13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4190 í B-deild Alþingistíðinda. (3834)
342. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það frv. til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt sem er nú á dagskrá er hluti af því máli sem hér gengur venjulega undir nafninu „staðgreiðslumálið“ og birtist okkur í fjórum stjfrv. sem verið hafa til meðferðar í Ed. og hafa verið skamma stund í þessari hv. deild.
Það gafst út af fyrir sig ekki langur tími til að fara yfir málið í hv. fjh.- og viðskn. Nd., en hún gat þó fjallað um það með þeim hætti að hún ræddi við allmarga talsmenn þeirra aðila sem eiga eða hafa átt með einhverjum hætti hlut að máli. Þær yfirlýsingar sem fram komu við 1. umr. málsins frá hæstv. fjmrh. um skipan nefndar til að fjalla um þessi mál á næstu mánuðum greiddu vafalaust fyrir því að málið er þó komið þetta langt sem raun ber vitni um nú.
Ég sem skipa 1. minni hl. fjh.- og viðskn. flyt við frv. þrjár brtt. sem ég mun gera grein fyrir. Í nál. mínu á þskj. 895 segir m.a. á þessa leið:
„Alþb. hefur lagt fram á Alþingi frv. um staðgreiðslukerfi skatta; það náði ekki fram að ganga þar sem skiptar skoðanir voru þá um málið í röðum sveitarstjórnarmanna. Nú lagði Alþýðusamband Íslands fram tillögur um staðgreiðslu skatta og einföldun skattkerfisins í tengslum við gerð kjarasamninga. Ríkisstjórnin er með þessu frv. og öðrum skattafrumvörpum að verða að sínu leyti við kröfum verkalýðshreyfingarinnar. Hér er því verið að hrinda í framkvæmd stefnu sem Alþb. hefur lengi barist fyrir, þ.e. einföldun skattkerfisins og staðgreiðslu skatta.
Þrátt fyrir þessa skattkerfisbreytingu er ljóst nú skömmu fyrir kosningar að skattkerfið er í uppnámi eftir fjögurra ára stjórn tveggja fjármálaráðherra Sjálfstfl.
1. Hallinn á ríkissjóði er 3000 millj. kr. í ár og alls 6000 millj. kr. í 10 þúsund millj. kr. góðæri.
2. Um leið og frádráttarliðir einstaklinga eru afnumdir að mestu og persónuskattar einfaldaðir standa fyrirtækin eftir og greiða litla sem enga skatta. Frádráttarfrumskógur fyrirtækjanna stendur óhreyfður. Hafa stjórnarliðar nú fellt tillögur Alþb. í báðum deildum þingsins um einföldun skattkerfis fyrirtækja sem hefðu getað skilað ríkissjóði 1000-1500 millj. kr. aukalega.
3. Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnarflokkanna um að afnema eigi tekjuskatt af almennum launatekjum hafnaði meiri hl. í efri deild tillögum Alþb. um lækkun á sköttum einstaklinga um 1200 millj. kr. frá frv. Allar líkur benda reyndar til þess að frv. í núverandi mynd muni hafa í för með sér beina tekjuaukningu fyrir ríkissjóð.“
Ég vil vekja athygli á þessum orðum sérstaklega vegna þess að ég mun rökstyðja þau aðeins nánar á eftir, en ég heyrði ekki betur en að í fréttum útvarpsins í kvöld væri verið að lýsa því yfir að þessi frv. eins og þau liggja hér fyrir þýddu í rauninni lækkun á tekjum ríkissjóðs frá því sem hér hefði verið að óbreyttu. Hér fer tvennum sögum af. Samkvæmt upplýsingum frá hagfræðingi Alþýðusambands Íslands munu þessi frv. hafa í för með sér hækkun á sköttum ríkissjóðs frá því sem verið hefði að óbreyttu.
Ég mun koma að því nánar á eftir, herra forseti.
„4. Fjármagnstekjur eru enn ekki skattlagðar og engir tilburðir eru uppi til þess að leggja skatta á stóreignir.
5. Ekkert er gert til þess að koma í veg fyrir að forráðamenn fyrirtækja færi einkaneyslu sína á reikning fyrirtækjanna og hafa tillögur um það efni verið felldar í báðum deildum þingsins.
