16.03.1987
Neðri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4240 í B-deild Alþingistíðinda. (3893)
119. mál, umferðarlög
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég skil ekki alveg það vandamál sem er upp risið. Ef við greiðum einfaldlega atkvæði um 2. málsl. 2. mgr. hljóða 1. og 2. mgr. svo:
„Við akstur bifreiðar skulu lögboðin ljós vera tendruð allan sólarhringinn“, eins og segir í brtt. Páls Péturssonar sem hér var samþykkt. Næsta mgr. hljóðar svo: „Ökutæki sem eigi skal búið ljósum skal þá auðkennt samkvæmt reglum sem dómsmrh. setur.“
Hvað er athugavert við þetta? Hvers vegna greiðum við ekki um þetta atkvæði? Ég held að þessi frestun sé með öllu óþörf og vil benda á það.