það þjóðfélag sem við eigum að stefna að, sú framtíð sem við eigum að búa okkur og það er verkefni næstu ára. Og við getum það ef við viljum. En þá verður að láta af pexi um smáatriði og sameina kraftana um verkefnið. Auðvitað gerist ekki allt í einu, en skref fyrir skref eigum við að ná þessu marki. Hvernig, spyrja menn að sjálfsögðu, vanir því ráðleysi sem ríkt hefur. Ég skal svara því.

Ég þarf varla að taka fram að skilyrði allrar framvindu er stöðugleiki í efnahagsmálum. Aldrei aftur mega koma verðbólgugusur sem eyðileggja allt. Hitt er ljóst að forsendan undir velferð er traust og framsækið atvinnulíf sem stendur undir kröfum okkar. Þess vegna eigum við að tileinka okkur ný viðhorf í atvinnumálum, viðhorf sem byggjast á því að nýta sér það besta sem þróunin býður upp á.

Við skulum líta á hvað er að gerast, hver þróunin er, hverjir möguleikarnir eru:

Fjarskipta- og upplýsingabyltingin er að tengja allan heiminn saman. Veröldin öll er orðinn einn markaður jafnvel fyrir hið smáa atvinnufyrirtæki ef það kann að hagnýta sér hugvit og markaðsþekkingu. Hin smáu atvinnufyrirtæki okkar eiga hér ótæmda möguleika. Við eigum að kenna þeim að hagnýta þá, mennta unga fólkið og endurmennta fullorðna til þess að nýta þessi tækifæri.

Sjálfvirkni og tölvustýring er að leysa mannshöndina af hólmi. Það er þekkingin við að nýta þessa tækni en ekki mannmergðin sem skiptir máli og það opnar smáþjóð eins og okkur nýja möguleika. Við skulum hjálpast að við að nýta þá.

Líftæknin er að halda innreið sína. Hún getur skapað okkur nýjar framleiðsluvörur, m.a. úr fiskislógi og með nýjum aðferðum getur orðið bylting í úrvinnslu á fiskafla. Við skulum styðja þessa þróun og tileinka okkur hana.

Markaðsaðstæður fyrir fiskafurðir eru að breytast. Ríku þjóðirnar vilja meiri fisk og betri fisk og eru sífellt reiðubúnar að borga meira fyrir hann. Neytendur í þessum löndum óska eftir fiskréttum, tilreiddum að þeirra smekk. Sá sem býður gæði og þekkir smekk þessara neytenda, hann mun uppskera, og það skulum við gera.

Nýjar atvinnugreinar eru líka að skjóta stoðum undir atvinnulíf okkar, eins og fiskeldi og loðdýrarækt.

Með því að leggja rækt við hagnýtingu þeirra möguleika sem hér hafa verið nefndir munum við uppskera framsækið atvinnulíf. Það er kjarni málsins.

Jafnframt verðum við að gerbreyta stefnunni í landbúnaðarmálum, eins og hér hefur verið áður lýst af talsmönnum Alþfl., og sömuleiðis í sjávarútvegsmálum til þess að ná góðum langtímaafrakstri fiskistofnanna og nýtingu og tækifærum allra til þess að njóta sín. Atvinnulífið er undirstaðan, en ríkisbúskapurinn er líka mikilvægur og hann þarf að stokka upp. Við getum ekki bara fengið meira af öllu, það verður að velja. Það verður að skapa svigrúm til að ríkið geri betur á þeim sviðum sem það á og verður að sinna.

Við jafnaðarmenn viljum að ríkið sé rekið fyrir fólkið og í samræmi við kröfur hvers tíma. Ég veit að Alþb. skilur þetta ekki og situr fast í gömlum kerfishugmyndum. Ég veit líka að Sjálfstfl. og Framsfl. vilja helst engar breytingar af því að þeir eru í reynd gæslumenn sérhagsmuna í kerfinu. Vegna áhrifa þeirra höfum við Íslendingar hjakkað í sama farinu. En nú ætlum við upp úr þessu fari og burt frá hjakkinu.

Það er einmitt það sem Alþfl. stefnir að. Hann hefur nýja framtíðarsýn. Hann er tilbúinn til að gera það sem þarf að gera. Þess vegna flykkist fólkið til okkar í Alþfl. og með sigri hans göngum við nýjum tímum á hönd.

Ég þakka þeim sem hlýddu.