13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4174 í B-deild Alþingistíðinda. (3795)
321. mál, vaxtalög
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég flyt brtt. við 15. gr. laganna. 15. gr. hljóðar svo í frv.:
„Skaðabótakröfur skulu bera dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 10. gr. að liðnum mánuði frá þeim degi er kröfuhafi sannanlega lagði fram þær upplýsingar sem þörf var á til þess að meta tjónsatvik og fjárhæð bóta. Við ákvörðun miskabóta og örorkubóta fyrir líkamstjón geta dómstólar þó ákveðið annan upphafstíma dráttarvaxta.“
Nú er það svo um skaðabótakröfur að þeim er ætlað að svara til þess tjóns sem orðið hefur. Það er umdeilt hvort rétt sé að slíkar kröfur beri dráttarvexti með þeim hætti sem er gert ráð fyrir í frv. Hér er jafnframt gert ráð fyrir að dómstólar geti ákveðið annan upphafstíma dráttarvaxta en segir í 1. málsl. við ákvörðun miskabóta og örorkubóta fyrir líkamstjón sem ég ætla að séu þær einu bætur sem verðtryggðar eru við dómsuppkvaðningu þannig að ekki sé ástæða til að taka þær bætur sérstaklega út úr. Ég tel á hinn bóginn hæpið að hafa þessa reglu svo afdráttarlausa gagnvart öðrum kröfum sem gert er ráð fyrir í 1. málsl. og legg því til að orðin „við ákvörðun miskabóta og örorkubóta fyrir líkamstjón“ falli niður en síðari hluti setningarinnar haldi sér þannig að í staðinn komi: Dómstólar geta þó ákveðið annan upphafstíma dráttarvaxta.
Þessi breyting felur ekki í sér breytingu varðandi miskabætur og örorkubætur fyrir líkamstjón, en mun veita dómstólum svigrúm varðandi skaðabótakröfur af öðrum toga sem vel má rökstyðja með því að skaðabótakröfur geta verið ósanngjarnar úr hófi fram þannig að nauðsynlegt sé að leita dómsúrskurðar.