29.10.1986
Neðri deild: 7. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (383)

86. mál, stjórn fiskveiða

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að

taka til máls við umræðu um þetta frv., en ræða hæstv. sjútvrh. gerir það að verkum að ég gat ekki látið undir höfuð leggjast að segja nokkur orð. Fyrst ætla ég að koma í örfáum orðum að þessu frv.

Þetta frv. er að mínum dómi lítið frv. og nær ekki ýkjalangt. Ég tek undir röksemdafærslu hæstv. sjútvrh. hvað það snertir að handfæraveiðar eru svo að segja frjálsar. Ég tek líka að vissu marki undir röksemdafærslu sjútvrh. um að línuveiðar eru að verulegu leyti frjálsar. En það er ýmislegt annað sem að er og annað sem hvílir á okkur eins og mara og þær áhyggjur fara vaxandi með hverjum deginum sem líður. Það eru ákvæði þeirra laga sem í gildi eru, hvernig þau verka á ákveðna staði í landinu. Hvort sem við erum með kvóta eða móti kvóta getum við öll verið sammála um að það sé brýn nauðsyn á því að hafa stjórnun á fiskveiðum með ýmsum hætti, bæði með hámarksafla á ári, með margvíslegum friðunarráðstöfunum, sérstaklega til friðunar á ungfiski, og sömuleiðis þurfum við að hafa stjórn á milli skipastærða eins og togara og báta o.fl. sem of langt mál yrði upp að telja.

Það sem mér virðist að fari verst með fólk er að þegar bátar eða fiskiskip eru almennt seld burtu úr byggðarlögum eða á milli byggðarlaga, hvort sem það er vegna nauðungarsölu eða sölu á frjálsum markaði, eru byggðarlögin skilin eftir því að kvótinn fylgir skipunum. Það sem hefur gerst á einstaka stöðum er mikil sorgarsaga sem verður ekki mælt á móti að fær engan veginn staðist.

Það hafa t.d. orðið á s.l. fimm árum, 1981-1985, miklar breytingar á fiskiskipaflota Patreksfirðinga, þ.e. stórum fiskiskipum. Á sama tíma og eitt nýtt skip hefur bæst í flotann í skiptum fyrir 70 ára gamalt skip sem tekið var af skipaskrá hefur fiskiskipum fækkað stórkostlega svo að til stóráfalla horfir.

Árið 1981 voru gerð út ellefu skip á þessum stað af stærðinni 110-300 lesta, þar af eitt aðallega til loðnuveiða en hin til bolfiskveiða og þá fyrst og fremst til þorskveiða. Þá var og gerður út einn skuttogari auk nokkurs fjölda smábáta yfir sumartímann. Á þessum árum hefur skipunum fækkað í þrjú, þ.e. um átta skip, og mest varð fækkunin 1982 en síðan sem nemur einu skipi á ári. Þetta er orðið það alvarlegt ástand að farið er að gæta vaxandi brottflutnings fólks úr þessu myndarlega kauptúni sem er staðsett við einhver bestu fiskimið á landinu. En þannig er þetta farið.

Til þess að gera mönnum nokkra grein fyrir því var bolfiskaflinn sem landað var á þessum stað á árinu 1981 12 148 tonn, en það er talið að hann muni ekki verða nema um 7400 tonn á þessu ári. Árið 1981 var heildaraflinn 18,4 þús. tonn, en þá var loðnuaflinn af því um þriðjungur. Þessi heildarafli er núna aðeins 7600 tonn. Það sjá allir að við svo búið má ekki standa og áhyggjur fólks á þessum stað, og þetta er ekki eini staðurinn á landinu, eru mjög miklar. Úr þessu þarf því að bæta, ekki með því að loka eyrum og augum fyrir staðreyndum heldur með því að viðurkenna hvernig komið er og hver nauðsyn er á aðgerðum. Ég tel alveg sjálfsagt að orðið verði við þessu með því að leyfa innflutning í þessu tilfelli á skipi, en það er ekki nema bráðabirgðalausn. Mér er það alveg ljóst.

Við verðum líka að taka tillit til staða þar sem hefur orðið fjölgun á skipum, þar sem framleiðslan hefur stóraukist, og auðvitað eigum við að fagna því. En hér er um geigvænlegt vandamál að ræða sem við verðum að finna einhverja lausn á hvort sem við elskum eða hötum þennan margumrædda kvóta. Við skulum láta það í þessu tilfelli liggja á milli hluta, en fyrst og fremst hugsa um það sem er óumflýjanlegt að gera.

En það sem aðallega kom mér upp hér voru þau orð hæstv. sjútvrh. hvort samdrátturinn væri því að kenna að það ynnu svo margir við sjúkrahúsið á Ísafirði. Ég ætla að segja hæstv. sjútvrh. að sem betur fer hefur heilbrigðisþjónusta úti á landi, bæði á Austfjörðum, Norðurlandi, Vestfjörðum, Suðurlandi og Vesturlandi, verið að batna verulega á liðnum árum og þar er aukin þjónusta við fólkið í öllum þessum landshlutum sem gerir að verkum að það verða sífellt fleiri sem vinna við þessa þjónustu og það sem best er að fólk er ekki sent umyrðalaust suður til Reykjavíkur til hvers konar lækninga eins og komið var á tímabili. Það er farið að færa þessa þjónustu heim í héruðin. Ég ætla að gefa hæstv. sjútvrh. hér á eftir, þegar ég er búinn að láta ljósrita, Ný störf hjá ríkinu á tímabilinu 1974-1984, en það er myndrit. (Gripið fram í.) Þar segir hvað heilbrigðisþjónustuna snertir að hún er um 2200 störf á höfuðborgarsvæðinu, en um 1000 störf utan Reykjavíkur. - Hæstv. sjútvrh. segist vera búinn að fá mörg slík myndrit. Ég ætla að vona að hann fari þá að líta á þessi myndrit áður en hann lætur annað eins frá sér fara og hann gerði í allsendis óskyldu máli.