6. Ekkert hefur verið gert til þess að laga og bæta söluskattskerfið.
7. Í fjmrn. hefur legið tilbúið á annað ár frv. til nýrrar tollskrár, en ríkisstjórnin hefur ekki komið henni frá sér í hendur Alþingis til meðferðar.
8. Stjórnarflokkarnir og Alþfl. hafa bundist samtökum um að leggja virðisaukaskatt á matvörur og menningarstarfsemi - eftir kosningar.
Alþb. mun ekki endurflytja í Nd. þær tillögur allar sem Alþb. flutti í Ed. og voru felldar þar af stjórnarliðinu, enda hefur Nd. reyndar þegar hafnað nokkrum tillögum Alþb. að því er varðar fyrirtækjaskattana við meðferð frv. um tekju- og eignarskatt hér fyrr í vetur.“
Í Nd. flytur Alþb. því aðeins eftirfarandi tillögur um breytingar á skattafrv. Í fyrsta lagi er það brtt. á þskj. 886 um Framkvæmdasjóð aldraðra. Eins og kunnugt er gera frv. ráð fyrir því að Framkvæmdasjóður aldraðra eða gjald til hans falli inn í hina almennu ríkissjóðsskattaprósentu. Rétt áðan var verið að mæla fyrir nál. um að framlengja lögin um málefni aldraðra og þar með skatt í því skyni fyrir árið 1988. Í rauninni erum við því á þessu kvöldi að fjalla um tvö frv. sem bæði gera ráð fyrir tekjum í Framkvæmdasjóð aldraðra. Ég fagna því auðvitað ef það er ætlun ríkisstjórnarinnar að tvöfalda framlög í Framkvæmdasjóð aldraðra, en það mundi verða ef bæði frv. standa sem lög fram yfir næstu áramót.
Fyrst var það frv. um Framkvæmdasjóð aldraðra. Það er búið að afgreiða það hér, verður afgreitt með atkvæðagreiðslu sjálfsagt samhljóða á mánudaginn. Gert er ráð fyrir því að Framkvæmdasjóðurinn standi óhreyfður á árinu 1988 og aflað tekna í hann með sérstökum nefskatti, en auk þess á Framkvæmdasjóður aldraðra að fá hluta af þessari ríkissjóðsprósentu. Þetta er svo sem eftir öðru í því sem kemur frá þessum ráðherrum, þeir vita yfirleitt ekkert hvað hvor annar er að gera og jafnvel ekki hvað þeir eru sjálfir að gera. En það er nú annar hlutur.
En allt um það tel ég nauðsynlegt að festa það með einverjum hætti að Framkvæmdasjóður aldraðra fái sitt af þessari ríkissjóðsskattprósentu. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri í heilbr.- og trmrn. kom á fundi í fjh.- og viðskn. og taldi nauðsynlegt að ákvæðin um Framkvæmdasjóð aldraðra fengju að standa áfram í tíu ár eða svo hygg ég að hann hafi nefnt. Verkefnin á þessu sviði eru æpandi. Ég vil segja alveg sérstaklega á þessu svæði, í Reykjavík og nágrenni. Það eru 1100 aldraðir á biðlistum í Reykjavík eftir þjónustu á stofnunum eða heimilum fyrir utan þá sem eru að bíða eftir heimilisþjónustu og af þessum 1100 öldruðu Reykvíkingum eru 340 sem búa við mjög bágar heimilisaðstæður.
Þm. þekkja kannske hvernig hefur verið staðið að framkvæmdum við B-álmu Borgarspítalans. Hún hefur staðið óhreyfð í 3-4 ár. Allan tímann sem íhaldið hefur farið með heilbrigðismálin og málefni aldraðra hefur þessi stóra bygging, sem var ætluð öldruðum hér og annars staðar reyndar, en einkum hér, hefur staðið óhreyfð, þrjár eða fjórar hæðir þar sem hefði verið hægt að vista tugi aldraðra sjúklinga, langlegusjúklinga. Þess vegna er mjög nauðsynlegt að það sé tryggt að Framkvæmdasjóður aldraðra fái að halda tekjum sínum. Í frv. ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir því að skattprósentan til ríkisins sé 28,5%. Það sem ég legg til í fyrstu till. á þskj. 886 er ósköp einfaldlega að ríkissjóður greiði Framkvæmdasjóði aldraðra framlag er nema skal 2,75% af þeirri fjárhæð sem um ræðir í 2. mgr. frv., en það er sú málsgrein sem segir að prósentan eigi að vera 28,5%. Um skil á framlagi ríkissjóðs samkvæmt þessari mgr. skuli gilda ákvæði 2. mgr. 10. gr. laga nr. 91 1982 eftir því sem við getur átt. Hér er m.ö.o. verið að biðja Framkvæmdasjóði aldraðra griða, að hann fái þrátt fyrir alla einföldunina að halda sér, fái að vera í friði. Við þurfum á því að halda að ríkið sinni þessum málum. Það verður best gert með því að merkja þetta verkefni sérstaklega.
