13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4142 í B-deild Alþingistíðinda. (3771)

318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Þessi till. felur í sér að veita Húsnæðisstofnun heimild til að skerða eða hafna láni til þeirra sem eiga fyrir skuldlausar eignir og eru að minnka við sig húsnæði. Lauslegt mat bendir til þess að þessi hópur sé um 15% af heildinni og geti tekið til sín 500 millj. af fjármagni Byggingarsjóðs ríkisins. Þegar fyrir liggur að fjármagn er þrotið til greiðsluerfiðleikahópanna sem byggðu eða keyptu á árunum 1980-1985 og að félagslega húsnæðiskerfið er fjárhagslega svelt standa engin rök til þess að veita skilyrðislaust skuldlausum hópum, sem eru að minnka við sig húsnæði, 1200 þús. kr. lán með niðurgreiddum vöxtum sem þeir þurfa ekki á að halda til húsnæðiskaupa. Ég segi já.