29.10.1986
Neðri deild: 7. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (373)
103. mál, tékkar
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég hygg að það sé rétt hjá hæstv. viðskrh. að hér sé um að ræða samræmingarfrumvarp og í sjálfu sér ekki margt um það að segja, en nú vill svo til að áhrif nýrra seðlabankalaga, sem voru samþykkt hér fyrir nokkrum mánuðum, fara óðum að segja til sín. Þau taka gildi frá og með 1. nóv., ef ég man rétt, og þá er gert ráð fyrir að hið blessaða vaxtafrelsi fái loksins að njóta sín til gæfu fyrir þjóðina, sérstaklega þá sem eru að missa íbúðirnar sínar á nauðungaruppboðum og fyrirtækin í gjaldþrotum.
Ég vildi af þessu tilefni spyrja hæstv. viðskrh. hvað hann telur að gerast muni í þessum efnum næstu daga. Telur hann líklegt að vextir muni fara hækkandi eða með hvaða hætti öðrum telur hann líklegt að vaxtapólitíkin í landinu breytist nú alveg á næstu dögum?
Þá vil ég einnig víkja að því að í lögum hafa verið ákvæði til um okurvexti og okurlán. Samkvæmt túlkun hinna vísu bankayfirvalda á hinum nýju seðlabankalögum er hins vegar gert ráð fyrir því, að því er mér hefur skilist, að þeir vextir séu löglegir í landinu og þar með ekki okurvextir sem hæstir kunna að vera ákveðnir af einstökum bönkum og sparisjóðum, hversu vitlausir sem þeir vextir kunna að vera og í rauninni í ósamræmi við okurlögin sem til þessa hafa verið í gildi í landinu. Verði þetta ofan á er ljóst að forsendur fyrir okurmálum, sem hafa komið hér upp í stórum stíl á undanförnum mánuðum, geta breyst og dómsmálayfirvöld standa frammi fyrir óvissu og vanda í þessum efnum sem auðvitað kemur helst niður á þeim sem síst skyldi.
Ég vil þess vegna, herra forseti, þó að það sé ekki beinlínis efni frv. sem hér er á dagskrá, leyfa mér að bera þær fyrirspurnir fram til hæstv. viðskrh. hvernig honum sýnist að vaxtamál muni þróast hér á næstu vikum eftir að seðlabankalögin eru að fullu komin til framkvæmda.