Það er mikið talað um nauðsyn þess að einfalda hlutina, mikið talað um nauðsyn þess að vera ekki að merkja skatta sérstaklega og vera ekki með nefskatta, en staðreyndin er sú að nefskattar hafa yfirleitt staðið undir flestum félagslegum framförum sem ákveðnar hafa verið hér í seinni tíð. Þannig er það með Framkvæmdasjóð aldraðra. En það að setja þetta allt í einni prósentu undir fjmrn. er stórhættulegt. Fjmrn. hefur tilhneigingu til þess að fara að valsa með þessa hluti jafnvel þó svo að upphaflega hafi verið ætlunin að þetta væru sérmerktir tekjustofnar.
Hér er ekki verið að flækja myndina nokkurn skapaðan hlut. Það er hægt að innheimta áfram 28,5% eins og gert er ráð fyrir í frv. og halda sig við það, en það er bara verið að segja: Af þeirri tölu skulu 2,75% renna í Framkvæmdasjóð aldraðra.
Ég tel að það sé óbilgirni af fjhn. Nd. að hafna till. af þessu tagi vegna þess að hún er í rauninni ekki um neitt annað en að staðfesta það sem hinn ráðherrann var að leggja til fyrr í kvöld, að lögin um málefni aldraðra verði framlengd árið 1988. Ef menn í þessum ráðherrastólum vilja fella það sem er lagt til í þessum ráðherrastólum er það orðin nokkuð sérkennileg staða hér í þinginu.
Hv. þm. Ólafur G. Einarsson var að mæla fyrir frv. í kvöld um það að Framkvæmdasjóður aldraðra yrði settur á og ég er að flytja brtt. sem gerir ráð fyrir að farið verði að vilja sameinaðrar heilbr.- og trmn. í þessu máli og að ákvæðin um Framkvæmdasjóð aldraðra verði sett hér inn og ríkissjóður skili Framkvæmdasjóði aldraðra undanbragðalaust þessum peningum. Ég vil að það komi hér fram að ef að svo ólíklega vill til að menn ætla sér að fara að fella þessa till. er það auðvitað ekki merki um neitt annað en að menn ætla sér að svíkjast um í þessum málaflokki. Ef ekki er hægt að fá menn til þess að taka á málum af þessu tagi fyrir kosningar, hvað gera þeir þá eftir kosningar?
Þetta er mál sem mikið er horft á í því byggðarlagi sem við erum stödd í og reyndar um allt land þar sem þarfirnar æpa á þjónustu fyrir aldraða. Það væri hrakleg frammistaða á þinginu ef Framkvæmdasjóður aldraðra yrði sleginn af með því að hafna brtt. af þessu tagi sem er mjög einföld, alveg nákvæmlega sömu skattar, engin breyting að því leyti. Till. segir ekkert annað en að ríkissjóður á að skila Framkvæmdasjóði aldraðra þessari upphæð.
Í öðru lagi flyt ég till. um að leigjendur fái húsnæðisbætur. Í frv. er gert ráð fyrir að húsnæðisbætur verði greiddar húseigendum og íbúðakaupendum, en frádráttur leigjenda sem núna geta dregið 50% af leigu frá tekjum á að falla niður. Mér finnst auðvitað afar furðuleg pólitík að ekki sé meira sagt að koma með þessum hætti fram við leigjendur, að fella niður húsnæðisbætur til leigjenda á sama tíma og verið er að tryggja húsnæðiseigendum húsnæðisbætur.
