13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4148 í B-deild Alþingistíðinda. (3781)

119. mál, umferðarlög

Páll Pétursson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Þetta frv. er alltaf að batna og ég þakka hv. allshn. fyrir að fallast á að gera þá breytingu á frv. sem ég lagði til á þskj. 653 varðandi númerakerfið. Ég held að það sé miklu farsælla að taka ekki númerin af fólki. Ég er hins vegar óánægður yfir að ekki var fallist á till. mína um skyldu til að hafa ljós í akstri allan ársins hring og ég vona að sú brtt. hljóti stuðning í deildinni.

Það voru margar lagfæringar gerðar í frv. í Ed. Í síðari deild, Nd., eru 40 brtt. frá nefnd og ég tel að enn sé mikið verk að vinna við frv. áður en það er fullskoðað. Ég er meðflm. að brtt. á þskj. 885 þar sem 1. fim. er Pálmi Jónsson og vænti ég þess að hann geri grein fyrir brtt. Ég held að það séu ýmis atriði í frv. sem enn þurfi lagfæringar við. Þó er rétt að lögfesta það núna og síðan höfum við framtíðina til að lagfæra þessi lög enn frekar eftir því sem þurfa þykir.