13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4181 í B-deild Alþingistíðinda. (3811)
330. mál, Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna
Frsm. allshn. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. allshn. á þskj. 835 um frv. til laga um breytingar á lögum um lögreglumenn nr. 56 frá 1972, með síðari breytingum. Hér er um það að ræða að við 5. gr. þeirra laga bætist ný mgr.:
„Nú verður lögreglumaður skaðabótaskyldur fyrir tjón, sem verður við löggæslu og er af völdum mistaka eða vanrækslu hans við starfann, og geta dómstólar þá fært skaðabótafjárhæð niður með hliðsjón af sök hans, stærð tjónsins og aðstæðum að öðru leyti“.
Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Undir þetta nál. rita auk mín Guðrún Helgadóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Pálmi Jónsson, Friðjón Þórðarson og Stefán Guðmundsson. Ólafur Þ. Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.