13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4167 í B-deild Alþingistíðinda. (3792)

321. mál, vaxtalög

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég hef undirritað það nál. sem meiri hl. stendur að með fyrirvara. Skýringin er sú að ég tel að fáein atriði þurfi lagfæringar við. Auðvitað má það vera að þau séu fleiri en maður kemur auga á að svo komnu máli og enn fremur ákveðnir hlutar frv. sem gætu þarfnast nánari íhugunar eða endurskoðunar eins og kom fram hjá hv. seinasta ræðumanni, en staðreyndin er sú að það er ekki stætt á öðru en að setja ný lög um vexti, ný vaxtalög. Þeir atburðir hafa átt sér stað í þjóðfélaginu, þær sviptingar hafa átt sér stað, slík stefnubreyting hefur átt sér stað að hjá því verður ekki komist. Reyndar er það svo að lög af þessu tagi hefði átt að vera búið að setja fyrir alllöngu eins og ég held að öllum hér inni hljóti að vera ljóst.

Hitt er það að ég hef flutt brtt. við tvö atriði í þessu frv. til laga eins og það liggur hér fyrir sem ég vil gera stuttlega grein fyrir. Það er í fyrsta lagi að því er varðar 17. gr. frv. þar sem fjallað er um skilgreiningu á okri. Þetta er vandasöm grein og ekki skal ég fullyrða að menn hafi komist nákvæmlega að réttri niðurstöðu. Sannleikurinn er hins vegar sá að menn hafa ekki fundið neitt sem er betra en það sem hér er í meginatriðum séð.

Brtt. mín fjallar um það að strengja örlítið meira á að því er varðar skilgreiningu á okri. Það gerist með því að niður falli orðin „á óréttmætan hátt“ í 1. málsl. 1. mgr. Eins og kemur fram í grg. með þessari grein er þessum orðum sérstaklega ætlað að tryggja að farið sé fram í mikilli varfærni við skilgreiningu og dómsuppkvaðningu varðandi okur. Ég tel að það sé óhætt, sérstaklega með tilliti til þess hvernig okur er skilgreint hér að öðru leyti, að strengja nokkuð á klónni og að þessi orð falli niður.

Hitt atriðið sem ég flyt brtt. við er varðandi 6. gr. frv. þar sem fjallað er um vexti sem séu breytilegir. Sú grein hefur nokkuð verið lagfærð í meðförum nefndarinnar, en þó ekki þannig að ég telji að það sé fullnægjandi. Það er fyrst á að líta að þegar menn semja um breytilega vexti er það fyrst og fremst til að verja sig gegn sveiflum í verðlagi, gegn verðbólgu. Þegar menn hins vegar semja um verðtryggingu er búið að sjá fyrir þeim þætti áhættunnar sem felst í verðbólgunni. Þess vegna tel ég eðlilegt og rétt að þegar menn semja um lán með verðtryggingu eigi að semja um fasta vexti. Hér er ekki verið að gera mönnum að semja um neina ákveðna vexti, þeir eru frjálsir að því hvaða vexti þeir semja um, en að þetta eigi að vera fastir vextir.

Ég vil geta þess að í samtölum við aðila frá Seðlabankanum hefur komið fram að þeir telji að það sé eðlilegast og réttast að þegar um verðtryggingu sé að ræða sé samið um fasta vexti. Þeir mæla með því í öllum tilvikum þó að þeir hafi ekki gert tillögu um að það yrði sett í lög. Ég held hins vegar að það sé hreinlegast að þetta standi þá í lögum. Hér er ekki verið að afnema vaxtafrelsi með neinum hætti heldur verið að skapa meira öryggi. Rökstuðningurinn er einmitt sá sem ég ræddi hér áðan um, að það er séð fyrir þeirri áhættu sem felst í verðbólgusveiflum með því að semja um verðtryggingu.

Seðlabankinn er ekki einn um þessa skoðun. Ég hef rætt þetta atriði við ýmsa þá sem koma nálægt fjármálum á Íslandi, m.a. ýmsa þá sem stunda viðskipti á verðbréfum og spariformum af ýmsu tagi sem hér eru farin að blómstra. Þetta er einnig þeirra afdráttarlausa skoðun sem ég hef rætt við. Ég skal viðurkenna að ég velti því fyrir mér hvort eitthvað annað kæmi til greina um takmörkun á vaxtasvigrúmi þegar um verðtryggð lán væri að ræða, en niðurstaða mín var sú að það væri langhreinlegast og einlægast að hafa þetta með þeim hætti sem ég hef hér gert tillögu um.

Herra forseti. Ég þarf ekki að fara öllum fleiri orðum um þessar brtt., þær eru mjög einfaldar, þær skýra sig að mestu leyti sjálfar, en mín skoðun er sú að að þessum breytingum gerðum sé það frv. sem hér um ræðir til verulegra bóta og að það eigi að samþykkja. Hnökra sem upp kunna að koma má leiðrétta síðar ef þeir reynast vera þess eðlis að þörf sé á því.