Hæstv. félmrh. hefur látið málefni leigjenda nokkuð til sín taka og hefur fjallað um þau í ræðustól aftur og aftur á hv. Alþingi. Ég trúi því ekki að hann sé andvígur því að það verði komið til móts við leigjendur sem borga níðþunga húsaleigu, t.d. með þeim hætti sem ég geri ráð fyrir. Hvers eiga leigjendur að gjalda, þeir sem búa við lakasta stöðu í húsnæðismálum og geta ekki með neinu móti komið sér inn í eignaríbúðakerfið, ekki einu sinni verkamannabústaðakerfið? Hér er um að ræða ungt fólk alveg sérstaklega. Það eru sérkennilegar kveðjur til ungs fólks sem býr í leiguhúsnæði í stórum stíl ef það á að fella till. eins og þá að leigjendur fái húsnæðisbætur eins og þeir sem eiga húsnæði.
Þess vegna flyt ég brtt., nr. 2 á þskj. 886, um að við 11. gr. frv. um tekju- og eignarskatt komi ný málsgr. sem verði 6. málsgr. b-liðar og orðist svo:
„Rétt til húsnæðisbóta eiga og þeir sem sannanlega greiða húsaleigu vegna leigu á íbúðarhúsnæði til eigin nota.“
Í þriðja lagi flyt ég þá brtt. sem lýtur að ákvæði I til bráðabirgða í þessu frv. Ákvæði I til bráðabirgða fjallar um framlengingu vaxtafrádráttar. Ég geri ráð fyrir að sú tímatakmörkun sem frv. byggir á verði felld niður. Hér segir: „Maður sem við álagningu 1987 nýtur vaxtafrádráttar samkvæmt heimild í 1. tölul. e-liðs 1. málsgr. 30. gr. í stað fasts frádráttar skal eiga rétt á sérstökum skattafslætti, vaxtaafslætti í allt að sex ar talið frá og með árinu 1988 vegna vaxta af þeim lánum sem tekin voru á arinu 1987 eða fyrr og að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru í 1. tölul. e-liðs 1. mgr. 30. gr. eins og það ákvæði hljóðaði fyrir gildistöku laga þessara.“
Síðan er þetta útfært nánar í næstu málsgreinum og í plöggum sem Alþingi bárust var fullyrt af mönnum sem þekkja til að hér væri um að ræða stórkostlega skerðingu hjá þeim sem hafa fengið nokkurn vaxtafrádrátt að undanförnu frá sköttum og þetta væri atlaga að því fólki sem hér væri uppi.
Það var að mínu frumkvæði í fjh.- og viðskn. að farið var fram á það við Þjóðhagsstofnun að hún sýndi okkur í dæmum hvaða áhrif þessi vaxtabreyting hefði. Í fskj. I með nál. mínu birtast þessar töflur þar sem Þjóðhagsstofnun fullyrðir að þær reglur sem frv. gerir ráð fyrir séu ekki lakari en það sem gildandi kerfi býður þessu fólki upp á. Þessar töflur, sem birtast í fskj. I með nál. mínu, eru nokkuð athyglisverðar og mér sýnist reyndar að munurinn liggi fyrst og fremst í því að þegar menn eru komnir með tiltölulega háar brúttótekjur, komnir í milljón og þar fyrir ofan, fer það að hafa áhrif í þessu dæmi að hærri skattaþrepin eru farin og að í því liggi munurinn sem þarna er sýndur. Í töflunum sé ekki aðeins verið að tala um vaxtaafslátt eða skattaafslátt, þar sé verið að sýna heildaráhrifin af kerfisbreytingunni og þau séu talin koma svona út.
Ég hreyfði því í nefndinni hvort nefndin væri tilbúin að flytja einhverjar brtt. um þetta mál, hvort nefndin væri tilbúin að laga þetta. Það var enginn áhugi á því þannig að ég taldi, miðað við undirtektir málsins þar og í Ed., að engin ástæða væri til að flytja enn eina brtt. af þessu tagi nema þá að ég tel að það sé óþarfi að vera að setja inn í lögin þessi tímamörk, í allt að sex ár talið frá og með árinu 1988. Ég legg þess vegna til að þessi orð verði felld út úr ákvæði til bráðabirgða I á eftir 21. gr. frv.
Auk þessara þriggja brtt. við frv. um tekju- og eignarskatt flyt ég tvær tillögur við staðgreiðslufrv. sem ég ætta að koma að síðar þegar það frv. verður hér til meðferðar í kvöld.
