13.03.1987
Efri deild: 60. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4108 í B-deild Alþingistíðinda. (3699)

308. mál, jarðræktarlög

Frsm. landbn. (Egill Jónsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. landbn. um frv. til jarðræktarlaga. Eins og deildarmönnum er væntanlega fullljóst hefur þegar verið fjallað um málið í Nd. og þar af leiðandi eru ekki miklar brtt. á kreiki við frv. af hendi landbn. Ed. Alþingis. Nefndarmenn hafa undirritað nál., Eiður Guðnason að vísu með fyrirvara og fjarstödd við afgreiðslu málsins var Kolbrún Jónsdóttir, en að öðru leyti var nefndin sammála um afgreiðslu þessa máls.

Það er að sjálfsögðu óþarfi að fara um þetta mál mörgum orðum hér, sérstaklega vegna þess að fyrir tveimur árum síðan var gerð breyting á jarðræktarlögunum, sem var nokkuð víðtæk, en með því að tími var þá naumur til að fjalla um málið ítarlega og búnaðarþing hafði ekki lokið afgreiðslu þess, þá var sú breyting einungis gerð til tveggja ára. Þannig að ef lögunum hefði ekki verið breytt núna, þá hefðu upphaflegu lögin, eins og þau voru frá árinu 1971 að því er mig minnir, tekið gildi. Af þessari ástæðu er mönnum væntanlega nokkuð ljóst hvernig þessum breytingum er háttað.

Það er kannske vert að minna aðeins á það hér að í sambandi við jarðræktarframkvæmdir hafa orðið gífurlega miklar breytingar á s.l. árum. Það hefur dregið mjög mikið úr framkvæmdum vegna verkefna sem tengjast hefðbundnum landbúnaði, í mjólkurframleiðslu og kjötframleiðslu, en aftur á móti hafa aukist framlög til þeirra þátta í jarðræktarlögunum, sem sérstaklega snerta hagræðingu og nýjar búgreinar. En þegar til heildarinnar er litið hafa jarðræktarframlög frá árinu 1984 gengið saman um 108 millj. kr. og er það að sjálfsögðu einvörðungu sparnaður gagnvart þessum fyrri hefðbundnu verkefnum.

Það er ástæða til þess að þetta komi fram, ekki síst vegna þess að þær raddir voru uppi að það bæri að afnema jarðræktarlögin og leggja niður þann stuðning sem landbúnaðurinn hefur fengið á grundvelli þeirrar löggjafar allt frá árinu 1923 og má reyndar víða sjá merki þess. Sú leið var hins vegar farin, eins og öllum hv. alþm. er kunnugt um, að breyta heldur framleiðslustefnunni í landbúnaði, sem síðan hefur að sjálfsögðu leitt mjög til breyttra áherslna í starfi bændanna í landinu og kemur m.a. fram í því að mjög hefur dregið úr framkvæmdum í hefðbundnum landbúnaði.

Við umfjöllun á síðasta búnaðarþingi og í framhaldi af því við afgreiðslu landbn. á þessu máli komu fram ábendingar um nokkrar breytingar. Tvær þessara breytinga eru í raun og veru nýjung. Það er breyting í sambandi við gróðurhúsarækt, en eins og menn vita er grænmetisrækt mjög í vexti í okkar landbúnaði um þessar mundir og vissulega ástæða til þess að styðja þar frekar að umbótum en þegar hefur verið gert.

Af þessari ástæðu leggur nefndin fram brtt. á þskj. 880, sem er við VIII. lið 10. gr. frv. og eru þær breytingar bæði við a-lið og b-lið, þ.e. að stærðarmörk í uppeldishúsum færist úr 150 m2 í 200 m2 og síðan er b-lið einnig breytt, þannig að þar komi breytt orðalag og stærðarmörkin færist upp í 300 m2. Síðan bætist við einn stafliður, sem er til að styrkja kolsýrugjöf í gróðurhúsum, en það er algjör nýjung.

Ég sé ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að orðlengja þetta frekar en skal, ef óskað er, gefa hér frekari skýringar.