16.03.1987
Efri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4227 í B-deild Alþingistíðinda. (3871)
10. mál, leyfi frá störfum vegna umönnunar barna
Frsm. minni hl. félmn. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð vegna þess sem hv. þm. Karl Steinar Guðnason gerði að umræðuefni hér áðan. Hann taldi að málið þyrfti meiri skoðunar við og má til sanns vegar færa að mörg mál, sem verið er að afgreiða hér á hv. Alþingi nú, þyrftu meiri skoðunar við. En þetta mál hefur verið skoðað í fimm mánuði í nefnd þannig að ekki er það vegna þess að það hafi ekki verið skoðað nægilega vel í nefndinni að það þurfi meiri skoðunar við.
Hv. þm. nefndi einnig reynslu sína af kjarasamningum. Ég vil þá láta þess getið að lögfræðingur Alþýðusambands Íslands kom á fund nefndarinnar og sagði að þessar hugmyndir hefðu komið fram innan Alþýðusambandsins en hefðu aldrei náð svo langt að komast upp á samningaborð. Og það er sú reynsla sem konur hafa af mörgum hugmyndum sem til bóta horfa um þeirra hag hvað varðar samningamál. Þær komast yfirleitt ekki á borð í samningum aðila vinnumarkaðarins.
Hv. þm. hafði miklar áhyggjur af því að frv. leiddi af sér að hér myndaðist stétt afleysingakvenna sem hrektust réttindalausar starf úr starfi og væru alltaf að leysa af. Ég vil benda hv. þm. á að svona hugmyndir eru þvílík fásinna að vart er þm. samboðin. Fæðingar hér á landi eru það fáar að það er ekki nokkur möguleiki á því að slíkt geti gerst.
Virðulegi forseti. Ég hef ekki þessi orð fleiri.