Í nál. mínu á þskj. 895 er farið yfir afstöðu ýmissa aðila til þessa máls. Þar er greint frá því að talsmenn BSRB á fundi nefndarinnar lögðu til að málinu yrði alfarið frestað þar sem það væri illa undirbúið og upplýsingar skorti. Ég man ekki hvort hv. frsm. nefndarinnar nefndi þetta hér í ræðu sinni áðan, en ég tel að mér sé einfaldlega skylt að halda þessu til haga.
Talsmenn BHM lögðu aftur á móti til að málið yrði afgreitt en betur undirbúið í haust og sumar, sögðu að þeir vildu að staðgreiðslukerfið tæki gildi frá og með næstu áramótum. Fulltrúar ASÍ lögðu fram bréf, sem ég birti sem fskj. II með nál. mínu.
Bréf ASÍ er á þessa leið, með leyfi forseta:
„Miklu skiptir að staðið verði við þau fyrirheit sem verkalýðshreyfingunni hafa verið gefin um að staðgreiðslu skatta verði komið á um næstu áramót. Til þess að tryggja að svo verði er óhjákvæmilegt að Alþingi afgreiði þau frv., sem þar liggja fyrir, á yfirstandandi þingi.
Enn hafa ekki fengist nauðsynlegar upplýsingar til þess að unnt sé að meta einstaka þætti skattabreytinganna og ýmsir annmarkar hafa komið fram. Því er nauðsynlegt að sumarið og haustið verði notað til endurskoðunar á lögunum svo á haustþingi megi sníða af þá ágalla sem fram kunna að koma um leið og skatthlutföll og fjárhæðir verða endurskoðaðar í ljósi nýjustu upplýsinga.
Alþýðusamband Íslands gerir kröfu til þess að sambandinu verði veitt bein aðild að því endurskoðunarstarfi sem fram undan er í þessu efni.“
Rétt er að halda því og til haga að það kom fram mjög hörð gagnrýni á þessi mál frá formanni Sambands ísl. sveitarfélaga en aðspurður sagði hann að sambandið óskaði ekki eftir því að málinu yrði frestað.
Á fundum nefndarinnar var lögð fram sérstök grg. um málefni sjómanna sem ég birti í heild með nál. mínu. Þar kemur það fram hvaða tala Sjómannasambandið telur að eigi að standa þarna inni fyrir sjómannaafsláttinn. Í frv. var þessu breytt í Ed. varðandi sjómannaafsláttinn þannig að hann er 200 kr. fyrir hvern dag sem maður telst stunda sjómannsstörf eftir meðferð málsins í Ed., en Sjómannasambandið er á því að afslátturinn sé í dag 222 kr. Hækkunin í Ed. var úr 150 kr., trúi ég, í 200 kr. þannig að þar er um talsverða breytingu að ræða og það var ekki flötur á því að hreyfa þessa tölu enn frekar í nefndinni sem fjallaði um málið.
Þá kem ég að því plaggi í þessu nál. mínu sem ég tel að skipti kannske ekki síst máli og það er álit Þjóðhagsstofnunar á þessum breytingum og hvað þær þýða. Það er í fyrsta lagi það að í plaggi Þjóðhagsstofnunar, töflu 1, kemur fram samanburður á núgildandi álagningarkerfi og fyrirhuguðu staðgreiðslukerfi. Þar segir að tekjuskatturinn eigi eftir nýja kerfinu að gefa 29 þús. 205 millj. kr. og að það þýði lækkun upp á 300-500 millj. kr. frá því sem verið hefði að óbreyttu til ríkisins.
Hagfræðingur ASÍ fullyrti hins vegar að hér væri um verulega skekkju að ræða og taldi að tekjuskattur ríkisins væri þarna hjá Þjóðhagsstofnun vanáætlaður um 900 millj. kr., hvorki meira né minna en tæpan milljarð, þannig að í raun væri þetta ekki lækkun til ríkisins um 300-500 millj. kr., heldur væri þetta hækkun til ríkisins frá því sem yrði að óbreyttu um 400-600 millj. kr. Það væri sem sagt þannig að ef þessar tölur stæðu allar eftir, þá væri ríkið að ná til sín sköttum aukalega upp á 1/2 milljarð kr. eða svo.
