13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4153 í B-deild Alþingistíðinda. (3783)

119. mál, umferðarlög

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Frv. það til nýrra umferðarlaga sem hér er fjallað um hefur nú legið fyrir þrem löggjafarþingum, þ.e. 107., 108. og 109. Auk þess sent fjölmörgum aðilum til umsagnar. S.l. sumar vann að því milliþinganefnd alþm. Þannig má segja að það hafi gengið í gegnum margan hreinsunareldinn.

Rætur þess má rekja til nefndarskipunar 15. sept. 1980. Það er ekki úr vegi að rifja þetta örlítið upp þar sem nú eru tæp sjö ár frá því að sú nefnd var sett saman. Sú nefnd átti að vinna að heildarendurskoðun umferðarlaga. Í nefndina voru skipaðir á sínum tíma Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri, formaður, Garðar Gíslason borgardómari, Haraldur Henrýsson sakadómari, Ólafur Stefánsson skrifstofustjóri í dómsmrn. og Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri. Ritari nefndarinnar var Örn Sigurðsson lögfræðingur, þá starfandi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.

Ég get ekki stillt mig um það áður en lokaorðin verða sögð um þetta frv. að rifja upp hver var tilgangur með endurskoðun umferðarlaga á þeirri tíð. Hann var einkum tvíþættur. Annars vegar var orðið ljóst að umferðarlögin á þeim árum voru á ýmsum sviðum orðin ófullkomin og sums staðar úrelt, og að sjálfsögðu verður slík löggjöf alltaf að vera í endurskoðun. Hins vegar var talið nauðsynlegt vegna aukinna samskipta á milli þjóða að samræma umferðarlöggjöf hér á landi, eftir því sem kostur var á, umferðarlöggjöf annarra þjóða og alþjóðasamningum um umferð. Það voru þessi tvö atriði sem voru meginástæðan fyrir því að 1980 var sett saman nefnd til að vinna að heildarendurskoðun umferðarlaga.

Allir vita að umferð eykst stórlega bæði að því leyti að Ísland sækja heim margir erlendir gestir og fjölmargir Íslendingar aka út um lönd á ári hverju. Þetta frv. gerði ráð fyrir að Íslandi yrði kleift að gerast aðili að alþjóðasamningi um umferð sem gerður var í Vínarborg 8. des. 1968. Að sjálfsögðu var við samningu þessa frv. höfð hliðsjón af umferðarlöggjöf nágrannaþjóðanna, einkum Norðurlandaþjóða, en þær hafa jafnan haft samvinnu sín á milli um setningu laga, ekki síst af slíkri gerð sem hér um ræðir. Það má þó vera deginum ljósara að við samningu þessa frv. sem og fjölmargra annarra er ekki gott að þýða umferðarlöggjöf annarra þjóða frá orði til orðs heldur þarf að samræma ákvæði þeirra aðstæðum hér á landi.

Ég tel fulla þörf á því að þetta frv., eftir alla þá meðferð sem ég hef minnst á, nái samþykki á þessu þingi. Það er að vísu svo að enn eru mörg atriði sem hv. alþm. eru ósammála um. Nægir að benda á þær 40 brtt. sem allshn. Nd. flytur og um ræðir á þskj. 819. Þá má enn fremur geta þess að meginhluta þess tíma sem Alþingi hefur haft frv. þetta til meðferðar hefur það verið í Ed. þannig að þm. Nd. gætu sem best fært rök að því að þeir hefðu haft allt of skamman tíma til að ræða þessi mál.

Hv. 2. þm. Norðurl. v. sagði áðan að frv. væri alltaf að batna. E.t.v. má bæta slík frv. með því að lesa þau nógu oft yfir og breyta þeim nógu oft. Þó ætla ég að fyrir því séu takmörk. Mér sýnist nefnilega að frv. sé að ýmsu leyti nú, eftir alla þessa hringferð, að færast í fyrra horf, þ.e. færast í það horf sem höfundarnir í upphaflegu nefndinni gengu frá því og mætti nefna mörg dæmi um það. En vonandi hefur það ekki versnað neitt að ráði við þessa miklu hringferð.

Ég held ég ræði ekki hverja einstaka brtt. Allir nefndarmenn í allshn. áskildu sér rétt til að hafa frjálsar hendur um afgreiðslu málsins að öðru leyti en því að þeir standa allir saman að þeim tillögum sem um ræðir á þskj. 819.

Hv. 1. þm. Norðurl. v. gerði hér grein fyrir brtt. sem hann stendur að og er 1. flm. að, till. á þskj. 885. Það hefur verið bent á að ef þær brtt. yrðu samþykktar, sem greinir á því þskj., kynni að fara svo að Íslendingar næðu ekki að gerast aðilar að alþjóðasamningi um umferð sem ég gat um áðan. Það þýðir að vegferð Íslendinga um útlönd er ekki eins greið og ella verður og kann að fara svo að íslensk ökuskírteini verði ekki tekin gild á erlendri grund, a.m.k. ekki af öllum aðilum sem hafa staðfest þennan samning. Þar sem hér er aðeins um heimildarákvæði að ræða fyrir hæstv. dómsmrh. verð ég að segja það um þessa till. á þskj. 885 að ég tel hana ekki svo mikils virði að hún eigi að geta komið í veg fyrir aðild okkar að nefndum alþjóðasamningi.

Vitanlega er það svo að þetta frv. hefur að geyma fjölmargar heimildir til handa hæstv. dómsmrh. og verður að ætla að menn í því tignarsæti fari gætilega með þær heimildir og nýti þær af fullri skynsemi og gætni. Þess vegna verð ég að segja að ég tel ekki ástæðu til að vera svo ragur við að samþykkja víðtækar heimildir til handa hæstv. dómsmrh. um þessi mál.

Að lokum vil ég svo endurtaka að ég hef eins og aðrir nefndarmenn áskilið mér rétt til að hafa frjálsar hendur við atkvæðagreiðslu þá sem hér fer fram væntanlega einhvern tíma á eftir. En ég tel frv. sem heild hafa svo marga kosti til að bera að ég tel ekki áhorfsmál að við reynum að afgreiða það og samþykkja það sem lög á þessu þingi.