Það hefur dálítið verið spurt um það að undanförnu: Ætlar ekki ríkið að nota þetta tækifæri sem staðgreiðslan er til þess að auka tekjurnar hjá sér?
Hvernig getur maður treyst því, er sagt þar sem maður kemur á fundi víðs vegar í landinu. Svarið við þessari spurningu er auðvitað ósköp einfalt. Ríkið getur ráðið því sjálft og hinn pólitíski vilji hversu mikið á að taka til sín í sköttum. Þó er það nú svo að menn sem hafa fengist lengi við þjóðfélagsmál, eins og t.d. leiðarahöfundur DV, hefur aftur og aftur haft uppi þessa kenningu að það standi til að nota tækifærið við staðgreiðslukerfið og hækka skattana um leið.
Því er ekki að neita að sú breyting á skattstofninum sem felst í því að fella niður frádráttarliðina, bæði dagpeningana og hvað það nú heitir allt saman, það er óvíst hvað það þýðir fyrir ríkissjóð, sú breikkun á skattstofninum. En ég tel að það sé mjög alvarlegur hlutur þegar það kemur upp við lokameðferð málsins hér í þinginu að fulltrúar Alþýðusambandsins telja að það sé verið að leggja á aukaskatt upp á hálfan milljarð kr. Einn lítinn hálfan milljarð kr.
Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt að hæstv. fjmrh. geri grein fyrir því af hverju hann er að pilla þarna í ríkissjóð aukalega hálfan milljarð kr. vegna þess að honum hlýtur að vera þetta ljóst. A.m.k. fengu embættismenn hans upplýsingar um þetta þegar málið var til meðferðar í hv. fjh.- og viðskn. Ég held að það sé nauðsynlegt að það komi hér fram líka að Þjóðhagsstofnun hafði engar alvarlegar, rökstuddar og efnislegar athugasemdir að gera við álit hagfræðings Alþýðusambands Íslands. Það kom ekkert slíkt fram þar. Þannig að ég held að það sé nauðsynlegt að þingheimur geri sér grein fyrir því: Að hér er verið að flytja frv. um staðgreiðslu skatta. Jú. Hér er verið að flytja frv. um einföldun skattakerfisins. Jú. En hér er líka verið að flytja frv. sem samkvæmt upplýsingum hagfræðings ASÍ hefur í för með sér hækkun á tekjusköttum um u.þ.b. hálfan milljarð kr. Hálfan milljarð króna. Það munar um minna. Reyndar er hækkunin aðeins frá því sem er í gildandi kerfi en miðað við upplýsingar frv., sem öll vinnan í Ed. byggðist á, þá er hérna verið að hækka skattana um 900 millj. kr. Ég tel að það sé alveg óhjákvæmilegt að fjmrh. geri grein fyrir þessum þætti málsins.
Hitt er svo alveg ljóst að jafnvel þó að prósentur og álagningarhlutföll yrðu rétt af miðað við þessar upplýsingar, þá dygði það heldur ekki til vegna þess að það veit auðvitað enginn hvað kemur út úr álagningunni 1987. Það er best að segja þá sögu bara eins og hún er. Þess vegna er óhjákvæmilegt að þessi mál verði tekin upp eftir að álagningin liggur fyrir. Upplýsingarnar eru engu að síður mjög athyglisverðar núna á síðustu klukkutímum þingmeðferðarinnar, að það séu 900 millj. extra sem menn séu að næla sér í í ríkissjóð út úr þessari skattkerfisbreytingu.
Í raun og veru er það þannig að afgreiðsla þessara frv., sem við erum hér með á dagskránni í kvöld, er ekkert annað en afgreiðsla á rammanum, á grundvallarafriðunum. Það er eftir að ganga frá öllum álagningarhlutföllunum og það verður að gera síðar á þessu ári.
Það kemur einnig fram hér.í þessu nál. hjá mér að lokum að það er ljóst af meðferð málsins að tíminn til afgreiðslu er of skammur. Jafnljóst er hitt að verði ekki tekin ákvörðun um kerfisbreytinguna nú verður hún ekki tekin á þessu ári. Þess vegna er óhjákvæmilegt að ákvörðun um breytingu skattakerfisins verði tekin nú. Ríkisstjórnin hefur síðan fallist á þá tillögu undirritaðs að þingflokkarnir fylgist með málinu áfram, enda útilokað að standa að afgreiðslu málsins án þess að það sé tryggt.
Ég tel þess vegna að þeir sem vilja stöðva málið núna væru í raun og veru að taka ákvörðun um að fresta þessari kerfisbreytingu, ekki til næstu áramóta, heldur til mikið lengri tíma. (Gripið fram í: Áratugs.) Áratugs eða hver veit hvað. Eða aldamóta. Þannig að grunnbreyting um ákvörðunina verður að taka nú.
Það er engu að síður nauðsynlegt að vekja hér athygli á því sem ég gerði áðan að samkvæmt upplýsingum Björns Björnssonar, hagfræðings Alþýðusambands Íslands, er í.þessum frumvörpum um að ræða meiri skattlagningu en menn hafa viljað láta í veðri vaka. Skattlagningin samkvæmt upplýsingum Björns Björnssonar er 500 millj. kr. meiri en væri að óbreyttu á þessu ári og 900 millj. kr. meiri en fyrir liggur í talnagögnum þeim sem ríkisstjórnin hefur lagt hér fyrir þingið.
Þetta er auðvitað slæmt, að upplýsingar af þessu tagi skuli ekki fást fyrr en á lokastigi málsins og að engar marktækar úttektir séu til á þessum upplýsingum af hálfu Þjóðhagsstofnunar. Það er óhjákvæmilegt að þær liggi fyrir áður en málið fer héðan út, þ.e. mat á upplýsingunum. Ég dreg það hins vegar ekki í efa að þær séu réttar. En ég endurtek það sem ég sagði hér áðan, að hvað svo sem þeim upplýsingum líður er óhjákvæmilegt að taka álagningarhlutföllin, innri gerð þessa máls alls, til meðferðar síðar á árinu.
Þingflokki Alþb. hefur ekki borist bréf það sem hæstv. fjmrh. las hér úr ræðustólnum í fyrradag. (Gripið fram í: Það er orðið að lögum. ) Þetta er ekki orðið að lögum, en ég man ekki betur en hæstv. ráðh. segði að hann hefði samið bréfið og það væri að fara. Það kann að vera að það eigi að bíða eftir því að þetta verði að lögum. Út af fyrir sig breytir það engu í mínum huga og það er ágætt að fá upplýsingar um það. En aðalatriðið er þá það að bæta því við, og það er það sem ég ætlaði að segja: Alþýðusamband Íslands óskar eftir aðild að þessu samráði. Og ég vil fá upplýsingar hjá hæstv. fjmrh. um það hvernig hann hugsar sér áframhaldandi aðild Alþýðusambands Íslands að þessu samráði öllu um skattakerfið.
Ég tel að það sé óhjákvæmilegt að upplýsingar um það komi fram hér þegar við þessa umræðu. Einnig vil ég að ráðherrann svari einhverju um þessar nýju upplýsingar hagfræðings ASÍ, hvort það er ætlunin hér að lauma því í gegn, án þess að þingið taki eftir því, að það eigi að hækka skatta um 900 millj. Og ég vil líka að það komi fram hvaða rök séu á móti því að gefa Framkvæmdasjóði aldraðra líf. Hvaða rök eru á móti því að gefa Framkvæmdasjóði aldraðra líf?
Með tilliti til þess, herra forseti, sem ég hef hér sagt mun ég greiða fyrir því að mál þessi komist í gegnum þingið. Ég flyt hér brtt., styð brtt. sem fram koma, m.a. frá hv. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. og styð fyrst og fremst aðalatriði málsins, sem er staðgreiðslukerfi skatta og einföldun skattakerfisins, þó að hitt hefði auðvitað þurft að sjást líka að menn hefðu þorað að taka á frádráttafrumskógi fyrirtækjanna, vaxtatekjunum sem menn hafa hér í verulegum mæli og fleiri þáttum skattakerfisins.
Heildarniðurstaðan af skattamálunum fyrir kosningarnar er svo sú að skattakerfið er í uppnámi sem slíkt. Virðisaukaskatt á að leggja á eftir kosningarnar. Fyrir liggja yfirlýsingar um það. Ríkissjóð vantar 3000 millj. kr. og það er þess vegna bersýnilegt að sú glansmynd, sem reynt er að mála af skattakerfinu núna fyrir kosningar, stenst ekki. Á bak við þá glansmynd er býsna ófrýnilegur veruleiki.